Fréttablaðið - 18.01.2019, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 18.01.2019, Blaðsíða 2
Veður Víða skúrir eða él, en hægviðri og birtir til NA-lands er líður á daginn. Hiti 0 til 5 stig syðst, en frost annars 1 til 10 stig, kaldast í innsveitum nyrðra. SJÁ SÍÐU 18 Gluggarnir þvegnir á nýju ári HEFUR ÞÚ PRÓFAÐ 30% MEIRA MAG N TILBOÐ HOLTA KJÚKLINGABOLLUR? Það er ekki beinlínis árennilegt verk að þrífa alla gluggana á tónlistarhúsi Íslendinga í miðborginni, Hörpu, en þessi herramaður tók að sér í gær að hefja það risavaxna verkefni. Vonandi var tónlistin í eyrum mannsins hvetjandi, því gluggarnir eru nokkuð margir talsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK ÍTALÍA Silvio Berlusconi, hinn 82 ára gamli fyrrverandi forsætisráð­ herra Ítalíu, tilkynnti í gær um að hann myndi bjóða sig fram í Evr­ ópuþingskosningunum. Kosning­ arnar fara fram í maí. Þetta er fyrsta skiptið sem Berlusconi býður sig fram í kosningum frá því hann var rekinn úr efri deild ítalska þingsins og honum bannað að gegna slíku embætti vegna sakfellingar í spill­ ingarmáli. Banninu var aflétt í maí. „Á þessum háa aldri hef ég ákveð­ ið, vegna mikillar ábyrgðartilfinn­ ingar sem ég finn fyrir, að fara til Evrópu. Þar er skortur á djúpri heimssýn,“ sagði Berlusconi. Samkvæmt Reuters mun það líklega vekja mikla athygli á flokki hans, Forza Italia, að hafa Berlusc­ oni efst á lista. Hins vegar sé ekki öruggt að hann muni verja miklum tíma í Brussel þar sem algengt er að ítalskir stjórnmálamenn sækist eftir sæti á Evrópuþinginu en nýti svo nýtilkomin ítök sín til þess að hafa áhrif á ítölsk stjórnmál. – þea Berlusconi í framboð Silvio Berlusconi. NORDICPHOTOS/AFP Á þessum háa aldri hef ég ákveðið, vegna mikillar ábyrgðar- tilfinningar sem ég finn fyrir, að fara til Evrópu. Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætis- ráðherra Ítalíu DÓMSMÁL Réttargæslumaður brota­ þola í kynferðisbrotamáli fékk aðeins dæmdan tæpan helming upphæðar samkvæmt málskostn­ aðaryfirliti sínu. Nefnd um dómara­ störf vísaði kvörtun lögmannsins frá nefndinni fyrir ári en álitið er nýbirt. Formaður Lögmannafélags Íslands (LMFÍ) segir of algengt að dæmdur málskostnaður sé ekki í samræmi við tímaskýrslur lög­ manna. Í málinu sem um ræðir fékk réttar gæslumaðurinn rúmar 500 þúsund krónur en krafðist 1,1 milljónar króna samkvæmt tíma­ skýrslu. Ekki er að finna heimild fyrir réttargæslumenn til að kæra ákvörðunina til æðra dómstigs og leitaði hann því til nefndarinnar. Nefndin taldi að um dómsathöfn væri að ræða og það félli utan vald­ sviðs hennar að fjalla um málið. Fréttablaðið hefur að undan­ förnu rætt við ýmsa lögmenn um dæmdan málskostnað. Þeir báðust undan því að ræða um efnið undir nafni en höfðu flestir sömu sögu að segja, í fjölmörgum tilvikum væri málskostnaður langt undir þeirri vinnu sem innt var af hendi. Þá finnst mörgum skorta upp á að jafnræðis sé gætt þar sem það þekk­ ist vart að reikningar matsmanna eða dómtúlka séu véfengdir. Þá sé oft mismunandi eftir bakgrunni dómara hvort mark sé tekið á tíma­ skýrslum eður ei. „Þetta mál hefur margoft verið rætt innan raða lögmanna og LMFÍ hefur beint því til dómstóla að gæta í það minnsta samræmis við málskostnaðarákvarðanir í sam­ bærilegum málum,“ segir Berglind Svavarsdóttir, formaður LMFÍ. Þessi umræða var mjög hávær fyrir nokkrum árum og beindu dómarar þá þeim tilmælum til lög­ manna að láta tímaskýrslur fylgja. Berglind segir að lögmenn hafi í flestum tilfellum tekið það til sín en horfi nú upp á það að skýrslurnar séu virtar að vettugi. „Lögmenn hafa gagnrýnt það að svo virðist sem hentugleiki dómara hverju sinni ráði hvort tímaskýrsla sé lögð til grundvallar málskostn­ aðarákvörðun eða ekki. Ef fyrir liggur tímaskýrsla, og dómari byggir ekki á henni, þá er eðlileg krafa að hann rökstyðji af hverju frá henni er vikið,“ segir Berglind. Formaðurinn segir að dæmi séu um það að aðili vinni dómsmál að fullu en sitji síðan uppi með kröfu frá lögmanni sínum þar sem dæmd­ ur málskostnaður var svo lágur. Innan LMFÍ er vinna í gangi vegna margra kvartana sem félaginu hafa borist frá lögmönnum vegna þess hve dæmdur kostnaður er lágur. joli@frettabladid.is Lögmenn vilja að þeim verði dæmd hærri laun Dæmi eru um að þeir sem vinna dómsmál að fullu sitji uppi með háa reikninga frá lögmönnum þar sem dæmdur málskostnaður er of lágur. Formaður Lög- mannafélagsins vill að dómarar rökstyðji ef vikið er frá tímaskýrslum lögmanna. Lögmönnum gremst að ekki sé fallist á tímaskýrslur þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Þetta mál hefur margoft verið rætt innan raða lögmanna. Berglind Svavarsdóttir, formaður Lögmannafélagsins REYKJAVÍK Samþykkt var í borgarráði í gær að fara þess á leit að Vatnsmýrin fái póstnúmerið 102. Lagt er til að sá hluti póstnúmers 101 sem er sunnan Hringbrautar breytist í 102. Mörk við póstnúmer 107 og 105 haldist óbreytt. Borgarfulltrúarnir Marta Guðjóns­ dóttir, Sjálfstæðisflokki, og Vigdís Hauksdóttir, Miðflokki, mótmæltu fyrirhuguðum breytingum. Segja að með þessu sé farið gegn vilja íbúa „og sannar eina ferðina enn að allt tal meirihlutaflokkanna í borgarstjórn um íbúalýðræði er innantómt orða­ gjálfur á tyllidögum“, segir í bókun af fundinum. Aðrir fulltrúar Sjálfstæðis­ flokks tóku ekki undir bókunina. Sjálf er Marta skráð til heimilis í Skerjafirði og virð­ ist þvert um geð að flytja brátt úr 101 í 102. – ósk Vill ekki úr 101 Marta Guðjónsdóttir. 1 8 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 8 -0 1 -2 0 1 9 0 5 :0 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 1 1 -1 9 B 8 2 2 1 1 -1 8 7 C 2 2 1 1 -1 7 4 0 2 2 1 1 -1 6 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.