Breiðfirðingur - 01.04.1948, Side 185
breiðfirðingur
183
greiddar 2 afborganir, alls 80.000.00 kr. og eru þá
eftir af því kr. 120.000.00 Áhvílandi veðskuldir eru því
nú alls kr. 582.000.00. — Að vísu liafa einstakir hlutliaf-
ar hjálpað félaginu til að greiða nokkur sérskuldabréf,
sem útdregin hafa verið, cn þau lán eins og megnið af
öðrum lausaskuldum munu vœntanlega greiðast fyrir
næstu áramót.
Stjórnin hefur lagt mikið kapp á að selja þau hluta-
bréf, sem óseld voru, er liún tók við og taldist svo til
að það mundi vera um kr. 185.000,00, sem óselt væri.
Hún lét það vera sitt fyrsta verk að skrifa stjórn Breið-
firðingafélagsins og skora á það að taka að sér að
kaupa eða útvga kaupendur að helmingi þessarar upp-
hæðar, ca. 90 þús. kr., eins og áskoranir höfðu komið
fram um á síðasta hluthafafundi og oftar. Breiðfirð-
ingafélagsstjórnin brást strax vel við þessari áskorun,
fékk samþykkta heimild til að liækka hlutafjáreign
Breiðfirðingafélagsins um 90 þús. kr. á almennum fé-
lagsifundi í okt. síðastl. og hefur nú þegar notað þá
heimild og greitt sinn liluta. Sjálf hefur lilutafélags-
stjórnin vissu fyrir að geta selt sinn hlutafjárhelming
um 90 þús. kr. fyrir næstu áramót og verður ])á allt
hlutaféð, 600 ])ús. kr., að fullu innborgað, en með þess-
um hlutafjárkaupum mun greiðast megnið af lausa-
skuldum hlutafélagsins.
Með þessum fjármálaaðgerðum má telja hlutafélagið
komið á réttan kjöl og að hin dýra og verðmikla hús-
eign sé um leið örugglega orðin eign hluthafanna. Hús-
eignin sjálf jókst mikið að verðgildi við breytinguna,
sem á henni var slrax gerð, er venjulegu trésmíðaverk-
stæði var breytt í fallega veizlusali með nútímaútbún-
aði. Enn þá á félagið að vísu eftir að innrétta risliæð
aðalliússins og koma þar upp gistiherbergjum, svo að
unnt sé að hefja næturgreiðasölu, en það verkefni verð-
Ur væntanlega leyst í náinni 'framtíð. Enn má geta þcss,
að góðar horfur eru á, að hráðlega verði hægt að greiða