Fréttablaðið - 18.01.2019, Page 4

Fréttablaðið - 18.01.2019, Page 4
PÁSKATILBOÐ Smiðjuvegi 2, Kópavogi - (við hliðina á Bónus) - Sími 554 0400 112.425 Verð áður 149.900 Útsalan er byrjuð 25-50% afsláttur af flestum vörum Sjá nánar á grillbudin.is GrillbúðinOpið virka daga 11-18 Laugardaga 11-16 DÓMSMÁL Sindri Þór Stefáns son var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fang­ elsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir stórfellda þjófnaði úr gagna­ verum í Reykjanesbæ og Borgarnesi. Sindri fékk þyngstan dóm þeirra sjö sem ákærðir voru í málinu en dómurinn telur sannað að hann hafi lagt á ráðin, skipulagt innbrotin og fengið meðákærðu til liðs við sig. Sjálfur játaði Sindri aðild að inn­ brotunum tveimur við aðalmeðferð málsins en neitaði að hafa átt þátt í skipulagningu þeirra. Ekki er lagður trúnaður á framburð ákærðu fyrir dómi um útlendan skipuleggjanda og framburður þeirra hjá lögreglu og dómi talinn ýmist villandi eða fjarstæðukenndur. Matthías Jón Karlsson fékk næst­ þyngsta dóminn, eða tveggja og hálfs árs fangelsi, en hann játaði ein­ göngu aðild að þjófnaði úr gagna­ veri Advania. Þá hlaut Hafþór Logi Hlynsson 20 mánaða dóm og Pétur Stanislav Karlsson og Viktor Ingi Jónasson 18 mánaða fangelsisdóm. Ívar Gylfason, sem gegndi starfi öryggisvarðar þegar þjófnaður í gagnaver Advania var framinn, var dæmdur í fimmtán mánaða skil­ orðsbundið fangelsi fyrir hlutdeild í því broti með upplýsingagjöf til hinna dómfelldu um gagnaverið. Þá fékk Kjartan Sveinarsson sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir hlutdeild með því að koma á sambandi milli öryggis­ varðarins og hinna dómfelldu. Öllum sjö var gert að greiða Ad­ vania 33 milljónir í skaðabætur. – aá Sakfellt á línuna í bitcoin-máli Sindri Þór ásamt verjanda sínum, Þorgils Þorgilssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR KJARAMÁL „Gangurinn er þannig að við ætlum að hittast aftur á þriðju­ daginn. Eitt af því sem menn munu ræða er hvort hann sé nægur eða hvort það sé líklegra til árangurs að vísa þessu til ríkissáttasemjara. Það verður væntanlega eitt af því sem formennirnir munu ræða við sitt fólk núna um helgina,“ segir Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri Starfs­ greinasambandsins (SGS). Samninganefnd SGS, sem saman­ sett er af formönnum þeirra sextán félaga sem eru í samflotinu, kom saman til fundar í gær til að fara yfir stöðuna. Flosi segir að farið hafi verið yfir alla þá vinnu sem fram hafi farið í ýmsum undirhópum þar sem SGS vinni með Eflingu og að viðræðunefndin hafi gert grein fyrir viðræðunum við Samtök atvinnu­ lífsins. „Þetta þokast áfram og í mörgum þessara undirhópa hefur farið fram mjög gagnleg vinna. Það standa samt ennþá út af borðinu mjög stór mál. Það er til dæmis ekki mikið byrjað að ræða launaliðinn,“ segir Flosi. Efling og Verkalýðsfélag Akra­ ness drógu sig út úr samfloti SGS skömmu fyrir jól, vísuðu deilu sinni til ríkissáttasemjara og tóku upp samstarf við VR. Verkalýðsfélag Grindavíkur bættist svo í hópinn í síðustu viku. Þá hefur Framsýn á Húsavík sagst ætla að vísa deilunni til ríkissáttasemjara ef ekki kemst skriður á viðræðurnar. – sar Framhaldið hjá SGS skýrist eftir helgi Samninganefnd SGS fundaði frá klukkan 10 til 17 í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR VIÐSKIPTI Kosin verður ný stjórn í smásölurisanum Högum á hluthafa­ fundi í dag. