Stjarnan - 01.12.1939, Síða 5

Stjarnan - 01.12.1939, Síða 5
STJARNAN IOI spamanns gefur oss ráð og meðul við Öllum sjúkleika líkama vors og sálar. Ef vér óskum eftir góðri heilsu og verulega hamingjusömu lífi þá verðum vér að fylgja reglum þeim, sem þar eru gefnar. . . . Vér skulum nú athuga það, sem stendur í þessuim kapítula, því eg er sannfærður um, vmir mínir, að vér þurfum að skilja for- skriftina og vita hvernig að hagnýta oss hana, því án þess getum vér aldrei læknast af mein- um þeini, sem þjá líkama og sál, og þá verður aldrei leyndardómur Guðs framkvæmdur í oss. Nú lesum vér: “Kalla þú af megni og drag ekki af. Hef UPP raust þína seim; lúður og kunngjör lýð mínum misgjörð þeirr,a, og húsi Jakobs syndir þeirra. Og þó leita þeir min dag frá degi og girnast að þekkja mína vegu; þeir heimta af mér réttláta dóma og girnast það, að Guð komi til, eins og væru þeir þjóð, sem iðkar réttlæti og eigi víkur frá skipunum Guðs sins.” Þetta lætur heldur vel í eyrurn, en athugum svo hvað Drottinn segir til þeirra í 3-—5. versi: k “Hví föstumi vér og þú sér það ekki, hví þjáum vér oss og þú skeytir því ekki?” Sjá, daginn sem þér fastið fáist þér við störf yðar og þrælkið öll 'hjú yðar. Sjá, þér fastið til þess að vekja deilur og þrætur, og til þess að Ijósta með ósvífnum hnefa, en þér fastið eigi í dag til þess að láta rödd yðar heyrast upp í hæðirnar. Mun slíkt vera sú fasta er mér líkar, sá dagur er menn þjá sig? Að hengja niður höfuðið sem sef og breiða undir sig sekk og ösku, kallar þú slíkt föstu og dag velþóknunar fyrir Drotni?” Þessi vers benda ekki á hvað Guð vill að vér séum eða hvað vér gjörum, en þau sýna hvernig vér lítum út í augum Dnottins. Og minnist þess, vinir* mínir, að þetta er ekki skrifað til heiðingja heldur til safnaðarins; ^ það er þeiinit mun alvarlegra og ætti að hvetja oss því fremur til að rannsaka Guðs áform og tilgang með líf vort. Það sem vér þurf- um mest af öllu er kærleiki Krists í hjörtu vor. Einungis kærleikurinn, sem streymir frá honum getur læknað oss. Einungis sá, sem leyfir kærleika Krists að streyma gegnum hjarta sitt, eins og vökvinn frá trénu streymir út í greinarnar, eða blóðið gegnuimi æðar iíkamans, getur öðlast lækningu sinnar særðu sálar. Áhrif kærleikans hafa undrakraft í sér fólginn af því þau eru guðdómleg. Það sem sameinar himin og jörð er þjónusta kærleik- ans. Hún samtengir Guð föður við oss börn hans. Því Drottinn segir; “Sú fasta sem mér Iíkar, er að leysa fjötra rangsleitninnar. láta rakna bönd oksins, gefa frjálsa hina hrjáðu og sundurbrjóta sérhvert ok, það er að þú miðlir hinum hungruðu af brauði þínu, hýsir bágstadda hælislausa menn, ef þú sér klæðlausan mann að þú þá klæðir hann og firrist eigi þann, sem er hold þitt og blóð.” “Sú fasta, seim1 mér líkar er að leysa fjötra rangsleitninnar.” En ef vér höfum ekki sjálfir verið leystir úr fjötrum syndar- innar, ’hvernig getum vér þá leyst aðra? Ef eg hefi elcki sjálfur komið til Krists og feng- ið fyrirgefningu synda minna, hvernig .get eg þá leitt aðra til hans? Dulin synd. Fyrir nokkrum árum síðan var eg beðinn að hafa Biblíulestra með mótmælendapresti einum sem lá á einu af sjúkrahúsum vorum. Eg hafði þekt hann nokkurn tíma. Unga fólkið okkar hafði haft Biblíulestra á heimili hans. Hann þekti boðskapinn. Hann þekti systur White, 'hann hafði mætt henni í Suður- ríkjunum. Hann var elskulegur gamall mað- ur, og hafði jafnvel þessi tvö eða þrjú síðustu ár síðan eg kyntist honum leitt nokkra menn til að taka rnóti fagnaðarerindinu um endur- koimu Krists og hlýðni við boðorð hans. Eg gat því hreint ekki skilið í hvers vegna hann aldrei sjálfur hafði sameinast söfnuði vorum. Svo varð hann veikur og þurfti að fiara á sjúkrahús. Aðstandendur hans beiddu mig, ef mögulegt væri að koma honum inn á Loma Linda sjúkrahúsið, og það hepnaðist. Vér vissum að hann átti ekki langt eftir og eg fór tvisvar eða þrisvar á dag og hafði bæn með honum. Sem vinahót kölluðum við liann venjuiega afa Brown. Rvöldið, sem hann kom varð mér ljóst hvers vegna hann hafði aldrei veitt sannleikanunr viðtökur. Rétt í því eg var að fara út, rétti vinur hans mér litla tóbaksplötu og sagði: “Mr. Semmens, viltu gefa honum þetta einhvern tima við tækifæri, honum verður svo mikil hugfró að því.” Eg svaraði: “Veiztu ekki að við not- um ekkert þess háttar hér ?” “Ó, eg hélt það mundi styrkja taugar hans.” Eg tók á móti tóbákinu og bað hjúkrunarfólkið að vera á verði svo honum yrði ekki fært meira tóbak. Eg heiimisótti hann daglega, einu sinni mintist eg á þetta við hann og spurði hvort hann gæti ekki sigrast á tóbaksnautninni, en

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.