Fréttablaðið - 18.01.2019, Síða 30

Fréttablaðið - 18.01.2019, Síða 30
Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Bæði íslenskar sjónvarps-stöðvar, norrænar og breskar sýna um þessar mundir alls kyns heimildarþætti um ofþyngd, afleiðingar og hvern- ig hægt er að vinna bug á henni. Bretar hafa miklar áhyggjur af því hversu hratt þjóðin þyngist ekki síður en Bandaríkjamenn og alls kyns fræðsluþættir um áhrif ofþyngdar hafa litið dagsins ljós. Í grein sem birtist á vef jyl- lands-posten.dk er fjallað um ýmiss konar kúra sem hafa verið í gangi. Sagt er frá því að Mið- jarðarhafsmataræði sé í fyrsta sæti á meðal yfir fjörutíu kúra hjá bandaríska vefmiðlinum usnews. com. Þar kemur fram að Mið- jarðarhafskúrinn sé áhrifaríkur og heilsusamlegur auk þess sem auðvelt er að fara eftir honum. Í þessu mataræði er áherslan á ávexti, grænmeti, fisk og ólífuolíu Besta mataræðið er að finna í löndum við Miðjarðarhafið Margir virðast uppteknir af breyttu mataræði þessa dagana. Það er reyndar árlegt í janúar. Fjölmiðlar vita af þessum áhuga og sýna heimildarþætti um fólk sem hefur náð árangri. Omega 3 er nauðsynleg fita í mataræðinu. Omega fæst úr feitum fiski, lár- perum, hnetum og fleiru. Fiskur ætti að vera oftar á borðum enda hollur. Fólki er bent á að horfa til Grikklands, Spánar, Ítalíu og Frakklands þegar kemur að hollu og góðu mataræði. Þar er fiskur og grænmeti í hávegum haft. Þótt Ítalir borði mikið pasta og pitsur þá telst mataræði þeirra harla gott og hollt. sem þykir skynsamlegt að mati sérfræðinga. Kílóin geta læðst aftan að fólki smám saman og erfitt getur verið að losa sig við þau. Í boði eru alls kyns kúrar, steinaldarmataræði, paleo, lágkolvetniskúrar og ýmiss konar detox safakúrar svo eitthvað sé nefnt. Það eru þó ekki þessir kúrar sem eru efst á lista U.S. News Health Report. Ef kílóin eiga að hrynja fljótt af fólki á heilsusamlegan hátt ætti það að horfa til Miðjarðarhafs- mataræðis. Það eru engin bönn í þessu mataræði heldur einungis sú regla að borða meira af ávöxtum og grænmeti en skera niður rautt kjöt, sykur og mettaða fitu. Sér- fræðingar segja að þetta sé sá kúr sem auðveldast sé að fylgja og gera að lífsstíl sínum. Jyllands Posten spurði nær- ingarsérfræðing við háskólann í Kaupmannahöfn, Arne Astrup, um Miðjarðarhafsmataræði. Hann svaraði að gott mataræði eins og tíðkast við Miðjarðarhafið geti haft fyrirbyggjandi áhrif á sykur- sýki og hjartasjúkdóma. „Þetta er mataræði sem auðvelt er að fara eftir og hefur enga öfga. Jafn- vægið skiptir máli í mataræðinu, ekki boð og bönn líkt og tíðkast í mörgum öfgakúrum. Það er heldur engin lausn að svelta sig til að létt- ast. Flestir þola allan mat og það eru ekki heilbrigðissjónarmið að taka út fæðutegundir líkt og kjöt, mjólkurvörur eða annað,“ segir hann. „Fjölbreytt mataræði er best. Ef þú tekur út allt kjöt þarftu að taka prótín og járn með öðrum hætti.“ Í öðru sæti listans yfir bestu kúrana er DASH-kúrinn. Hann er hannaður til að koma í veg fyrir sykursýki og of háan blóðþrýsting. Engu að síður býður hann fjöl- breytt mataræði sem byggist á ávöxtum og grænmeti en jafnframt er pláss fyrir steik eða kjúkling. Í DASH er lögð áhersla á ávexti, grænmeti, heilkorn, fitulaust kjöt, fitu- og sykurskertar mjólkurvörur. Fólk sem tileinkar sér DASH mat- aræði verður þó að sleppa öllum sykruðum drykkjum og sælgæti. Þá þarf að forðast saltaðar matvörur. Danski næringarsérfræðingur- inn segir að mataræði sem Norður- landaþjóðir hafa alist upp við geti líka verið ákjósanlegt. Hér áður fyrr borðuðu þessar þjóðir mikið af káli, rótargrænmeti og feitum fiski. Hugmyndin er eiginlega sú sama og við Miðjarðarhafið, fólk borðar mat úr eigin héraði fyrir utan að Skandinavar notuðu fremur rapsolíu en ólífuolíu. Ný- norræn matargerð þykir til dæmis afar ákjósanleg fyrir hollan lífsstíl. Nýlega líkti alþjóða heilbrigðis- stofnunin WHO norrænum mat við þann sem tíðkast við Mið- jarðarhafið. Í nýnorrænum matar- stíl er hollur og góður matur sem er eldaður frá grunni. Skammtar eru ekki stórir. Þótt mataræðið sé mikilvægt er ekki síður nauðsynlegt að hreyfa sig í að minnsta kosti tvo og hálfan tíma á viku. Hreyfingin getur þó verið margvísleg, allt frá göngutúr eða garðvinnu upp í erfiða leik- fimitíma. „Hafa ber í huga að það passa ekki endilega sömu kúrar fyrir alla. Fólk er misjafnt. Það góða við Miðjarðarhafsfæði er að það hentar flestum,“ segir Arne og bendir á nokkrar góðar reglur í mataræðinu. 1 Veljið fjölbreyttan mat og fæðu- tegundir eftir þeirra árstíðum. 2 Veljið mat úr heimabyggð eða héraði. 3 Leggið áherslu á gott hráefni, ávexti, grænmeti, fisk og kjöt. 4 Notið ferskar kryddjurtir til að bragðbæta matinn. 5 Borðið minna af rauðu kjöti og veljið ávallt fersk og óunnin mat- væli. Evonia er hlaðin bæti- efnum sem næra hárið og gera það gróskumeira. Myndirnar hér til hliðar sýna hversu góðum árangri er hægt að ná með Evonia. Evonia www.birkiaska.isFyrir Eftir Evonia eykur hárvöxt með því að veita hárrótinni næringu og styrk. Gott mataræði eins og tíðkast við Miðjarðarhafið getur haft verndandi áhrif á sykursýki og hjartasjúk- dóma. „Þetta er mat- aræði sem auðvelt er að fara eftir og hefur enga öfga. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R 1 8 -0 1 -2 0 1 9 0 5 :0 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 1 1 -4 B 1 8 2 2 1 1 -4 9 D C 2 2 1 1 -4 8 A 0 2 2 1 1 -4 7 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.