Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.01.2019, Qupperneq 35

Fréttablaðið - 18.01.2019, Qupperneq 35
Halda til Kölnar með bros á vör Leikmenn íslenska liðsins réðu sér vart fyrir kæti þegar leiknum lauk í gær. Þrátt fyrir brösuga byrjun á leiknum þar sem Ísland átti erfitt í sóknarleiknum tókst ungu liði Íslands að snúa leiknum sér í hag í síðari hálfleik. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Tilboðsblöð og nánari upplýsingar má finna á reykjavik.is/sala Tindstaðir - landspilda Landspilda til sölu Reykjavíkurborg býður til sölu 32 hektara landspildu við mörk Reykjavíkur og Kjósarhrepps á milli bæjanna Morastaða og Miðdals í Kjósarhreppi. Spildan er gróið land og úthagi. Hún er í dag í útleigu til hestabeitar með ótímabundnum samningi með þriggja mánaða uppsagnarfresti. Tilboðsfrestur er til kl. 14.00 miðvikudaginn 23. janúar 2019. Fleiri myndir frá leik Íslands í gær er að finna á +Plús- síðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta- blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS Milliriðill 1 Króatía 4 Frakkland 3 Þýskaland 3 Spánn 2 Ísland 0 Brasilía 0 Milliriðill 2 Danmörk 4 Svíþjóð 4 Noregur 2 Ungverjaland 1 Egyptaland 1 Túnis 0 HANDBOLTI Það er ljóst að erfitt verkefni bíður íslenska landsliðsins í handbolta í milliriðlunum í Köln. Ísland fylgir Króatíu og Spáni upp úr B-riðlinum og verður í riðli 1 ásamt ríkjandi heimsmeisturum Frakk- lands, Þýskalandi sem varð heims- meistari árið 2007 og Brasilíu. Ísland fer án stiga inn í milli- riðlana eftir tap gegn Króatíu og Spánverjum líkt og Brasilía og eru möguleikarnir á því að komast í undanúrslitin sjálf því litlir en þetta gefur ungu liði Íslands tækifæri til að spreyta sig gegn bestu þjóðum heims. Franska landsliðið hefur verið eitt allra besta handboltalið heims frá aldamótum. Alls níu stórmóta- titlar og tvö Ólympíugull frá árinu 2000, þar af eitt Ólympíugull eftir sigur á Íslandi í úrslitaleik í Peking sumarið 2008. Lykilmaðurinn í flestum af þessum liðum og einn besti handboltamaður allra tíma, Nikola Karabatic, er búinn að ná sér af meiðslum og var kallaður inn í landsliðið á ný sem nægir til að gera franska landsliðið að einu af sigur- stranglegustu liðum mótsins. Þýska landsliðið hefur tekið miklum framförum undanfarin ár og aðeins þrjú ár eru liðin síðan Dagur Sigurðsson stýrði því til sig- urs á Evrópumótinu. Á heimavelli eru Þjóðverjar til alls líklegir eins og þeir sýndu gegn liði Frakka þar sem þeir voru einfaldlega grát- lega óheppnir að taka ekki sigur og fara með fullt hús stiga í milli- riðlana. Brasilíu tókst að komast inn í milliriðlana með sigrum á Rússlandi og Serbíu og er þetta fjórða heims- meistaramótið í röð þar sem Brasilía fer upp úr riðlinum. Þetta verður í sjötta sinn sem Ísland og Brasilía mætast á vellinum og hefur Brasilía aðeins unnið einn leik til þessa. Stefán Árnason, álitsgjafi Frétta- blaðsins, tók undir það aðspurður að íslenska liðið myndi njóta góðs af því að leika í milliriðlunum. „Það er verið að búa til nýtt landslið til næstu ára og að fá þessa stórleiki í milliriðlinum gæti skipt ótrúlega miklu máli. Þetta veitir þeim reynslu sem Forsetabikarinn hefði ekki gefið okkur. Þetta gæti orðið gríðarlega þýðingarmikið og hjálpað íslenskum handbolta síðar meir. Guðmundur hefur verið óhræddur við að senda menn inn og það eru allir að öðlast meiri og meiri reynslu,“ sagði Stefán. Þegar liðið er komið áfram upp úr riðlinum og í milliriðlana hefur því tekist að ná markmiði sínu. Fyrir vikið telur Stefán að liðið geti betur notið þess að fara inn í næstu leiki sem fara fram í Köln. „Þetta mun þroska þá og gefa þeim heilmikið. Þeir fara inn í þessa leiki í raun án pressu, nú er búið að ná inn í milliriðilinn sem var mark- miðið fyrir mót og þeir geta nú notið þess að spila keppnisleiki við bestu leikmenn heims. Þú kaupir ekki þessa reynslu og það er ekki hægt að búa hana til, eina leiðin er að hoppa út í djúpu laugina.“ Þá gæti Ísland með hagstæðum úrslitum annarra liða komið sér í baráttuna um sjöunda sætið sem veitir þátttökurétt á Ólympíuleik- unum 2020 í Tókýó. – kpt Með sterkustu liðum heims í milliriðlunum ÍSHOKKÍ Íslenska íshokkílands- liðið skipað piltum undir tvítugu mátti sætta sig við  naumt  tap fyrir Tyrkjum í Skautahöllinni í gær. Var þetta lokaleikur Íslands í riðlinum og lauk honum með 4-2 sigri Tyrkja sem innsigluðu sigur- inn á lokasekúndum leiksins þegar Ísland skipti markmanninum út fyrir sóknarmann í leit að jöfn- unarmarkinu. Ísland var þegar búið að leika tvo leiki, gegn Ástralíu og Taívan, og vinna einn fyrir leikinn gegn Tyrklandi. Verðlaun sigurvegar- ans í gær voru að komast áfram í undan úrslit 3. deildar. Tyrkir komust yfir í 1. og 2. leik- hluta í gær með mörkum frá Hakan Salt en Heiðar Kristveigarson náði að svara um hæl fyrir Ísland og var staðan því jöfn fyrir lokaleikhlut- ann. Þar skoruðu Tyrkir snemma og innsigluðu sigurinn á lokasek- úndunum. – kpt Naumt tap gegn Tyrklandi   Það var ekkert gefið eftir á ísnum í Skautahöllinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15F Ö S T U D A G U R 1 8 . J A N Ú A R 2 0 1 9 1 8 -0 1 -2 0 1 9 0 5 :0 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 1 1 -2 3 9 8 2 2 1 1 -2 2 5 C 2 2 1 1 -2 1 2 0 2 2 1 1 -1 F E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.