Fréttablaðið - 18.01.2019, Blaðsíða 40
LEIKRIT
Núna! 2019
HHHHH
Borgarleikhúsið
Sumó eftir Hildi Selmu Sigberts-
dóttur
Þensla eftir Þórdísi Helgadóttur
Stóri-Björn og kakkalakkarnir
eftir Matthías Tryggva Haraldsson
Leikarar: Ebba Katrín Finnsdóttir,
Hannes Óli Ágústsson, Haraldur Ari
Stefánsson, Vala Kristín Eiríksdóttir
og Þuríður Blær Jóhannsdóttir
Leikstjórn: Kristín Jóhannesdóttir
Leikmynd og búningar: Stígur
Steinþórsson
Lýsing: Þórður Orri Pétursson
Tónlist: Garðar Borgþórsson
Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen og
Garðar Borgþórsson
Leikgervi: Guðbjörg Ívarsdóttir
Leikfélag Reykjavíkur hélt upp á 122
ára afmælið sitt síðastliðinn föstu-
dag með því að frumsýna ekki bara
eitt heldur þrjú ný íslensk leikverk
eftir upprennandi leikskáld; Sumó
eftir Hildi Selmu Sigbertsdóttur,
Þenslu eftir Þórdísi Helgadóttur og
Stóra-Björn og kakkalakkana eftir
Matthías Tryggva Haraldsson í leik-
stjórn Kristínar Jóhannesdóttur.
Stuðningur við íslensk leikskáld
hefur verið takmarkaður síðastliðin
misseri en núna er kjörið tækifæri
borið á borð til að sjá hvað yngri
kynslóðin hefur upp á að bjóða.
Leikverkin þrú eru gífurlega ólík
en eiga það öll sameiginlegt að leika
sér að forminu, bera með sér keim
af tilraunastarfsemi og lituð af stíl-
bragði höfundanna. Þetta eru góðir
forboðar í fyrstu leikritum.
Sumó eftir Hildi Selmu byrjar
kvöldið og fjallar um sumar-
bústaðar ferð sem fer fljótlega
úr böndunum. Persónurnar eru
kannski svolítið klisjukenndar
en þessi beitta ádeila umturnast
á áhugaverðan hátt, snýr upp á
væntingar áhorfenda og vekur upp
fjölbreyttar spurningar.
Þensla eftir Þórdísi gerist í tölu-
vert dannaðri aðstæðum þar sem
fjórir einstaklingar mætast í lekk-
eru eftirpartíi í höfuðborginni.
Samræður, sem þróast of oft út í
einræður, milli karaktera eru svo-
lítið stirðbusalegar og bera keim af
prósabakgrunni höfundar. Aftur á
móti er hugmyndin smellin og leik-
verkið blómstrar með hnyttnum
innskotum á borð við: „Hlusta. Við
ætlum að hlusta á krókódílana sem
Agnes keypti fyrir lífeyrissparnað-
inn okkar.“
Síðasta verkið, Stóri-Björn og
kakkalakkarnir eftir Matthías
Tryggva, fer á enn aðrar slóðir,
nú alveg inn í súrrealíska hugar-
heima aðalpersónunnar sem liggur
saman vöðluð í sinni eigin óánægju,
klámvædd og ómöguleg. Óheft
ímyndunarafl höfundar fær hér að
leika lausum hala þar sem óvænt
uppbrot í framvindu og texta koma
sífellt á óvart.
Hugvitsamlegt er að nota nánast
sömu leikarana í öllum verkunum
og sinnir leikhópurinn allur þessu
krefjandi verkefni vel. Þrátt fyrir
að leika einungis í Þenslu þá er
Katla Margrét eftirminnileg í hlut-
verki aðþrengdu eiginkonunnar
sem ákveður að rækta krókódíla í
stofunni heima hjá sér. Hannes Óli
laumast á milli atriða þangað til
hann springur út í síðasta verkinu
þar sem allir hæfileikar hans fá
að blómstra, lokaatriðið er hreint
út sagt stórkostleg upplifun. Þur-
íður Blær sannar enn og aftur
hversu fjölhæf hún er á sviði enda
alveg jafn örugg í hlutverki ungrar
móður á menntaveginum og orð-
ljóts kakkalakka. Haraldi Ara hefur
vaxið ásmegin á þessu leikári,
smáatriðavinna hans í miðverkinu
og líkamsbeiting hans í því síðasta
eru í toppklassa. Vala Kristín hefur
sjaldan verið betri, þá sérstaklega í
Sumó þar sem frammistaða hennar
er stundum óbærilega fyndin og
einlæg. Ebba Katrín heldur áfram
að stíga sín fyrstu skref á atvinnu-
sviðinu og uppsker ágætlega, þá
sérstaklega í síðasta verkinu, en var
svolítið úr takti við hina leikarana í
fyrra hlutverki sínu.
