Stjarnan - 01.12.1937, Síða 8

Stjarnan - 01.12.1937, Síða 8
STJARNAN 104 umi, er eitthvað svo opið að mínúturnar geti týnst? Ástæðan fyrir því að vér höfum svo lítinn tíma er sú að vér glötum mínútunum, gætum ekki smápeninganna, ef eg má svo að orði kveða. Gættu þess að tapa ekki mínút- unum. Þær eru svo litlar að hætta er á að þeitn sé of lítill gaumur gefinn. The Wellspring. Smávegis Síðasta þjóðþing Bandaríkjanna var hið lengsta, sem verið hefir í mörg ár. Það kostaði 12 miljón dollara, eða 500,000 dollara á dag. Stærstu upphæðirnar ,eru laun meðlimanna skrifara, lögmanna, lögregluþjóna, dyravarða, sendisveina og annara, kaup þessara allra til samans nemur 10,900,000 dollurum fyrir árið. Verkamannadeild Bandaríkj anna skýrir frá því að í júnímánuði í ár hafi tapast 4,500,000 dagsverk sem afleiðing af verkföllunum. Flestir af stráhöttum þeim, sem nefndir eru Panama hattar, eru búnir til í Ecuador, Col- umbia og Venezuela í Suður-Ameríku. Nálægt helmingur af öllu því hunangi sem framleitt er í Bandaríkjunum er notað til bök- unar og brjóstsykurgerðar. Menn semi unnu í dýragarðinum í Phila- delphiu notuðu gúmmí hanska meðan þeir voru að eiga við 5 ála, sem nýlega komu frá Suður- Ameríku. Álarnir framleiða nálega 300 “volts” af rafmagni, svo menn verða að gæta sín þegar þeir fara með þá. Samkvæmt skýrslu, sem nýlega var send ameríska efnafræðisfélaginu hefir. Delaware ríkið fleiri uppfyndingamenn en nokkurt ann- að riki. Á síðastliðnum tveimur árum, hefir einn af hverjum 870 manns þar fengið einka- leyfi fyrit uppfyndingu. , Danskur fulltrúi, Dr. Erick Fischer veiddi nýlega við strendur Ástralíu hákarl, sem vigt- aði 1,049 pund. Þegar Wisconsin ríki lýkur við trjáplönt- un siina nú um árslokin 1937, þá hefir það plantað 10 tré á mann að tiltölu fyrir alt ríkið. STJARNAN -kemur út einu sinni á mán- uði. Verð: $1.00 á ári. Borgist fyrirfram. Útgefendur : The Canadian Union Con- ference of S.D.A. Ritstjórn og afgreiðslu annast Miss S. JOHNSON, Lutular, Man., Can. Kálið á sykurrófunum framleiðir sykur, en sendir það svo ofan í rótina til geymslu. Dr. Horatio M. Pollock frá Albany stað- hæfði nýlega að ef menn ekki fyndu upp varn- armeðul þá mundi geðveiki eða vitfirring brátt verða erfiðasta og alvarlegasta viðfangsefni lækna og heilbrigðisnefnda í Bandaríkjunum. Samkvæmt skýrslum hans Rostar brjál og geðveiki þjóðina nær því biljón dollara á ári. Sýning á músum er orðin almenn á Bret- landseyjum. Á sýningum þessum hefir komið fyrir að 750.00 dollara verðlaun hafa verið gef- in fyrir óvenjulega litfagra mús. Verðlauna- mýsnar geta verið af ýmsum litum eða marglit- ar, rauðar, bláar, brúnar, ljósmórauðar, ljós- fjólulitar o. s. frv. Margir af þeimi, sem ala mýs þessar eru læknar sem nota þær til að reyna næringargildi fæðuefna. Það er líka eftirsókn eftir músaskinnum í kvenkápur. Hér um bil 400 skinn þarf í fullsíða kápu og verð hennar er 350.00 dollarar. Göfugu vinir rnínir og viðskiftamenn, eg treysti því að þér sendið Stjörnunni dollar í innlögðu umslagi, ef þér ekki þegar hafið sent inn andvirði blaðsins. Það getur verið erfitt að spara dolíar, en með blessun Guðs er það flestum mögulegt. Eg þarf ennþá hátt á annað hundrað dollara fyrir áramótin til þess að blaðið geti sjálft borgað fyrir prentunina og pappír- inn, sem í það fer. Hjartans þakklæti mitt til allra, sem þegar hafa borgað blaðið og einnig til hinna mörgu, sem munu gjöra það nú fyrir áramótin. Með samvizkusemi yðar og góðum skilum léttið þið mér áhyggjur og erfiði, sem mér er ofvaxið. Blessun Drottins hvíli yfir ykkur öllum. Ykkar alls góðs unnandi, F. Johnson.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.