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er nokkur kurr meðal smærri hluthafa Haga vegna þess hve lítið samráð við hluthafa til­ nefningarnefnd félagsins hafði við vinnu sína, en hún lét duga að ráð­ færa sig við þá sex stærstu. Niður­ staða tilnefningarnefndar er þó ekki bindandi og úrslitavaldið er í höndum hluthafa. Meðal frambjóðenda er Jón Ásgeir Jóhannesson, fjárfestir og stofnandi Bónuss, en hann var meðal þeirra sem ekki hlutu náð fyrir augum tilnefningarnefndar­ innar. Auk Jóns Ásgeirs eru ný í framboði þau Eiríkur Jóhannsson, forstjóri Slippsins á Akureyri, Krist­ ján Óli Níels Sigmundsson bifreiða­ stjóri, Katrín Olga Jóhannesdóttir, formaður Viðskiptaráðs, og Sandra Hlíf Ocares lögfræðingur. Búist er við góðri mætingu á fund­ inn og einboðið að nokkrir fram­ bjóðenda taki til máls. – ósk Kosið í stjórn Haga í dag  Katrín Olga Jóhannesdóttir Jón Ásgeir Jóhannesson. Kurr er meðal smærri hluthafa Haga. LAXELDI Atvinnuþróunarfélag Eyja­ fjarðar(AFE) kannar nú áhuga á laxeldi í firðinum og hefur stefnt saman fræðimönnum um áhrif lax­ eldis á byggðir og lífríki til fundar á morgun, laugardag. Skipulagsstofnun samþykkti á síðasta ári mat Akvafuture ehf. á umhverfisáhrifum allt að 20 þúsund tonna laxeldis í sjókvíum í Eyjafirði. Því er líklegt að laxeldi hefjist í Eyja­ firði á næstu árum en hugmyndir hafa verið uppi um að fisknum verði slátrað í Ólafsfirði. „Markmið fundarins er að fræða almenning, íbúa við Eyjafjörð, um fiskeldi og hvaða tækifæri og ógnan­ ir fylgja mismunandi aðferðum við fiskeldi og þá sérstaklega með fókus á Eyjafjörð,“ segir Dagbjört Pálsdótt­ ir, formaður AFE og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri. „Til þess höfum við fengið fræðimenn og fagfólk sem fyrirlesara sem tala þá út frá rannsóknum og gögnum.“ Þorleifur Eiríksson líffræðingur er einn þeirra sem halda erindi á fund­ inum. Hann segir mikinn úrgang fylgja laxeldi í sjókvíum. „Öllum húsdýrum fylgir að frá þeim kemur úrgangur. Fiskeldisfyrirtæki verða því að grípa til aðgerða og láta ekki úrganginn safnast upp. Ég mun því fara yfir hvaða áhrif slíkt eldi hefur á lífríki og til hvaða aðgerða er hægt að grípa,“ segir Þorleifur. „Ástæða þess að AFE vill fara þá leið að fræða almenning um eldis­ mál og Eyjafjörð er sú að það er vilji ráðamanna að leita til íbúa um hugsanlegt eldi, ekki ætti að stuðla að eldi nema íbúar svæðisins væru því fylgjandi,“ bætir Dagbjört við. „AFE er ekki að taka afstöðu heldur að vinna fyrir sveitarfélögin að vett­ vangi til að upplýsa íbúa svo þeir séu betur í stakk búnir til að geta haft upplýsta skoðun á mögulegu eldi.“ sveinn@frettabladid.is Eyfirðingar skoða möguleika á að starfrækja laxeldi í firðinum Fundur Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar um laxeldi í firðinum er til að upplýsa íbúa um kosti og galla eldis- ins. Bæjarfulltrúi vill að íbúar séu fylgjandi slíkum hugmyndum áður en lengra verði haldið. Skipulagsstofn- un hefur samþykkt matsáætlun um 20 þúsund tonna eldi. Mikill úrgangur frá slíku eldi, segir líffræðingur. Fundurinn á Akureyri fer fram í Hofi. Þar fá íbúar tækifæri til að kynna sér mögulegt laxeldi í firðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Dagbjört Pálsdóttir, bæjar- fulltrúi Hugmyndir hafa verið uppi um að fisknum verði slátrað í Ólafsfirði. 1 8 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 8 -0 1 -2 0 1 9 0 5 :0 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 1 1 -2 D 7 8 2 2 1 1 -2 C 3 C 2 2 1 1 -2 B 0 0 2 2 1 1 -2 9 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.