En þvílík gjöf fyrir þessi nýju
leikskáld að njóta listrænna krafta
Kristínar sem sýnir þessum nýju
textum ekki einungis virðingu
heldur gæðir þá lífi í samvinnu við
leikarana. Gætt er að smáatriðum
en allar ákvarðanir eru teknar til
þess að láta textana njóta sín. Stígur
Steinþórsson finnur afburðasnjalla
lausn fyrir leikmyndina sem hentar
bæði einstökum leikverkum og
tengir þau öll saman. Litla snún-
ingssviðið knýr leikverkin áfram og
gefur þeim áhugaverða dýpt. Bún-
ingahönnun hans er einnig í takt
við tilraunakennt innihald leik-
ritanna þar sem sköpunargleðin og
húmorinn fá að njóta sín. Guðbjörg
Ívarsdóttir töfrar líka fram frumleg
leikgervi, þá sérstaklega hárhönnun
kvennanna í síðasta verkinu.
Leikverkin þrjú í Núna! 2019 eru
áminning um hvað spennandi ný
list getur gert fyrir andann. Þau eru
alls ekki gallalaus en enginn stekkur
fram fullskapaður á svið, vinna leik-
skáldsins er endalaus lærdómur.
Áhorfandinn fer endurnærður út
úr leikhúsinu og hlakkar til að fara
í næsta skipti. Nú er lag að leikhús-
gestir sýni þessum ungu höfundum
stuðning í verki, taki smá áhættu og
kaupi miða núna á Núna! 2019.
Sigríður Jónsdóttir
NIÐURSTAÐA: Einstakt tækifæri til
að gægjast inn í framtíðina.
Í upphafi var orðið …
Leikverkin þrjú í Núna! 2019 eru áminning um hvað spennandi ný list getur gert fyrir andann, segir gagnrýnandinn.
SETUSTOFAN
Guðmundur Oddur Magnús-son – Goddur – verður með leiðsögn og spjall á sýning-
unni Safnið á röngunni með Einari
Þorsteini í Hönnunarsafni Íslands,
Garðatorgi 1, á morgun, laugardag,
klukkan 13.
Goddur tók fjölda viðtala við
arkitektinn Einar Þorstein Ásgeirs-
son (1942-2015) og fáir þekkja líf
hans og störf betur, að sögn Sigríð-
ar Sigurjónsdóttur, forstöðumanns
Hönnunarsafnsins.
„Ári áður en Einar dó færði hann
Hönnunarsafninu að gjöf allt stúd-
íóið sitt. Þar með voru dagbækur,
módel, ljósmyndir, málverk, skissu-
bækur, húsgögn og fleira. Hann
henti engu og hann var alltaf að.
Mörg verkin eru á pappír og mjög
mikið er af módelum, bæði arki-
tektamódelum og fjölflötungum,
sem hann hafði mikinn áhuga á.
Hann vann ekkert í tölvu, fannst
hann ekkert fá út úr því en starfaði
um langt skeið með myndlistar-
manninum Ólafi Elíassyni, meðal
annars við hönnun glerhjúps tón-
listarhússins Hörpu.“ Sigríður segir
sýninguna hafa verið vel sótta, ekki
síst af nemendum á öllum skóla-
stigum. – gun
Goddur fræðir fólk um líf og störf Einars Þorsteins
Arkitektinn og listamaðurinn Einar Þorsteinn henti engu og hann var alltaf að.
1 8 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R20 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
1
8
-0
1
-2
0
1
9
0
5
:0
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
1
1
-2
D
7
8
2
2
1
1
-2
C
3
C
2
2
1
1
-2
B
0
0
2
2
1
1
-2
9
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K