Stjarnan - 01.12.1937, Side 1

Stjarnan - 01.12.1937, Side 1
STJARNAN DESEMBER, 1937 LUNDAR, MAN. Andrez Perez ÞaÖ gleður mig að geta sagt ykkur frá lítt {>ektu hetjunni í Mexico, Andrez Perez, fyrver- andi veitingamanni. Hann var þræll syndar- innar, en nú er hann áhugasamur starfsmaður Drottins. Hann fann frelsara sinn fyrir 12 árum síðan, er hann las kristilegt blað, og síðan hefir hann starfað með óþreytandi áhuga, þrátt fyrir veika heilsu og aðrar hindranir. Kona hans bað óaflátanlega fyrir honum áður en hann snerist. Eftir að hann hætti við veitingahúsið varð hann formaður í nárnu þar sem hann fékk frí á laugardögum. En hann var samt ekki vel ánægður, því honum fanst Guð kalla sig til að starfa beinlínis til eflingar Guðs ríkis. En eins og Móses forðum afsak- aði hann sig með því að hann væri ekki fær um það, því hann gat hvorki lesið né skrifað, og heilsa hans var eyðilögð af drykkjuskap. Stríð hans við sjálfan sig um þetta efni endaði þegar eldur eyðilagði námuna, þar sem hann hafði unnið fyrir góðu kaupi. Þá var það að Andrez Perez ásetti sér að fara út og selja bækur, en það var erfitt, eins og hann segir sjálfur. “Hvernig átti eg að selja bækur, þegar eg gat ekki lesið sjálfur? Hvernig átti eg að mæla með þekn við mentaða menn? Hvernig gat eg skrifað niður nöfn þeirra sem pöntuðu, fyrst eg gat ekki skrifað mitt eigið nafn? Ó, það var svo erfitt. En hann hafði tekið ákvörðun sína. Hann hafði fundið Jesúm, sem frelsaði hann frá syndinni, og hann hafði knýjandi löngun til að hjálpa öðrum að finna frelsarann, svo hann .tók þá litlu peninga sem hann hafði og fór til borg- arinnar Jalapa. Hann tók 12 ára gamla dótt- ur sína með sér til að skrifa niður pantanirnar. Innan skamrns hafði hann eytt öllum pen- ingum sínum. Þau höfðu engan mat, og hann hafði ekkert að senda heim til konu sinnar, sem beið þess með eftirvæntingu að heyra frá hon- um og bað stöðugt fyrir honurn og starfi hans. Andrez Perez og litla stúlkan hans voru heila nótt á bæn. Næsta dag seldi hann 3 bækur og fékk þær allar útborgaðar, svo hann gat sent konu sinni 15 pesos, og hafði nóg eftir fyrir nauðsynjar sínar og litlu stúlkunnar. Hann segir sjálfur: “Þegar eg hafði engin ráð, þá sýndi Guð sinn mikla mátt og kærleika í því að hjálpa mér. Vegsamað sé hans nafn. Eg lofaði honum svo lengi sem eg lifði skyldi eg flytja boðskapinn, þrátt fyrir mína veiku heilsu, fátækt og aðra erfiðleika, og einnig með hans hjálp kenna börnunn mínum að vera trúfastir hermenn Krists, svo þegar eg að síðustu legði niður vopnin, að eg þá fyrir hans náð, gæti með Páli postula sagt: “Eg hefi barist góðri bar- áttu.” Hann berst góðri baráttu trúarinnar, því þótt hann verði að liggja í rúminu svo mánuð- um skifti, þá hefir hann þó selt 30,000 pesos virði af bókum í þessi síðastliðin 12 ár, og yfir 100 manns gleðjast i frelsi Guðs barna fyrir áhrif þessa manns, sem lifir og starfar til að leiða aðra til frelsarans. L. L. Gramd Pre. Hinn lati er altaf að bíða þess, að hepnin færi honum óvænt gæði, en starfsmaðurinn hef- ir sterkan vilja og opin augu til að ryðja sér braut til velmegunar. Hinn fyrri liggur í rúm- inu og vonar að pósturinn færi honum bréf með arfleiðsluskrá innan í, en sá ötuli fer á fætur kl. 6 og leggur grundvöll velgengni sinn- ar með því að nota kostgæfilega pennann sinn, hamarinn, eða annað það, sem hann vinnur með. Hinn lati kveinar og kvartar, en hinn starf- sami blístrar f jörugt lag. Hinn lati reiðir sig á hepni, en hinn starfsami reiðir sig á trúmensku og atorku. Y. I.

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.