Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.11.2018, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 15.11.2018, Qupperneq 42
Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir okkar, sonur, tengdafaðir, afi og langafi, Jón Rafns Antonsson byggingatæknifræðingur, Jakaseli 20, Reykjavík, lést í faðmi fjölskyldunnar 7. nóvember. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 19. nóvember kl. 11.00. Guðrún Clausen Sólveig Andrea Jónsdóttir Hilmir Víglundsson Svava Hróðný Jónsdóttir Stefán Jónsson Guðrún Andrea Sólveigardóttir Þorbjörn Þór Sigurðarson Svava Jónsdóttir afa- og langafabörn. Ingibjörg Bjarnadóttir (Stúlla) fædd 11. desember 1950 dáin 4. nóvember 2018. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma lést í faðmi fjölskyldu sinnar á líknardeild Landspítalans sunnudaginn 4. nóvember. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 16. nóvember kl. 13.30. Freysteinn Gíslason Ingibjörg D. Matthíasdóttir Bjarni Gíslason Sigmar Ingi Gíslason Dagmar Heiðdís Jóhannsdóttir og barnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurpáll Árnason kaupmaður og bóndi frá Lundi í Varmahlíð, lést að hjúkrunarheimilinu Boðaþingi þann 12. nóvember 2018. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju, mánudaginn 19. nóvember kl. 13.00. Kristján Páll Sigurpálsson Sigríður Halldórsdóttir Sigurbjörg Sigurpálsdóttir Sigvaldi Þorgilsson Kolbrún Sigurpálsdóttir Freysteinn Sigurðsson Sigurlaug Sigurpálsdóttir Sigurjón P. Stefánsson Árni Baldvin Sigurpálsson Harpa Jóhannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Hulda Pálmadóttir fyrrverandi læknaritari, Engjavegi 14, Ísafirði, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eyri, 30. október sl. Útför hennar verður gerð frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 17. nóvember kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á fræðslusjóð Eyrar, 156-15-380134, kt. 650914-0740. Jón Páll Halldórsson Halldór Jónsson jr. María Guðnadóttir Guðfinna Jónsdóttir Halldór Jakob Árnason Pálmi Kristinn Jónsson Jóhanna Jóhannesdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jón Rafnar Hjálmarsson fv. fræðslustjóri, Dalbraut 14, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 10. nóvember. Útförin fer fram frá Neskirkju mánudaginn 19. nóvember klukkan 13. Guðrún Ó. Hjörleifsdóttir Halldóra, Hjálmar Andrés, Hjörleifur Rafn, Oddný Sigurrós, Guðrún Helga, tengdasynir, barnabörn og langafabarn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar og amma, Ingileif Emilsdóttir Ospenesvegen 5, 6092 Fosnavåg / Noregi, lést föstudaginn 2. nóvember. Útför hennar fer fram frá Herøy kirkju Fosnavåg fimmtudaginn 15. nóvember kl. 13.00. Snorri Eyjólfsson Kristin S. Tysse Pawel Tysse Brynjólfur Snorrason Anton Ingi Snorrason og barnabörn. Kæri faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Richard Kristjánsson Boðaþingi 24, andaðist á Landspítalanum miðvikudaginn 7. nóvember. Hann verður jarðsunginn frá Seljakirkju í Reykjavík fimmtudaginn 15. nóvember klukkan 15. Blóm og kransar afþakkaðir. Guðrún Richardsdóttir Gunnar Brynjólfsson Árný Richardsdóttir Ívar Atlason Gísli Richardsson Vignir Richardsson Frosti Richardsson Auður Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Við erum mörg sem ætlum að koma fram á tónleikum í Reykholtskirkju annað kvöld og gefa vinnuna okkar því aðgangseyririnn á að ganga í nýjan sjóð sem stofnaður hefur verið til að vera ungu borgfirsku tónlistarfólki bakhjarl. Með því viljum við heiðra minningu Heimis Klemenzsonar frá Dýrastöðum í Norður- árdal sem lést með sviplegum hætti fyrr á þessu ári,“ segir Jónína Erna Arnardóttir, skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi, áður kennari við Tónlistarskóla Borgar- fjarðar. Hún kveðst hafa þekkt Heimi vel. „Heimir var nemandi minn frá því hann var sjö, átta ára, þegar hann byrjaði að læra á píanó í Varmalandsskóla. Hann var strax efnilegur og útskrifaðist með framhaldsstig 2013, og hélt þá glæsilega tónleika. Einstaka sinnum leysti hann mig líka af í píanókennslunni. Hann fór svo í í FÍH í rytmískt píanónám og var í kennaranámi þegar hann lést. Hann og kærastan hans Iðunn bjuggu um tíma á Snæfellsnesinu en voru flutt í Borgarnes og búin að eignast litla dóttur.“ Heimir lét til sín taka á tónlistarsvið- inu með margvíslegum hætti, að sögn Jónínu. Var meðleikari hjá karlakórnum Söngbræðrum og vann með öðrum tón- listarmönnum, gaf út sólóplötu og var aktívur bæði í að spila og semja. „Það kom snemma í ljós að hann gat samið, það gerði hann oft hjá mér og spilaði frumsamin verk á öllum þremur áfanga- prófunum,“ segir Jónína. „Hann var með nemendakór á Hvanneyri og hoppaði inn í starf organista í Stafholti, þegar með þurfti. Var bara mjög fjölhæfur tón- listarmaður sem dýrmætt var að eiga að og það varð sannarlega skarð fyrir skildi við fráfall hans. Við minnumst Heimis á jákvæðan hátt með því að stofna sjóð með tón- leikunum í Reykholti á morgun. Þannig verður mögulegt að styrkja tónlistarfólk á Borgarfjarðarsvæðinu og því er miða- verð kannski svolítið hærra en fólk á að venjast. Flestir sem koma fram unnu með Heimi eða tengjast fjölskyldu hans á ein- hvern hátt,“ segir Jónína. „Við erum líka búin að stofna fésbókarsíðu, hún heitir einfaldlega Minningarsjóður Heimis Klemenzsonar.“ Kirkjan verður opnuð klukkan 20 en tónleikarnir hefjast klukkan 20.30. Miða- verð fyrir fullorðna er 4.000 krónur og 1.000 fyrir 16 ára og yngri. gun@frettabladid.is Stofna sjóð til minningar um fjölhæfan listamann Tónleikar til fjáröflunar fyrir sjóð sem stofnaður er til minningar um tónlistarmanninn Heimi Klemenzson verða haldnir í Reykholtskirkju annað kvöld, föstudag. Sjóðnum er ætlað að styðja fjárhagslega við bakið á ungu og efnilegu tónlistarfólki í Borgarfirði. Heimir, Jónína og Birgir Þórisson sem er núverandi meðleikari Söngbræðra. „Við minnumst Heimis á jákvæðan hátt með því að stofna sjóð með tónleikunum í Reykholti,“ segir Jónína Erna Flytjendur á tónleikunum eru Karlakórinn Söngbræður Soffía Björg Emma Eyþórsdóttir Agnes Björgvinsdóttir Heiðmar og Jakob Borgarfjarðardætur Halli Reynis Eyrún og Tinna Viðar og Barbara Ásta Marý Uppsveitin Jónína Erna 1 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 F I m m T U D A G U r26 T í m A m ó T ∙ F r É T T A b L A ð I ð tímamót 1 5 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :4 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 6 4 -7 8 A 0 2 1 6 4 -7 7 6 4 2 1 6 4 -7 6 2 8 2 1 6 4 -7 4 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 1 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.