Stjarnan - 01.11.1938, Síða 6

Stjarnan - 01.11.1938, Síða 6
94 S TJARNAN Kom þú inn i vagninn og keyrÖu með okkur.” Hann hjálpaði manninum inn og kom svo inn sjálfur á eftir. MaSurinn var varla seztur niður fyr en Moody spurði hann hvort hann væri trúaður kristinn maður. “Nei, það er eg ekki,” svaraði maðurinn. “Langar þig til að verða það?” Vatnið rann niður af hattinum og yfirhöfn manns- ins um leið og hann sagði: “Þú getur þó skli- ið að eg hefði aldrei farið út i slíkt veður til að hlusta á Moody prédika, ef eg hefði enga löngun í þá átt.” Þá sneri Moody sér að mér og sagði: “Bilhorn, biddu fyrir þessum manni.” Eg bað, en eg er 'hræddur um það hafi verið kraftlítil bæn. Svo bað Moody, innilega og alvarlega, meðan þrumur og eldingar geysuðu fyrir utan: “Ó, Guð, frelsaðu þennan bróður í kvöld, frelsaðu hann nú og hér fyrir Krists skuld. Amen.” Svo sagði hann við manninn: “Bróðir, viltu taka móti Jesú sem Drotni þínum og frels- ara nú?” Og maðurinn svaraði: “Já, það vil eg.” Og rétt í sama bili staðnæmdist vagninn Borgar Guðs orð varar oss við heimskulegum spurningum, en það eru til margar áríðandi spurningar, þar á meðal er þessi: “Borgar það sig að vera kristinn ?” í verzlun og viðskiftum er það skynsamlegt að leggja fram þessa spurningu: “Borgar það sig?” Ekki er það minna vert þegar er að tala um líf vort í þessum heimi. t stað þess hugsunarlaust að segja það borgi sig ekki, skul- um vér leggja spurninguna fram fyrir þá, sem hafa fórnað tíma sínum og fé, og með þolin- mæði beðið úrslitanna. Job segir: “Þó Drott- inn deyði mig skal eg samt vona á hann.” Með þessum orðum lætur hann í ljósi að eftirvænt- ing Guðs barna sé meira verð en sjálft lífið. Davíð konungur segir: “Heldur vil eg standa við þröskuldinn í húsi Guðs míns, en dvelja í tjöldum óguðlegra.” Sálm. 84:11. Það er meira vert að standa við dyrnar í Drottins húsi heldur en að eiga bústað sjálfur. Salómon, hinn vitrasti maður, sem uppi hefir verið sagði um vizkuspeki Guðs barna: “Hún er dýrmætari en perlur, og allir dýrgrip- ir þínir jafnast ekki á við hana.” Orðskv. 3:15. “Ótti Drottins er upphaf vizkunnar og þekking hins heilaga er sönn hyggindi.” fyrir framan leikhúsið. Moody kom nú til mín og bað mig að sjá um að þessi maður fengi sæti á fremstu bekkj- unum, og það gjörði eg. Samkoman átti að vera fyrir menn og þar var fjöldi saman kominn þegar eg fór upp á pallinn til að stjórna söngnum þá sá eg að Moody lá á hnjánum inni í hliðarherbergi. Eftir ræðuna bað Moody alla, sem væru trúaðir, kristnir menn að standa upp, meðai þeirra, sem stóðu upp var þessi maður líka. Moody benti á hann og spurði: “Ert þú krist- inn?” Maðurinn svaraði hátt og skýrt: “Já, eg meðtók Jesúm sem frelsara minn í vagnin um sem flutti mig hingað í kvöld; maður, sem var í vagninum bað fyrir mér, og eg sé nú að það varst þú, Mr. Moody.” Og þannig var þetta. Moody hafði einnig þennan dag haldið loforð sitt um að tala að minsta kosti við eina sál um hennar andlegu velferð. Nú hafði eg fengið að vita leyndar- dóminn um hinn undraverða kraft, sem guðs- maðurinn Moody hafð íi starfi sínu til eflingar guðsríkis. E. S. það sig? Vér gætum komið með vitnisburði margra, sem haf reynsluna fyrir sér. Vér skulum leggja fram spurninguna fyrir hinn mesta kennara, sem í heiminum hefir verið, hann, sem er upp- spretta sannleikans og þekkingarinnar. Hann segir: “Hvað mun það stoða manninn, þótt hann eignist allan heiminn, en fyrirgjöri sálu sinni.” Matt. 16:25. Páll postuli segir: “Hvilíkt djúp ríkdóms og speki og þekkingar Guðs. Hversu órann- sakandi dómar hans og órekjandi vegir hans.” Róm. 11:33. Pétur segir: “Til þess að trúar- staðfesta yðar, langt um dýrmætari en for- gengilegt gull, sem þó stenzt eldraunina, geti orðið yður til lofs og dýrðar og heiðurs við opinberun Jesú Krists.” I. Pét. 1 :J. Hið eilífa er miklu meira vert en hið tím- anlega. Hinn mikli læknir segir: “Þótt ein- hver hafi allsnægtir, þá er líf hans ekki trygt með eigum hans.” Eúk. 12:15. Reynsla og íhugun kennir oss að til þess að vera reglulega hamingjusamur útheimtist að maður hafi góða heilsu og óskerta líkams- og sálarkrafta, og frið og rósemi hjartans. Sá, sem eyðir æfi sinni í nautn og vellystingum auðæfanna getur ekki verið hamingjusamur.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.