Fréttablaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 49
Hrund Ósk Árnadóttir óperu-söngkona ætlar að halda tónleika í Salnum á laugar-
daginn, 17. nóvember, klukkan 16.
Dagskráin nefnist Death by Verdi
og byggist á aríum úr óperum eftir
Verdi sem tvinnaðar eru saman með
frásögnum. Með Hrund Ósk leikur
Hrönn Þráinsdóttir á píanó.
„Á þessum tónleikum langar
okkur að kanna þetta ólíka landslag
impressjónisma og raunsæis í verk-
um Verdis með því að beina sjónum
að lífi og dauða kvenhetjanna sem
fjallað er um í þeim. Við skoðum
hvernig verkunum var tekið á sínum
tíma og úr hvaða bókmenntum, hug-
myndum og tíðaranda þau spretta.“
Hrund er búsett í Berlín þar sem
hún fæst bæði við óperusöng og
kennslu. Hún kveðst hafa verið
syngjandi frá því hún man eftir sér.
„Ég söng það mikið að foreldrar
mínir fengu leiða á mér og sendu mig
í kór,“ segir hún og kveðst fyrst hafa
verið í Barnakór Hallgrímskirkju
en farið að leggja stund á söng fyrir
alvöru fjórtán ára gömul þegar hún
var í Söngskólanum í Reykjavík. Ég
söng djass og blús og var í klassísku
söngnámi líka og var alltaf ákveðin
í að verða klassísk söngkona,“ rifjar
hún upp.
Eitt af kennileitunum á ferli henn-
ar er sigur í Söngkeppni framhalds-
skólanna árið 2005, þá fyrir hönd
Menntaskólans í Reykjavík. – gun
Aríur úr óperum Verdis tengdar með frásögnum
Íslenski dansflokkurinn frumsýnir á laugardaginn, 17. nóvember, tvö ný íslensk dansverk við nýja
íslenska tónlist. Yfirheiti danskvölds-
ins er Dísablót og það fer fram á Nýja
sviði Borgarleikhússins.
Fyrra verk kvöldsins er Verk nr. 1
eftir Steinunni Ketilsdóttur við tón-
list Áskels Harðarsonar. Samkvæmt
lýsingu á vef dansflokksins er það
fjarlægt og fjarrænt. Seinna verk
kvöldsins er verkið Pottþétt myrkur.
Tónlistin við það er eftir Sigur Rós og
Valdimar Jóhannsson. Þar bindur
Erna Ómarsdóttir, ásamt Valdimari
Jóhannssyni, lokahnútinn á seríu
verka um myrkrið og berskjaldaðan
mannslíkamann.
Myrkarverkin – eins og þessi dans-
verk Ernu og Valdimars kallast í heild
– voru sköpuð undir áhrifum frá því
sem var að gerast í samfélaginu.
Fyrsta verkið varð til þegar #metoo-
byltingin var sem háværust og hún
hafði því mikil áhrif á sköpun þess
sem og seinni verk seríunnar. – gun
Dísablót í
Borgarleikhúsi
Verk nr. 1 eftir Steinunni Ketilsdóttur.
Mynd/Jónatan GrétarSSon
Hrund ósk og Hrönn
beina sjónum að lífi
og dauða kvenhetj-
anna í óperum Verdis.
Fréttablaðið/SteFánÁ þessum tónleikum
langar okkur að
kanna þetta ólíka landslag
impressjónisma og raun-
sæis í verkum verdis.
Æsa Sigurjónsdóttir, dós-ent í listfræði við Háskóla Íslands, heldur hádegis-
erindi um áhrif ljósmynda í
nútímasamfélagi í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur við Tryggvagötu á föstu-
daginn, 16. nóvember. Það hefst
klukkan 12.10. Hún mun meðal
annars ræða sjónhverfingar mynda
í ljósi sýningarinnar Fjölskyldu-
myndir – sem er uppi við á safninu
og sýnir ljósmyndir Guðbjarts
Ásgeirssonar og Herdísar Guð-
mundsdóttur og afkomenda þeirra.
Ari Magg ljósmyndari ætlar að
taka þátt í samtali eftir erindið sem
fulltrúi fjölskyldunnar.
Aðgangur að safninu er ókeypis á
meðan á erindinu stendur. – gun
Áhrif ljósmynda
Mynd eftir Silju Magg sem er á
sýningunni í ljósmyndasafninu.
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | Laugardaga 11–16 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
GÖTUBARN Í
KALKÚTTA OG
REYKJAVÍK
Ævintýralegt ferðalag
ungs drengs frá Indlandi
til Íslands
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
skrifar sögu Hasims af
miklu næmi og innsæi
Saga af höfnun,
baráttuvilja og dug
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 33F i m m T U D A g U R 1 5 . n ó v e m B e R 2 0 1 8
1
5
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
4
-3
3
8
0
2
1
6
4
-3
2
4
4
2
1
6
4
-3
1
0
8
2
1
6
4
-2
F
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
1
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K