Fréttablaðið - 30.11.2018, Blaðsíða 40
innbyggðum gufugleypi
SpAnhellubORð með
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
lOSnAðu Við hÁfinn
Þýska hönnunarfyrirtækið BORA hefur unnið til
margra verðlauna fyrir BORA spanhelluborðin sem eru
með innbyggðum gufugleypi. Sparaðu pláss njóttu
hreins lofts þegar þú eldar og losnaðu við fitu sem sest
um allt eldhús sem fylgir eldamennskunni.
ÞÝSK VeRðlAunAhönnun
Sjá myndbönd á friform.is
5 ára ábyrgð á öllum raftækjum
TÆKNIBYLTING
InnByggðuR gufugleypIR í helluBORðI.
MeIRA pláSS, engIn fItA, BetRA lOft.
fRÁbÆR
nÝjung
enginn hÁfuR
eKKeRt VeSen
Opið:
Mán. - fim. kl. 09 til 18
föstudaga kl. 09 til 17
laugardagar kl. 11 til 15
Oft getur verið vandasamt að pakka verkfærum og smíðatólum inn í gjafa-
pappír, sér í lagi ef þau koma
ekki í ferköntuðum kössum eða
töskum. Ýmsar leiðir eru færar til
að gera gjafirnar fallegar.
Til dæmis mætti nota „kara-
melluaðferðina“ á löng og mjó
verkfæri eins og skiptilykla,
skrúfjárn og þjalir. Þá er verk-
færinu rúllað inn í pappírinn og
snúið upp á hvorn enda eins og
á karamellu og bundið fyrir með
slaufu. Oft eru verkfæri beitt og
geta borast í gegnum þunnan
jólapappírinn. Því getur verið gott
að vefja þeim fyrst inn í þykkan
maskínupappír.
Stórum hlutum má pakka inn
með „pokaaðferðinni“. Þá er snið-
inn stór ferningur af gjafapappír
og lagður á borð þannig að hann
liggur eins og tígull fyrir framan
pakkarann. Svo er gjöfin sett á
miðjan ferninginn, gripið í efra
og neðra horn tígulsins og þeim
haldið uppi, gripið svo í hornin
til hliðanna þannig að verkfærið
liggi á botni „pokans“. Síðan er
pokanum lokað með slaufu.
Gjafapoka má fá í ýmsum
stærðum og um að gera að nýta
sér það. Kosturinn við gjafa-
pokana er að þeir eru afar einföld
lausn á flóknu vandamáli enda
þurfa þeir ekki að aðlagast lögun
gjafarinnar.
Ef fólki hrýs hugur við að reyna
innpökkun má líka leyfa verkfær-
inu að njóta sín og líma einfald-
lega stóra slaufu á það.
Nokkur innpökkunarráð
Hinn heimskunni sjónvarps-maður David Attenborough gaf nýlega út tvöfalda
hljómplötu sem inniheldur safn af
upptökum af tónlist frumbyggja
sem hann kynntist í vettvangs-
ferðum í Suður-Ameríku á 6. og
7. áratug síðustu aldar, snemma á
ferli sínum.
Útgefandi plötunnar segist
ætla að hrinda af stað herferð á
samfélagsmiðlum til að reyna að
tryggja Attenborough efsta sætið
á breskum vinsældalistum fyrir
þessi jól. Takist það verður hinn 92
ára gamli Attenborough sá elsti til
að klófesta toppsætið. Tom Jones
á núverandi aldursmetið, en hann
var 68 ára gamall þegar hann náði
þessu sæti.
Lagið sem á að reyna að koma í
efsta sætið heitir La Llegada, eða
Koman, og það var tekið upp í
Paragvæ.
Platan heitir David Atten-
borough – My Field Recordings
from Across the Planet og þar er
bæði að finna upptökur af tónlist
frumbyggja og frásagnir frá Atten-
borough sjálfum. Platan kom út
seint í nóvember.
Jólaplata frá
Attenborough
Það vilja flestir hafa jólatré heima hjá sér um jólin til að fá ekta hátíðarblæ á heimilið.
En jólatré geta verið plássfrek
og fasteignaverð er hátt, þannig
að það hafa ekki allir pláss fyrir
tré heima hjá sér. Hér eru þrjár
einfaldar hugmyndir að óhefð-
bundnum jólatrjám sem taka lítið
pláss.
Það er hægt að halla viðarplötu
upp að veggnum og festa nagla
á plötuna þannig að hægt sé að
strengja jólaseríu fram og til baka
yfir hana og skapa þannig hið
keilulaga form jólatrésins með
ljósum. Svo er hægt að raða pökk-
unum fyrir framan plötuna. Passið
samt að þetta skapi enga eldhættu.
Það er líka hægt að líma barr-
greinar á vegginn til að líkja eftir
tré. Takið langa spýtu, ákveðið
hvað „tréð“ á að vera svert neðst
og sagið svo afganginn af spýtunni
þannig að hver spýta sé styttri en
sú sem kom á undan. Límið svo
barrgreinarnar á spýturnar og
festið spýturnar á vegginn með
málningarlímbandi.
Síðast en ekki síst er hægt að
nota krítartöflu, teikna á hana
jólatré og festa jólaljós á „tréð“
með límbandi.
Jólatré í
plássleysi
Það er misjafnt hvað fólk hefur
mikið pláss fyrir jólatré. NORDIC
PHOTOS/GETTY
16 KYNNINGARBLAÐ 3 0 . N óv E m B E R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RjóLAGjöf fAGmANNSINS
3
0
-1
1
-2
0
1
8
0
5
:1
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
9
8
-E
9
B
0
2
1
9
8
-E
8
7
4
2
1
9
8
-E
7
3
8
2
1
9
8
-E
5
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K