Fréttablaðið - 15.11.2018, Qupperneq 50
Tvískinnungur er
augljóslega ekki
gallalausT verk en ber með
sér marga góða kosTi.
Leikhús
Tvískinnungur
Jón Magnús Arnarsson
Borgarleikhúsið
Leikstjóri: Ólafur Egill Egilsson
Leikarar: Þuríður Blær Jóhanns-
dóttir og Haraldur Ari Stefánsson
Leikmynd og búningar: Sigríður
Sunna Reynisdóttir
Lýsing: Þórður Orri Pétursson
Tónlist: Arnar Ingi Ingason
Hljóðmynd: Garðar Borgþórsson
Leikgervi: Margrét Benediktsdóttir
Sviðshreyfingar: Katrín Ingvadóttir
Ónafngreint ungt par hittist í búningapartíi. Hann er Járn-maðurinn. Hún er Svarta
ekkjan. Þau fella hugi saman þetta
sama kvöld og þá byrjar partíið fyrir
alvöru. Knúin áfram af áfengi og
eiturlyfjum hefja skötuhjúin ferð í
óstöðvandi hringekju ofsafenginnar
ástar og fíknar. Í fyrstu er ferðalagið
sturlað spennandi en öll eftirpartí
enda, mörg ansi illa. Þá er einungis
tómið eftir. Tvískinnungur er nýtt
íslenskt leikverk eftir Jón Magnús
Arnarsson og er einnig hans fyrsta á
atvinnusviði.
Jóni Magnúsi liggur mikið á
hjarta, enda er stór hluti verksins
byggður á hans eigin reynslu, og
notast hann við mörg sagnaminni,
en sagan um Rómeó og Júlíu er
ríkjandi sem er endurtekin og snúið
á hvolf á sláandi máta. Hann vefur
saman karakterþrenningu: Járn-
manninum og Svörtu ekkjunni,
ónefndu djömmurunum og leik-
urum sem eru að segja þeirra sögu.
Hver paraeining er með sitt eigið
tjáningarform og hikar leikskáldið
ekki við að nota bundið mál. Text-
inn er hrár, mörg samtölin hnyttin
en forminu er ábótavant og sum
atriðin stirðbusaleg. Mörg ný íslensk
leikskáld eiga erfitt með að standast
freistinguna um að skrifa leikhúsið
inn í leikverk sín. Það er ekki þar
með sagt að slík aðferð geti ekki
bætt við nýrri vídd í textann en það
er afar erfitt verk. Hættan er sú að
leikskáldið fari að útskýra innihald
verksins fyrir áhorfendum frekar en
að sýna það í leik eða undirtexta. Að
sama skapi eru bæði Frankenstein og
Hulk óþarfar persónur.
Aldrei er góð vísa of oft kveðin,
í þessu tilviki er efnið hæfileikar
Þuríðar Blævar Jóhannsdóttur.
Þrátt fyrir ungan aldur og tiltölu-
lega stuttan feril á atvinnusviði er
hún ein af landsins allra hæfileika-
ríkustu leikkonum. Sviðsverund
hennar er náttúruleg, afslöppuð og
trúverðug, hvort sem hún tekst á við
lágstemmda kómík eða tryllingslegt
hádrama. Hún hefur þann kost líka
að geta verið betri en efnið sem hún
hefur úr að spila, það er einungis á
færi afar fárra.
Andspænis henni á sviðinu stend-
ur Haraldur Ari Stefánsson sem virt-
ist óstyrkur til að byrja með á frum-
sýningu en ekki er að undra miðað
við textaflóðið sem leikararnir verða
að hemja og finna réttan farveg. En
sá strekkingur mun sjatna með
hverri sýningunni. Hann naut sín
best þegar lævís húmorinn blómstr-
aði og óx fiskur um hrygg þegar líða
tók á sýninguna.
Samleikur þeirra ber líka vitni um
góða leikstjórn. Það kemur kannski
einhverjum á óvart en leikstjóraferill
Ólafs Egils er ekki ýkja langur miðað
við hversu lengi hann hefur starfað
sem leikari en á stuttum tíma hefur
hann sett sitt mark á íslenskar sviðs-
listir. Fyrir hið fyrsta á hann heiður
skilið fyrir að sinna ungum leik-
skáldum eins vel og hann hefur gert
á síðustu árum. Jón Magnús og ungu
leikararnir tveir njóta hér góðs af
reynslu hans, þó að hann eigi stund-
um erfitt með að láta brotakenndan
textann flæða nægilega vel og atriða-
skiptin eru stundum of hæg.
Stærðarinnar kaðalvefur hangir
í miðju sviðsins og endurspeglar
ágætlega þær sálarflækjur sem per-
sónur verksins eru að reyna að losa
um. Þau príla og hanga og bögglast
í böndunum, en sviðshreyfingarnar
eru í ágætum höndum Katrínar
Ingvadóttur. Stundum virkar þessi
útfærsla heftandi en stundum
hreinlega syngja atriðin af leikgleði.
Búningar Blævar bera af, þá sérstak-
lega diskópelsinn undir lokin. Litrík
leikgervi Margrétar Benediktsdóttur
styðja sýninguna vel. Tónlistarval
Arnars Inga er einkar gott en amer-
íska hetjudáðakvikmyndatónlistin
slær einhvern veginn rangan tón því
það er alltaf augljóst að parið nær
aldrei að fela sinn innri sársauka
með því að klæða sig upp sem ofur-
hetjur.
Nýjar raddir koma alltof sjaldan
fram í íslensku leikhúsi en síðustu
og komandi mánuðir boða gott. Tví-
skinnungur er augljóslega ekki galla-
laust verk en ber með sér marga góða
kosti og persónulegan tón skáldsins,
eitthvað sem hann mun vonandi
þróa betur og koma í fastara form á
komandi árum.
Sigríður Jónsdóttir
NiðursTAðA: Hrá leikhúsupplifun frá
nýju og fersku leikskáldi.
Hömlulaus og hamflett í Tvískinnungi
Þuríður Blær Jóhannsdóttir í hlutverki sínu, en hún er ein af landsins allra hæfileikaríkustu leikkonum, segir leiklistargagnrýnandi Fréttablaðsins.
Skærustu stjörnur glæpasagnaheimsins
Yfir sextíu erlendir höfundar, þar á meðal:
Quentin Bates
Val McDermid
Christopher Brookmyre
Innlendir höfundar, þar á meðal:
Yrsa Sigurðardóttir
Lilja Sigurðardóttir
Sólveig Pálsdóttir
Á dagskránni eru meðal annars pallborðsumræður og
vinnustofur með höfundum. Síðast en ekki síst verður ball
með hljómsveitinni “Fun Loving Crimewriters”
sem skipuð er glæpasagnahöfundum.
Hátíðin er öllum opin.
William Ryan
Martin Edwards
James Oswald
Ragnar Jónasson
Sjón
Óskar Guðmundsson
Nánari upplýsingar á www.icelandnoir.is Storytel er verndari glæpasagnahátíðarinnar Iceland Noir
Alþjóðlega glæpasagnahátíðin ICELAND NOIR í IÐNÓ 15.-17. nóvember
1 5 . N ó v e M B e r 2 0 1 8 F i M M T u D A G u r34 M e N N i N G ∙ F r É T T A B L A ð i ð
1
5
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:4
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
6
4
-3
8
7
0
2
1
6
4
-3
7
3
4
2
1
6
4
-3
5
F
8
2
1
6
4
-3
4
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
1
4
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K