Stjarnan - 01.11.1938, Page 7

Stjarnan - 01.11.1938, Page 7
STJARNAN Hversu fáir eru verulega hamingjusamir. í orðsins fylstu merkingu eru engir hamingju- samir í þessum heimi. Hin eilífa gleði þeirra heilögu er meira en vér getum skiliÖ, og hin dýpsta og innilegasta hmingja, sem vér getum notið í þessum spilta heimi, er aðeins lítiÖ geislabrot hinnar eilífu gleði. Dýrðlega eilífð, þar sem engin sekt hvílir á samvizkunni, ekkert sem truflar ró- 95 semi hjart’ans eða heilsu líkamans. Hvílíkur fögnuður sem Guðs börn þá munu njóta. Kunnum vér að meta þessa dýrðlegu von, þenn- an eilífa verulegleika ? Getum vér skilið þessa óútmálanlegu dýrðlegu gleði? Nei, en vér vit- um og getum sagt með öruggri fullvissu að það borgar sig að vera kristinn og feta í Jesú fótspor. E. S. Sorgin sneriát í gleði Ungur maður sat á bekk úti í brennandi sólarhita á Indlandi, hann huldi andlitið í höndum sér og virtist vera yfirkominn af ör- væntingu. Bókasölumaður einn, Charvet að nafni gekk fram hjá, hann gaf sig á tal við unga manninn og bauð honum eintak af Nýja testamentinu. “Eg vil það ekki,” svaraði hann, “eg hafði eitt, en það var of stórt til að bera það með sér, svo eg kastaði því í vatnið.” Bókasölumaðurinn hélt að það mundi ekki hafa verið aðalorsökin til þess að hann kastaði því í burtu, svo hann hélt áfram að tala við unga manninn og lagði fyrir hann nokkrar spurningar, og varð það til þess að ungi mað- urinn opnaði hjarta sitt fyrir honum' og sagði honum alt um kringumstæður sínar. “Eg strauk að heiman fyrir nokkrum mán- uðum síðan og settist að í stórborg til þess að geta gjört eins og mér þóknaðist. En alt fór öðruvísi en eg hafði vonast eftir. Peningar mínir eyddust fljótt og allar vonir mínar brugð- ust. Nú er eg allslaus. Mér kom til hugar að fara heim, þarna er heimili foreldra minna, hvíta 'húsið, sem þú sér niðri í dalnum, en þegar eg komst hingað skammaðist eg mín svo mikið að eg hafði ekki kjark í mér til að halda lengra. Eg er líka hræddur um að foreldrar mínir geti ekki fyrirgefið mér og þá lægi ekkert fyrir mér nema — dauðinn.” Mr. Charvet viknaði við þessa sorgarsögu, og hann opnaði Nýja testamentið og las sög- una um tapaða soninn. Ungi maðurinn sá strax líkinguna upp á sjálfan sig og fór að gráta. Nú datt bókasölumanninum ráð í hug. Hann bað unga manninn að bíða stundarkorn þar sem hann var, en sjálfur gekk hann ofan í dalinn að hvíta húsinu, sem honum hafði verið bent á. Hann barði að dyrum og rétti gamla manninum Nýja testamentið; hann opn- aði það og kona 'hans kom líka strax fram að dyrunum. Þau spurðu hvaða bók þetta væri, og hann las fyrir þau dæmisöguna um týnda soninn. Þau viknuðu mjög er þau heyrðu þessa sögu, sem í gegnurn aldirnar hefir hrifið svo marga, og faðirinn opnaði hjarta sitt fyrir að- komumanninum. “Við áttum son, sem var okkur mjög kær,”' sagði hann, “en því miður áttum við ekki lund saman svo hann fór í burtu, við höfum ekkert heyrt frá honum síð- an. Við mundum með gleði fyrirgefa honum, ef hann aðeins vildi koma heim, en við höfum enga hugmynd um hvar hann er.” Nú sagði Mr. Charvet þeim frá öllu: “Eg veit hvar sonur ykkar er,” mælti hann. Hann er skamt héðan og er niðurbrotinn af sorg yfir því hvernig hann hefir farið að ráði sínu, og eg er hér til að fá fyrirgefningu yðar handa honum. Hann kemur heim strax og þér gefið leyfi til þess.” Eítilli stundu seinna grét móðirin af gleði í faðmi sonar síns, faðirinn tók hjartanlega í hönd honum og kysti hann á báðar kinnarnar. Svo þökkuðu þau öll Guði sameiginlega fyrir gæzku hans, og keyptu nú með ánægju Nýja Testamentið til þess að geta lesið í því um Guðs fyrirgefandi náð og miskunnsemi. Bible Society Record. Þegar fréttaritari dagblaðanna i Tokyo fer út úr borginni, þá tekur hann með sér tólf eða fleiri tamdar dúfur, sem hann flytur í körfu. Þegar hann nær í einhverjar fréttir, skrifar hann þær á mjög þunnan pappír og smeygir honum inn í aluminum-pípu, er hann festir við fótinn á dúfu og sleppir henni svo út í loftið. Hún flýgur strax ‘heim og þegar þangað kemur er sagan eða fréttirnar teknar og settar í blað- ið.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.