Fréttablaðið - 18.01.2019, Qupperneq 30
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Bæði íslenskar sjónvarps-stöðvar, norrænar og breskar sýna um þessar
mundir alls kyns heimildarþætti
um ofþyngd, afleiðingar og hvern-
ig hægt er að vinna bug á henni.
Bretar hafa miklar áhyggjur af
því hversu hratt þjóðin þyngist
ekki síður en Bandaríkjamenn og
alls kyns fræðsluþættir um áhrif
ofþyngdar hafa litið dagsins ljós.
Í grein sem birtist á vef jyl-
lands-posten.dk er fjallað um
ýmiss konar kúra sem hafa verið
í gangi. Sagt er frá því að Mið-
jarðarhafsmataræði sé í fyrsta
sæti á meðal yfir fjörutíu kúra hjá
bandaríska vefmiðlinum usnews.
com. Þar kemur fram að Mið-
jarðarhafskúrinn sé áhrifaríkur
og heilsusamlegur auk þess sem
auðvelt er að fara eftir honum.
Í þessu mataræði er áherslan á
ávexti, grænmeti, fisk og ólífuolíu
Besta mataræðið er að finna
í löndum við Miðjarðarhafið
Margir virðast uppteknir af breyttu mataræði þessa dagana. Það er reyndar árlegt í janúar.
Fjölmiðlar vita af þessum áhuga og sýna heimildarþætti um fólk sem hefur náð árangri.
Omega 3 er nauðsynleg fita í mataræðinu. Omega fæst úr feitum fiski, lár-
perum, hnetum og fleiru. Fiskur ætti að vera oftar á borðum enda hollur.
Fólki er bent á að horfa til Grikklands, Spánar, Ítalíu og Frakklands þegar
kemur að hollu og góðu mataræði. Þar er fiskur og grænmeti í hávegum haft.
Þótt Ítalir borði mikið pasta og pitsur þá telst mataræði þeirra harla gott og hollt.
sem þykir skynsamlegt að mati
sérfræðinga.
Kílóin geta læðst aftan að fólki
smám saman og erfitt getur verið
að losa sig við þau. Í boði eru alls
kyns kúrar, steinaldarmataræði,
paleo, lágkolvetniskúrar og ýmiss
konar detox safakúrar svo eitthvað
sé nefnt.
Það eru þó ekki þessir kúrar sem
eru efst á lista U.S. News Health
Report. Ef kílóin eiga að hrynja
fljótt af fólki á heilsusamlegan hátt
ætti það að horfa til Miðjarðarhafs-
mataræðis. Það eru engin bönn í
þessu mataræði heldur einungis sú
regla að borða meira af ávöxtum
og grænmeti en skera niður rautt
kjöt, sykur og mettaða fitu. Sér-
fræðingar segja að þetta sé sá kúr
sem auðveldast sé að fylgja og gera
að lífsstíl sínum.
Jyllands Posten spurði nær-
ingarsérfræðing við háskólann í
Kaupmannahöfn, Arne Astrup,
um Miðjarðarhafsmataræði. Hann
svaraði að gott mataræði eins og
tíðkast við Miðjarðarhafið geti
haft fyrirbyggjandi áhrif á sykur-
sýki og hjartasjúkdóma. „Þetta er
mataræði sem auðvelt er að fara
eftir og hefur enga öfga. Jafn-
vægið skiptir máli í mataræðinu,
ekki boð og bönn líkt og tíðkast í
mörgum öfgakúrum. Það er heldur
engin lausn að svelta sig til að létt-
ast. Flestir þola allan mat og það
eru ekki heilbrigðissjónarmið að
taka út fæðutegundir líkt og kjöt,
mjólkurvörur eða annað,“ segir
hann. „Fjölbreytt mataræði er best.
Ef þú tekur út allt kjöt þarftu að
taka prótín og járn með öðrum
hætti.“
Í öðru sæti listans yfir bestu
kúrana er DASH-kúrinn. Hann er
hannaður til að koma í veg fyrir
sykursýki og of háan blóðþrýsting.
Engu að síður býður hann fjöl-
breytt mataræði sem byggist á
ávöxtum og grænmeti en jafnframt
er pláss fyrir steik eða kjúkling.
Í DASH er lögð áhersla á ávexti,
grænmeti, heilkorn, fitulaust kjöt,
fitu- og sykurskertar mjólkurvörur.
Fólk sem tileinkar sér DASH mat-
aræði verður þó að sleppa öllum
sykruðum drykkjum og sælgæti. Þá
þarf að forðast saltaðar matvörur.
Danski næringarsérfræðingur-
inn segir að mataræði sem Norður-
landaþjóðir hafa alist upp við geti
líka verið ákjósanlegt. Hér áður
fyrr borðuðu þessar þjóðir mikið
af káli, rótargrænmeti og feitum
fiski. Hugmyndin er eiginlega
sú sama og við Miðjarðarhafið,
fólk borðar mat úr eigin héraði
fyrir utan að Skandinavar notuðu
fremur rapsolíu en ólífuolíu. Ný-
norræn matargerð þykir til dæmis
afar ákjósanleg fyrir hollan lífsstíl.
Nýlega líkti alþjóða heilbrigðis-
stofnunin WHO norrænum mat
við þann sem tíðkast við Mið-
jarðarhafið. Í nýnorrænum matar-
stíl er hollur og góður matur sem er
eldaður frá grunni. Skammtar eru
ekki stórir.
Þótt mataræðið sé mikilvægt er
ekki síður nauðsynlegt að hreyfa
sig í að minnsta kosti tvo og hálfan
tíma á viku. Hreyfingin getur þó
verið margvísleg, allt frá göngutúr
eða garðvinnu upp í erfiða leik-
fimitíma.
„Hafa ber í huga að það passa
ekki endilega sömu kúrar fyrir
alla. Fólk er misjafnt. Það góða
við Miðjarðarhafsfæði er að það
hentar flestum,“ segir Arne og
bendir á nokkrar góðar reglur í
mataræðinu.
1 Veljið fjölbreyttan mat og fæðu-
tegundir eftir þeirra árstíðum.
2 Veljið mat úr heimabyggð eða
héraði.
3 Leggið áherslu á gott hráefni,
ávexti, grænmeti, fisk og kjöt.
4 Notið ferskar kryddjurtir til að
bragðbæta matinn.
5 Borðið minna af rauðu kjöti og
veljið ávallt fersk og óunnin mat-
væli.
Evonia er hlaðin bæti-
efnum sem næra hárið
og gera það gróskumeira.
Myndirnar hér til hliðar
sýna hversu góðum árangri
er hægt að ná með Evonia.
Evonia
www.birkiaska.isFyrir Eftir
Evonia eykur
hárvöxt með því
að veita hárrótinni
næringu og styrk.
Gott mataræði
eins og tíðkast við
Miðjarðarhafið getur
haft verndandi áhrif á
sykursýki og hjartasjúk-
dóma. „Þetta er mat-
aræði sem auðvelt er að
fara eftir og hefur enga
öfga.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R
1
8
-0
1
-2
0
1
9
0
5
:0
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
1
1
-4
B
1
8
2
2
1
1
-4
9
D
C
2
2
1
1
-4
8
A
0
2
2
1
1
-4
7
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K