Stjarnan - 01.12.1937, Page 3
STJARNAN
99
r*
*
Lögmál föðursins
Þetta orðatiltæki, “L,ögmál föðursins,” finst
ekki í Ritningunni. Sumir nota það til að
leggja áherzlu á ævarandi gildi io boðorðanna,
en aðrir til að reyna að sýna mismun á sið-
ferðisskyldum þeim, sem Faðirinn leggur fyrir
menn og þeim sem sonurinn heldur fram.
En þó :menn rannsaki Bi'blíuna spjaldanna á
milli, þá finst hvergi að Kristur hafi ein lög
og Faðirinn önnur. Orð Krists: “Eg og Fað-
irinn erum eitt,” kemur fullkomlega fram þegar
Guð sjálfur gaf io boðorðin á Sínaíf jalli.
Flettum upp 2. Mós. 20:1,2. vers: “Og
Guð talaði öll þessi orð og sagði: “Eg er Drott-
inn Guð þinn, sem leiddi þig út af Egyptalandi,
út úr þrælahúsinu.”
Móses var hinn sýnilegi leiðtogi Israels-
manna frá Egyptalandi til fyrirheitna landsins.
En hver var hinn ósýnilegi leiðtogi þeirra
finnum vér í 1. Korinubréfi 10:1-4 vers: “Því
að ekki vil eg bræður, að yður skuli vera ó-
kunnugt um það, að feður vorir voru allir undir
skýinu, og fóru allir yfir um hafið, og voru
allir skírðir til Móse í skýinu og hafinu, og
neyttu allir hinnar sömu andlegu fæðu, og
drukku allir hinn sama andlega drykk, því að
þeir drukku af hinum andlega kletti, sem fylgdi
þeim, en kletturinn var hinn Smurði, ((Krist-
ur).”
Vér höfum ekki þrjá guði í þremur persón-
um, heldur einn Guð í þremur persónum.
Föður, Son og Heilagan Anda. “Þessir þrír
eru eitt.” I. Jóh. 5 :J.
Guðleg lög.
Af þessu leiðir að boðorðin gefin á Sínaí-
fjalli geta ekki kallast lögmál Föðursins, eða
lögmál Sonarsins, eða lögmál Heilags Anda,
heldur er það Guðs lögimál, alveg eins og sköp-
unin í öndverðu var Guðs verk. “í upphafi
skapaði Guð himin og jörð.” 1. Mós. 1:1.
Eins og''það var Guð — Guðdómurinn —
sem skapaði, þannig var það einnig Guðdóm-
urinn, sem gaf lögmálið á Sinaíf jalli. Önnur
persóna Guðdómsins talaði. Þetta er enn
fremur staðfest í orðum Stefáns í Post. 7:38.:
“Þessi (Móses) er sá, sem var í söfnuðinum á
eyðimörkinni rneð englinum (Kristi) sem við
hann talaði á Sínaífjalli og með feðrum vor-
um, sem tók á móti lifandi boðum til að gefa
oss.”
Þessir textar benda oss á aðeins eitt sið-
ferðislögmál, það er Guðs lögmál. Þessi hug-
mynd um tvenn siðferðislög, eitt gefið af Föð-
urnum og annað af syninumi er aðeins manna-
tilbúningur. Eins og vér höfum séð, þá var
það og er Guðs lögmál, sem gefið var á Sínaí-
fjalli.
Mörgum öldum áður en Jesús fæddist í
Betlehem segir spámaðurinn fyrir um afstöðu
hans gagnvart lögmálinu: “Sláturfórnir og
matoffur þóknast þér ekki. Mín eyru hefir þú
gegnum borað; brennifórnir og syndaoffur
viltu ekki. Þá sagði eg: Sjá, eg kem með lög-
málsskrána skrifaða i hjarta mitt. Mig langar
til að gjöra þinn vilja, minn Guð, og þitt lög-
mál er inst í rnínu hjarta.” Sálm. 40:6-8.
Aftur er spáð um Krist í Jes. 42:2i.: “Fyr-
ir sakir réttlætis sins hefir Drotni þóknast að
gjöra kenninguna háleita og vegsamlega.” I
eldri Biblíuþýðingunni stendur: “Hann vill
gjöra lögmálið stórt og veglegt.” Sama orð
“Lögmál” er einnig notað á enskunni.
Að gjöra háleitt og vegsamlegt er ekki að
breyta eða burtu nema, heldur að heiðra og
halda á lofti, og það gjörði Jesú bæði í lífi sínu
og kenningu.
“Maður nokkur kom til hans og sagði:
Meistari, hvað gott á eg að gjöra til þess að eg
eignist eilíft líf ? En hann sagði við hann:
Hví spyr þú mig um hið góða? Einn er góð-
ur. En ef þú vilt inn ganga til lífsins, þá hald
boðorðin.” Matt. 19:16, 17.
Lógmál Krists.
Nú getur einhver spurt. Áminnir ekki Páll
postuli kristna menn í Gal. 6:2 með þessum
orðum: “Berið hver annars byrði og uppfyll-
ið þannig lögmál Krists.”
Jú, vissulega. En hvað er lögmál Krists.
Hvar finnum vér hans lögmál? Hvergi nema
í 10 boðorðunum eins og þau eru útskýrð af
honum. Hann hélt þeim á lofti, gjörði þau
háleit og vegsamleg.
í Matt. 22 127 finnum vér svar Krists upp
á spurninguna: “Hvert er hið mikla boðorð í
lögmálinu?” Hann svaraði: “Þú skalt elska
Drottinn Guð þinn af öllu hjarta þinu, og af
allri sálu þinn, og af öllum huga þínum. Þetta
er hið mikla og fyrsta boðorð. En hið annað er
líkt, þetta: þú skalt elska náunga þinn eins og
sjálfan þig. Á þessum tveimur boðorðum
byggist alt lögmálið og spámennirnir. “Sjá
einnig Lúk, 10:2S-37-