Stjarnan - 01.02.1920, Síða 4
20
STJARNAN
það leyfði. petta dýr v:ar alt öðruvísi
en dýrin, sem. höfðu komið á undan því,
og það “hafði tíu horn’’
pegar spámaðurinn hvesti augun á
homin, tók hann eftir að lítið hom
spratt upp meðal þeirra. þetta hom
var meira ásýndum en hin homin, og
það upprætti þrjú af þeim til þess að
rýmka til kringum sig. par næst sér
hann ýms skilmerkileg einkenni hjá
þessu horni. )>að hafði “ augu, eins og
mannsaugu og munn þann, er italaði
guðlöstunaryrði. ’ ’
Meðan Daniel gaf gætur að þessu sá
hann hinn Almáttuga byrja dómsverkið
og Mannsins Son koma inn til að taka
af hendi föðursins hið eilífa ríki að
erfðum. Uppfylling þessa spádóms
mun enda sögu syndarinnar og veita
hinum kristna von hans — eilíft sam-
félag við Krist.
Guðdómleg útþýðing
Hvað tákna þessi dýr? Daniel lang-
aði itil að vita það. Hann kemst þannig
að orði: “Eg gekk þá til einhvers af
þeim sem þar stóðu, og bað harni segja
mér skyn á öllu þessu. Hann talaði til
mín og sagði mér svofelda skýringu. ”
16. vers. Hinn himneski túlkur segir
honum: “pau hin miklu dýrin, sem
voru fjögur als, það eru fjögur ríki,
sem munu hefjast á jörðinni,” og að
“hinir heilögu hins Hæsta munu eign-
ast ríkið og halda því eilíflega, frá einni
eilífð til annarar.”
En Daniel var sturlaður út úr þessu.
Hann langaði að vita meira um dýrið,
sem var svo ótitalegt og hvers verk var
svo eyðileggjandi. Og sérstaklega lang-
aði hann til að fá útskýringu á hinum
tíu hornum og á “litla horninu” sem
hafði augun eins og mannsaugun og
munn, sem talaði guðlöstunaryrði og
sem mundi segja hinum heilögu stríð á
hendur og kúga þá þangað til að dóm-
urinn yrði settur. Hver var nú hin
rétta skýring á þessum táknmyndum?
Upp á spurningu Daniels svarar hinn
himneski túlkur:—
“Fjórða dýrið skal verða hið fjórða
ríki á jörðinni; það skal ólíkt. vera öll-
um ríkjum; það skal uppsvelgja öll
lönd, niðurtroða þau og sundur merjia.
pau tíu hornin merkja það, að af þessu
ríki munu upp koma tíu konungar; en
eftir þá mun amiar upp rísa; sá mun ó-
líkur verða hinum fyrri, og hann mun
undiroka þrjá konunga. Hann mun
orð mæla í gegn hinum Hæsta, kúga
hina heilögu hins Hæsta og hafa í
hyggju að umbreyta tímum og lögum ;
og þeir munu honum í hendur seldir
verða um eina tíð, tvær tíðir og hálfa
tíð. Og dómurinn mun settur verða og
honum vikið frá völdum, og ríki hans
niðurbrotið verða og undir lok líða. ”
23-26 versin.
Hið fyrsta dýrið itáknaði Babýlon
eins og gullhöfuðið á hinni miklu líkn-
eskju í draumi Nebúkadnesars, Babels
konungs — drauminum sem þessi sami
spámaður, Daniel, útþýddi fyrir kon-
unginum. Til þess að sýna fram á að
þessi dýr táknuðu konungsríki fullviss-
aði hinn himneski túlkur Daniel um að
“fjórða dýrið skal vera hið fjórða ríki
á jörðinni. ” 23 vers. Hvers vegna voru
aðeins fjögur dýr sýnd honum? Svar-
ið er auðfundið. pað hafa aldrei verið
nema fjögur þesskonar ríki í allri sögu
heimsins. Allir eru sammála um að
vængimir á baki ljónsins tákna hraða
sigurvinninga þess ríkis, sem Ijónið
stendur fyrir.
Medar og Persar yfirrunnu að lokum
Babelsríki og stofnsettu sjálfir verald-
ar ríki, sem var voldugara en Babýlon.
pessu nýja ríki stjómuðu tvær þjóðir.