Stjarnan - 01.12.1939, Page 1

Stjarnan - 01.12.1939, Page 1
STJARNAN DESEMBER 1939 LUNDAR, MAN. Samkvœmi, gjafir og lofsöngur JólafríiÖ er sérstaklega velkomiÖ, af því þá er liöinn svo langur tími frá sumarfríinu. kemur þegar dagarnir eru styztir og veðrið oft ikaldast, svo menn vilja náttúrlega halda sig heima í hlýindunum og skemta sér þar. Af þessu leiðir að jólasamkvæmi eru svo ahnenn, þar sem vinir og ættingjar geta skemt ser saman og hafið 'hugann yfir erfiðleika lífsins. Þetta á vel við því Jesús, í hvers Minning hátíðin er haldin, var félagslyndur. Vér vitum af frásögunni um hið undra- verða líf hans að hann óx í vizku og náð hjá Guði og mönnum. Um leið og hann tók and- legum þroska þá ávann hann sér líka hylli •iianna. Vér megum ekki hugsa um hann að- ein'S sem harmkvæmlamann, heldur einnig minnast þess, að hann var “smuíður gleðinnar olíu fram yfir sína jafningja,” þótt tlökkur manna, sem hafði svo mikið álit á sjálfum sér hafi fyrirlitið hann, þá hlustaði almúginn á hann með gleði. Fjöldi fólksins heiðraði hann. Hann var enn fremur velkominn gestur á morgu heiimiili hinna ríku. Rétt í byrjun starfs síns sat hann á brúðkaupsveizlu og framleiddi þar hið bezta vín, sem á borð var borið, og hefir eflaust átt sinn þátt í gleði gestanna. Hann sá ekkert á móti því að sameina kristindómsstarf og skemtilegan fé- lagsskap. En hann sýndi með kenningu sinni og dæmi, að gjafir og félagslegar skemtanir eiga að vera mannkyninu til blessunar. Við eitt tækifæri sagði hann húsbóndanum, sem var ríkur og ánægður imieð sjálfan sig, hvað hann áleit væri bezta veizlugleðin. “Þegar þú heldur miðdegisverð, eða kvöldverð,” sagði hann, “bjóð þú þá hvorki vinum þínum né bræðrum þínum, néi ættingj- um þínum, ekki heldur ríkum nágrönnum þínum, svo að þeir séu ekki að bjóða þér aftur og þú fáir endurgjald. En þegar þú gjörir heimboð, þá bjóð þú fátækum, van- heiluimi, höltum og blindum, og þá munt þú verða sæll, því þeir hafa ekkert að endur gjalda þér með, en þér mun verða endur- goldið það í upprisu hinna réttlátu” Lúk. 14:12-14. Það væri misskilningur að taka þetta þannig að Jesús væri mótfallinn félagsskap vina og ættingja. Vér vitum að hann hafði sína sérstöku vini, sem hann hafði ánægju af að vera sarnan með. Faríseinn, sem hann talaði við í þetta skifti þurfti að víkka sjón- deildarhring sinn. Hann hefir að líkindum verið vanafastur, sjálfselsku fullur og eigin- gjarn í eðli sínu, og það hefir komið fram í félagsskap hans við aðra, þess vegna var hon- um gefin þessi áminning af Jesú, sem elskaði alla menn, svo hann gekk um kring og gjörði gott, af því hann elskaði mannkynið. Jesús lítur því án efa með velþóknun á félagss'kap og vinarhug, sem sérstaklega ein- kennir jólahátíðina hjá fólki. Kristið fólk og líiknarfélög út um allan heim fylgja hinni góðu ráðleggingu, sem Jesús gaf hinum ríka Farísea, og það er virðingarvert svo langt sem það nær. En jólin koma aðeins einu sinni á ári, og eins og Jesús sagði höfurn vér fátæka altaf á irraeðal vor, ef því þessi vinarhugur, sainhygð og hjálpsemi, við þá sem eru einmana, veikir eða fátækir, leiðir oss til að halda uppi slíkri starfsemi gegnum komandi ár, þá hefir hátíðahaldið komið ná- iægt því að mæta tilgangi sínum, sem er sá að feta í fótspor hans, sem altaf meðan hann dvaldi hér “gekk uim kring og gjörði gott. Jólagjafir. í sambandi við heimsóknir og félagsskap jólanna er það siður iað gefa gjafir ættingjum, vinum og nágrönnum. Þetta á sérstaklega vel við þegar vér hugsum til þeirra kostu- legu gjafa, sem vitringarnir færðu barninu í Betlehem, hvers fæðingu vér höldum hátíðlega á jólunum. Þeir færðu honum gjafir, gull,

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.