Fréttablaðið - 18.01.2019, Page 1

Fréttablaðið - 18.01.2019, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 5 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 1 8 . J A N Ú A R 2 0 1 9 Fréttablaðið í dag SKOÐUN Katrín Atladóttir skrifar um skíðasvæðin á höfuðborgarsvæðinu sem hafa setið á hakanum frá því í hruninu. 11 SPORT Strákarnir okkar verða í sterkum milliriðli á HM í hand- bolta. 15 MENNING Goddur fræðir fólk um líf og störf Einars Þorsteins. 20 GLAMOUR Brúni liturinn hefur verið áberandi í kvenna- og herratískunni í vetur. Glamour skoðar hvernig hægt er að klæða sig í þessum vinsælasta lit ársins. 24 PLÚS 2 SÉRBLÖÐ l FÓLK l  GREIÐSLULEIÐIR *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 FYRIR SVANGA FERÐALANGA *0,5 l gos í plasti frá Ölgerðinni. Tilbúin vara, ekki hægt að breyta. BEYGLA OG GOS* COMBO VERÐ: 499KR SAMGÖNGUMÁL „Ég dreg ekkert úr mikilvægi verkefnanna sem um er rætt en það verður að ganga úr skugga um að fjármögnun þeirra og skuld- bindingar sem ríkissjóður tekst á hendur standist þau vinnubrögð sem við höfum einsett okkur að vinna eftir,“ segir Þorsteinn Víglundsson, áheyrnar- fulltrúi Viðreisnar í fjárlaganefnd, um hugmyndir um veggjöld. Sú útfærsla hefur verið rædd að ríkis- sjóður taki lán upp á 60-70 milljarða til þess að flýta samgönguframkvæmdum. Lánið yrði greitt niður með tekjum af veggjöldum. Þá eru uppi hugmyndir um stofnun opinbers hlutafélags um framkvæmdirnar. Þorsteinn vill svör frá fjármálaráðu- neytinu um hvort þetta standist lög um opinber fjármál. Málið var rætt á fundi fjárlaganefndar í gær. Formleg fyrir- spurn verður send ráðuneytinu eftir frekari umfjöllun í nefndinni. „Ég taldi mikilvægt að við fengjum svör við því hvernig rétt væri að halda á þessu þannig að þetta samrýmdist lögunum. Að við sköpum ekki hættu- legt fordæmi sem gangi gegn markmiði laganna,“ segir Þorsteinn og bendir á að fjármálaáætlun sé sett fram til að ramma inn ríkisfjármálin. Þegar fram komi hugmyndir um umfangs- mikil verkefni sem fjármagna eigi með öðrum hætti, en ríkissjóður beri ábyrgð á, hljóti það að falla undir fjármála- áætlun ríkisstjórnar á hverjum tíma. „Það má aldrei verða svo að Alþingi geti farið fram hjá lögum um opinber fjármál með því að ohf-væða skuldir.“ Samkvæmt heimildum blaðsins komu fram efasemdir um lögmæti fyrirhugaðrar fjármögnunarleiðar í kynningu sem formaður stýrihóps um fjármögnun samgöngukerfisins hélt nýverið fyrir stjórnarflokkana. Var hópnum falið að stilla upp til- lögum um gjaldtöku, meta tekjur af henni og lagaleg skilyrði. Samflokksmaður Þorsteins, Hanna Katrín Friðriksson, lýsti sams konar efasemdum í grein í blaðinu í gær. Markmið laga um opinber fjármál væri að tryggja heildstæða stefnumörkun í opin- berum fjármálum og tryggja vand- aðan undirbúning áætlana og meðferð opinbers fjár. „Hvernig passar kúvending stjórnvalda með tilheyrandi risalántöku hér inn?“ spurði Hanna Katrín. – sar Spyr hvort útfærsla veggjalda standist lög Þingmenn Viðreisnar vilja fá úr því skorið hvort útfærsla á veggjöldum þar sem framkvæmdir yrðu fjármagnaðar með lánum standist lög um opinber fjármál. Ekki megi fara fram hjá lögunum með því að ohf-væða skuldir. Kalla fyrirhugaða lántöku „kúvendingu stjórnvalda“. Það voru reynsluboltarnir og elstu leikmenn íslenska landsliðshópsins, Arnór Þór Gunnarsson og Björgvin Karl Gúst- avsson, sem reyndust hetjur íslenska liðsins í tveggja marka sigri strákanna okkar á Makedóníu í gær. Sigurinn tryggir að Ísland mætir sterkustu þjóðum heims í milliriðlinum í stað þess að leika í Forsetabikarnum. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP SJÁVARÚTVEGUR „Það þarf að taka þetta mál föstum tökum. Það er margt í húfi, meðal annars orðspor okkar sem fiskveiðiþjóðar sem bless- unarlega tók þá ákvörðun að vera með sjálfbærar veiðar og byggja á vísindalegri nálgun,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, um þá niðurstöðu Ríkis- endurskoðunar að eftirlit Fiski- stofu með brottkasti sé bæði ómarkvisst og veikburða. Stjórnsýsluúttekt Ríkis- endurskoðunar á eftirliti Fiskistofu var kynnt í gær. Þar kemur meðal annars fram að vegna takmark- aðs eftirlits stjórnvalda með brottkasti og tak- markaðra rannsókna á umfanginu sé vart tilefni til fullyrðinga atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis- ins um að brottkast sé óverulegt. Það er sérstaklega gagnrýnt að mat ráðuneytisins byggist meðal annars á lýsingum hagsmunaaðila. Við upp- lýsingaöflun vegna úttektarinnar hafi komið fram skýrar áhyggjur af því að brottkast ætti sér stað í talsverðum mæli. Þorgerður segir ábyrgð útgerð- armanna mikla og þeir verði að standa undir henni. „Lang- flestir gera það en SFS verður hér að sýna afgerandi forystu og taka hressilega á þessu þó að einhverjir innan þeirra raða verði missáttir. Þetta er ekki einkamál útgerðar- manna og sjómanna. Langt í frá, þótt ríkis- stjórnin vilji vinna málið þannig.“ – sar Ábyrgð útgerðar sé mikil LÍFIÐ Það hefur líklega ekki farið fram hjá mörgum að knattspyrnu- kappinn Rúrik Gíslason er genginn út. Lífið leyfir lesendum sínum að kynnast þessari nýjastu tengdadóttir Íslands, fyrirsætunni Nathaliu Soli- anis, sem er á mála hjá IMG Models og hefur komið fram í auglýs- ingaherferðum fyrir verslanir á borð við Topshop og Asos. Hún hóf fyrirsætu- ferilinn aðeins 15 ára gömul, í Japan.   – be / sjá síðu 26  Rúrik Gísla á fast með fyrirsætu Fleiri ljósmyndir frá leiknum er að finna á +Plússíðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Fréttablaðs- appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS Sætur sigur 1 8 -0 1 -2 0 1 9 0 5 :0 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 1 1 -1 4 C 8 2 2 1 1 -1 3 8 C 2 2 1 1 -1 2 5 0 2 2 1 1 -1 1 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.