Fréttablaðið - 18.01.2019, Page 24
Hjá Arion banka viljum við skapa góða upplifun sama hvaða dreifileið viðskipta-
vinir nota og að þeir hafi sem mest
frelsi til að velja þá leið og lausn
sem hentar þeim. Við höfum lagt
mikla áherslu á stafrænar lausnir á
undanförnum árum og bæði hafa
viðskiptavinir okkar tekið þeim
mjög vel auk þess sem bankinn
fékk fern erlend verðlaun á síðasta
ári fyrir þessar stafrænu lausnir
sem þykja skara fram úr í alþjóð-
legum samanburði,“ segir Bern-
hard Þór Bernhardsson, sviðsstjóri
vöruþróunar, verðlagningar og
stafrænnar framtíðar Arion banka.
Hann segir í auknum mæli áherslu
vera lagða á farsímalausnir. „Það
mun verða mikil aukning í fjölda
notenda meðan við sjáum að þeim
sem nota netbanka hefur fækkað.“
Eitt app – margir möguleikar
Einkunnarorð Arion banka er
þægilegri bankaþjónusta. „Í því
felst að einfalda þjónustuna eins
og kostur er og við höfum þróað
appið okkar á þann veg að þar sé
stöðugt boðið upp á fleiri val-
kosti. Við viljum að appið verði
verkfærið sem fólk notar til að
stýra öllum sínum viðskiptum. Í
því felst að geta leyst ólíkar þarfir
svo sem sparnað, lántökur eða
greiðslur. Hér áður voru bankar
erlendis gjarnan með mörg öpp
fyrir mismunandi vörur en við
sjáum að verið er að hverfa frá
þeirri stefnu og horfa meira til
aðila eins og Uber, Booking og
fleiri sem eru með eina lausn og
eitt viðmót fyrir alla.“
Fjölbreyttar greiðslulausnir
Bernhard segir mikla grósku í
þróun á greiðslulausnum enda
stöðugt að koma fram nýjar
lausnir. Þó séu ákveðnar lausnir
með mjög sterka stöðu.
„Innan bankans hefur verið
lögð mikil vinna í að greina hvaða
greiðslulausnir muni þjóna við-
skiptavinum best. Við viljum að
það sé einfalt að taka þær í notkun
og helst bara með einfaldri upp-
færslu á Arion appinu. Að auki
Arion appið mun verða
stjórnstöð heimilisfjármála
Mikil þróun hefur átt sér stað í fjártækni á undanförnum árum bæði sem snýr að greiðslulausnum
og annarri þjónustu fjármálafyrirtækja. Arion banki mun kynna fjölmargar nýjungar á næstunni.
Bernhard Þór
Bernhardsson,
sviðsstjóri
vöruþróunar,
verðlagningar
og stafrænnar
framtíðar Arion
banka, segir
mikla tækniþró-
un hafa átt sér
stað í greiðslu-
lausnum.
MYND/ANTON
BRINK
þarf að vera hægt að nota lausnina
úti um allan heim og hún þarf
að vera einföld og vandræðalaus
í notkun. Svo er að sjálfsögðu
mikilvægt að lausnin sé örugg og
að viðskiptavinir geti treyst henni
auk þess sem hún þarf að vera í
stöðugri þróun svo tryggt sé að
hún uppfylli kröfur morgundags-
ins,“ lýsir Bernhard.
Farsímagreiðslur breiðast út
Í dag eru flestir með snertilaus kort
sem eru einföld, þægileg og örugg
og Bernhard bendir á að farsíma-
lausn þurfi því að bjóða eitthvað
meira en það. „Við sjáum að á
Norðurlöndunum eru sterkar inn-
lendar greiðslulausnir til staðar
sem nýtast vel en þrátt fyrir það
eru stóru alþjóðlegu lausnirnar
svo sem Apple Pay og Google Pay
að sækja á. Það má ekki sleppa því
að minnast á Kína í þessu sam-
hengi en farsímagreiðslulausnir
þar eru orðnar mjög umfangsmikl-
ar og færast hratt út um Suðaustur-
Asíu. Það sem einkennir kínversku
lausnirnar er hversu vel þær eru
tengdar við aðra þjónustu og það
er það sem við höfum að leiðar-
ljósi við framtíðarþróun á okkar
appi.“
Arion banki mun á næstu
mánuðum bjóða upp á farsíma-
greiðslulausnir en þróun þeirra
er langt komin. „Þessar lausnir
verða hluti af Arion appinu eða
tengjast því með þeim hætti að
einfalt verður að virkja þær út frá
appinu.“
Auðvelda lífið
Auk þessara þátta leggur Arion
banki áherslu á að auðvelt sé
að nýta tengdar þjónustur. Til
dæmis er orðið mjög einfalt fyrir
viðskiptavini bankans að dreifa
reikningum, hvort sem það eru
kreditkortareikningar eða reikn-
ingar vegna ófyrirséðra útgjalda.
Með sama hætti er einfalt fyrir við-
skiptavini að breyta heimildum
hvort sem er á kreditkortum eða
debetreikningum eða fá aðra
fjármögnun. „Arion banki býður
upp á svokölluð Núlán í því skyni
að fjármagna lægri fjárhæðir sem
kalla ekki á íbúðalán en fólk vill
greiða niður á lengri tíma en hefð-
bundnar yfirdráttarheimildir,“
upplýsir Bernhard.
„Viðskiptavinir munu í auknum
mæli vilja vita sína stöðu og að
hverju þeir ganga. Til dæmis að
vita fyrir fram hvaða lánamögu-
leika þeir hafa. Innan skamms
mun Arion banki veita viðskipta-
vinum slíkar upplýsingar í appi
auk fleiri nýjunga sem kynntar
verða á næstu vikum.“
Við höfum lagt
mikla áherslu á
stafrænar lausnir á
undan förnum árum.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir
Jóhann Waage markaðsfulltrúi Fréttablaðsins
Sími: 550-5656 / johannwaage@frettabladid.is
ENDURSKOÐUN
OG BÓKHALD
Veglegt sérblað Fréttablaðsins um Endurskoðun
og bókhald kemur út miðvikudaginn 23. janúar
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
4 KYNNINGARBLAÐ 1 8 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RGREIÐSLULEIÐIR
1
8
-0
1
-2
0
1
9
0
5
:0
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
1
1
-1
E
A
8
2
2
1
1
-1
D
6
C
2
2
1
1
-1
C
3
0
2
2
1
1
-1
A
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K