Stjarnan - 01.02.1920, Page 8

Stjarnan - 01.02.1920, Page 8
24 STJARNAN þennan eið. Og ,ef veraldlegur höfðingi sem er beðinn og uppörfaður af kirkj- unni,. neitar að hreinisa ríki sitt frá þessari trúarvilluspillingu, þá skal bisk- upinn í höfuðborginni og aðrir biskup- ar úti um landið binda hann bannfær- ingarfjötrum.”— “Dekretaler Gregori- usar IX,” bók, 7. titill, 13. kap., 3. grein Páfavaldið hefir kúgað ‘hina heilögu hins Hæsta ’ það hefir uppfyllt hvert einasta orð þessa spádúms,' en það hefir ekkert annað vald á jörðinni gjört. Tilraunir aS breyta lögmáli Guðs Aðeins eitt atriði enn og vitrunin um “litla hornið” er á enda hvað einkenn- in snertir. það vald mundi “hafa í hyggju ,að l)reyta tímum og lögum.” Veraldarríkin breyta stöðuglega sínum lögum, þess vegna geta ekki þessi orð átt við þesskonar lög. Sigurvegarar breyta æfinlega lögum þeirra þjóða, sem þeir hafa sigrað. þessi spádómur getur þess vegna ekki átt við þesskonar breytingar. Ilin einu lög, sem nokkurt vald mundi “liafa í hyggju að breyta, ” eru lög Guðs, og þar eð páfakirkjan segist hafa allan myndugleika hvað trú- mál snertir-, er það ekki nema eðlilegt, að vér leitum hjá henni eftir uppfyll- ingu þessa einkennis. Og þar leitum vér ekki árangurslaust. Spádómurinn segir að hann (páfinn) myndi “hafa í •hyggju að breyta .........lögum,” en gefur ekki til kynna að honum myndi takast að koma því til leiðar. Ef hér hefði verið um manna lög að ræða, hafði hann vel ge,tað breytt þeim. Ef hér sé um lögmál lögmál Guðs að træða, getur hann ekki annað en haft í hyggju eða gjört tilraun, eða látið eins og hann væri búinn að breyta því. Lögmál Guðs er að eilífu óumbreytanlegt. Páfavaldið hefir i kenslubókum sín- um tekið annað boðorðið algjörlega úr lögmálinu og þannig greitt mynda- og líkneskjutilbeiðslunni veginn. Og með því að skifta tíunda boðorðinu í tvent halda þeir hinni upphaflega tölu boð- orðanna. “En hið djarfasta af því öllu er að það hefir breytt f jórða boðorðinu, fært úr sínum rétta stað Drottins hvíld- ardag hinn eina sanna minnisvarða hins mikla Guðs, sem nokkurn tíma hefir verið gefinn mannkyninu, og í staðinn innsett einhvem keppináut í allt öðrum tilgangi.” “Thoughts on Daniel and Re- velation.” Drotnunartími páfavaldsins Spádómurinn heldur áfram: “þeir munu honum í hendur seldir verða um eina tíð, tvær tíðir og hálfa tíð. ” Allir hinir miklu biblíuraannsóknar menn eru sammála um að þetta þýðir: . Eitt ár, tvö ár og hálft ár — þrjú og hálft ár, eða 1260 dagar. þar eð þetta er líking- arfullur spádómur verður einnig tíminn að vera líkingarfullur. I þesskonar spádómum táknar dagur ,eitt ár (4. Mós 14: 34 og Esek. 4: 6.) og 1260 dagar tákna 1260 ár. Uppfyllti nú páfavald- ið þennan spádóm hvað tímann snertir, sem það mundi fara fram ofsóknum sínum?—það gjörði. í árinu 533 var páfinn, eftir skipun Justinianusar keisara, útnefndur til að vera yfirhöfuð allra safnaðanna, og í bréfi einu til páfans útnefnir Justinian- us hann einnig til að vera “refsari allra villutrúar manna.” En páfinn gat ekki í næði byrjað þetta verk, sem honum þannig var fengið að leysa af hendi þangað til að ríki Austurgotanna væri upprætt. í 538 var þetta að mestu leyti um garð gengið. Árið 538 er þess vegna byrjun hins 1260 ára tímabils þessa spádóms, og nær það til 1798. Af- leiðing uppreistarinnar móti hinu páfa-

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.