Fréttablaðið - 18.01.2019, Síða 22
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Pay, sem hefur verið í loftinu í rúmt ár, virkar eins og raf-rænt veski og heldur utan
um öll greiðslukort notenda óháð
banka. Forritið tekur við öllum
greiðslukortum sem gefin eru út
á Íslandi og stendur viðskipta-
vinum allra fjarskiptafyrirtækja
landsins til boða,“ segir Gunnar
Hafsteinsson, framkvæmdastjóri
Farsímagreiðslna, útgefanda Pay.
Hann segir unnið að því að koma
appinu inn í posakerfið til að geta
jafnframt boðið upp á snertilausar
greiðslur. „Pay er þó ekki ætlað
að keppa við snertilausu greiðslu-
kortin sem bankarnir bjóða upp
á enda standa þau vel fyrir sínu.
Við leggjum megináherslu á þá
virðisaukandi þjónustu sem bætist
við en þegar borgað er með appinu
fá notendur kvittanirnar beint í
appið og geta þannig haft þær allar
á einum stað og fylgst nákvæmlega
með útgjöldum sínum ásamt því að
leggja sitt af mörkum til að draga
úr pappírsnotkun. Þá erum við að
hýsa alls kyns vildar-, starfsmanna-
og nemendakort sem veita afslætti
af ýmsu tagi. Eins erum við farin að
bjóða upp á miðasölu auk þess sem
ýmislegt fleira er í farvatninu,“ upp-
lýsir Gunnar.
Hann segir um að ræða kerfi
sem geri söluaðilum kleift að vera
í betra sambandi við viðskiptavini
og geri það að verkum að þeir geta
umbunað þeim með tilboðum og
vildarkortum svo dæmi séu nefnd.
Eins auðveldar það viðskiptavinum
að halda utan um punktasöfnun
sína og leysir ýmiss konar klippi-
og afsláttarkort af hólmi. Kerfið er
gagnvirkt og gerir það að verkum að
auðveldlega er hægt að sjá hversu
mörg „klikk“ vantar upp á fríðindi
en það býr um leið til hvata til að
halda tryggð við tiltekinn söluaðila.
Gunnar segir reynsluna erlendis
sýna að til að snjallsímagreiðslur
virki þurfi að tengja við þær ein-
hvers konar vild. „Vinsælasta
greiðsluappið í Bandaríkjunum
er til dæmis ekki Apple Pay eins
og margir myndu halda heldur
Starbucks því þar er punktasöfn-
unin tengd beint við greiðsluna og
notendur sjá ávinninginn svart á
hvítu.“
Pay er sótt í App Store eða
Google Play en með því er hægt
að greiða með símanum á yfir 300
sölustöðum um allt land, og fer
þeim sífellt fjölgandi. Greiðslan
fer þannig fram að viðskiptavinur
velur það kort sem hann vill nota
í appinu og skannar QR-kóðann
á vörunni. Hann staðfestir síðan
upphæð og greiðslu með fingra-
fari eða PIN-númeri og þannig er
öryggið tryggt.
Aðspurður segir Gunnar
þjónustu sem þessa standa og falla
með örygginu og hefur frá upphafi
verið lögð rík áhersla á að tryggja
það með hjálp lögfræðinga og sér-
fræðinga á sviði persónuverndar.
Lausnin var hönnuð frá upphafi
með nýju persónuverndarlöggjöf-
ina (GDPR) til hliðsjónar.
Gunnar segir forritið í stöðugri
þróun og að ýmsar nýjungar muni
líta dagsins ljós á næstunni.
Fólkið að baki Pay. Fremri vör frá vinstri: Haukur Örn Harðarson, Halldór Vilhjálmsson, Gunnar Hafsteinsson, Sveinbjörg Pétursdóttir og Guðni Páll Guðnason. Aftari röð frá vinstri: Júlíus Pétur Guð-
johnsen, Andri Valur Guðjohnsen og Ólafur Fannar Heimsson. Pay er ekki ætlað að keppa við snertilausu greiðslukortin sem bankarnir bjóða upp á enda standa þau vel fyrir sínu. MYNDIR/ERNIR
Með Pay er hægt að greiða með símanum á yfir 300 sölustöðum um allt land. Forritið er í stöðugri þróun og ýmsar tækninýjungar eru á döfinni.
Við leggjum megin-
áherslu á þá virðis-
aukandi þjónustu sem
bætist við þegar borgað
er með appinu.
Gunnar Hafsteinsson
2 KYNNINGARBLAÐ 1 8 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RGREIÐSLULEIÐIR
1
8
-0
1
-2
0
1
9
0
5
:0
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
1
1
-3
2
6
8
2
2
1
1
-3
1
2
C
2
2
1
1
-2
F
F
0
2
2
1
1
-2
E
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K