Fréttablaðið - 18.01.2019, Side 23

Fréttablaðið - 18.01.2019, Side 23
Hvað er Landsbankinn kominn langt inn í framtíðina þegar kemur að nýjum greiðslulausnum? Landsbankinn er kominn mjög langt í þessum efnum. Við leggjum mikla áherslu á að bjóða upp á nýjar greiðslulausnir og að gera viðskiptavinum kleift að tengjast greiðslulausnum sem aðrir bjóða upp á. Kortaapp Landsbankans, sem var kynnt í október 2018, var fyrsta appið á Íslandi sem gerir viðskiptavinum kleift að nota símann til að greiða fyrir vörur og þjónustu í snertilausum posum um allan heim. Kortaappið virkar aðeins fyrir Android-símtæki þar sem Apple hefur ekki opnað fyrir notkun Apple Pay á Íslandi. Við reiknum með að hægt verði í fram- tíðinni að greiða með iOS sím- tækjum. Hvernig hefur nýjum greiðsluleiðum verið tekið af neytendum? Viðskiptavinir hafa tekið mjög vel í þessar nýjungar eins og sést til dæmis á því að fljótlega eftir að við byrjuðum að bjóða upp á snertilaus greiðslukort urðu snerti- lausar greiðslur mjög algengar. Stefna okkar er skýr; við ætlum að vera fljót að bjóða viðskiptavinum upp á nýjar, hraðvirkar og öruggar greiðslulausnir. Er fólk að lenda í vandræðum vegna nýrra greiðsluleiða, í til dæmis flug- vélum sem taka ekki lengur við pen- ingum, og á ferðalögum til útlanda þar sem greiðslukort eru að verða úrelt og símgreiðslur að taka við? Við höfum ekki orðið vör við að viðskiptavinir bankans hafi lent í vandræðum vegna þeirra. Það þýðir auðvitað ekki að allt hafi gengið fullkomlega hnökralaust fyrir sig í öllum tilvikum. Það má kannski benda á að ekki er alltaf hægt að nota eina elstu „greiðslu- lausnina“ sem er í notkun, peninga. Við höfum til dæmis heyrt að fólk hafi ekki getað notað peninga til að greiða fyrir vörur og þjónustu í flugvélum. En það er auðvitað mál sem er á milli viðkomandi söluaðila og viðskiptavinarins. Hugsa fjármálastofnanir nógu vel um eldra fólkið, 60 ára og eldri, sem eru sannarlega góðir neytendur en ekki allir mjög tæknivæddir? Já, ég myndi segja það. Nýju greiðslulausnirnar og aukin sjálfs- afgreiðsla þýðir ekki að lokað sé fyrir aðra þjónustu. Landsbankinn er með langstærsta útibúanetið á Íslandi og öflugt þjónustuver og við erum boðin og búin við að aðstoða viðskiptavini, meðal annars við að læra á nýjar lausnir. Eru nýjar greiðsluleiðir vistvænni, eins og þegar kemur að minni plast- framleiðslu? Landsbankinn útbýr í öllum tilvikum „alvöru“ greiðslukort en býður ekki upp á svokölluð sýndar- kort, það er kort sem er í raun aðeins kortanúmer og tilheyrandi upplýsingar. Með tíð og tíma verður plastið óþarft. Við sjáum til dæmis að í netverslun er ekki þörf á plastkorti heldur nægir korthafa að stimpla inn greiðslukortaupp- lýsingarnar. Hverjir eru kostirnir þegar kemur að öryggi? Í þeim lausnum sem Lands- bankinn býður upp á er öryggi í miklum forgangi og það á við um flestar aðrar leiðir sem eru í boði. Nýju greiðsluleiðirnar eru jafnvel öruggari en eldri greiðsluleiðir. Við innskráningu kortanúmera greiðslukorta í kortaapp Lands- bankans verður til dæmis til rafrænt einkenni (e. token). Sú þróun eykur öryggi korthafa þar sem ekki er hægt að komast yfir raunverulegt kortanúmer þegar greiðsla er framkvæmd með símanum. Hvað er PSD2-tilskipun og hvaða áhrif hefur hún á íslenska neyt- endur? Tilskipunin mun opna fyrir möguleika á meiri samkeppni í greiðslulausnum og í kjölfarið veita neytendum fjölbreytileika og öryggi. Landsbankinn hefur alltaf lagt mikið upp úr öryggi viðskipta- vina og verða gerðar miklar kröfur um það í nýjum lausnum. Örugg og þægilegri framtíð Íslendingar taka framtíðinni fagnandi þegar kemur að nýjum greiðsluleiðum. Guðlaug A. Guð- mundsdóttir segir markmið Landsbankans að bjóða nýjar, hraðvirkar og öruggar greiðsluleiðir. Guðlaug A. Guð- mundsdóttir er sérfræðingur í viðskiptalausn- um hjá Lands- bankanum. MYND/ERNIR „Ég fer yfirleitt í bankann í appinu“ Sæktu Landsbanka- appið fyrir iPhone og Android í App Store eða Google Play KYNNINGARBLAÐ 3 F Ö S T U DAG U R 1 8 . JA N ÚA R 2 0 1 9 GREIÐSLULEIÐIR 1 8 -0 1 -2 0 1 9 0 5 :0 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 1 1 -2 3 9 8 2 2 1 1 -2 2 5 C 2 2 1 1 -2 1 2 0 2 2 1 1 -1 F E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.