Stjarnan - 01.12.1939, Blaðsíða 8

Stjarnan - 01.12.1939, Blaðsíða 8
104 STJARNAN Ahrifamikil prédikun Herprestur einn gekk út á vígvollinn, þar sá hann særðan hermann liggja á jörðinni. Presturinn hafði Biblíu sína undir hendinni. Iíann ibeygði sig niður að særða manninum og sagði: “Viltu eg lesi dálítið fyrir þig í Guðs orði?” Hinn særði svaraði: “Eg er svo þreyttur, eg vildi heldur biðja )>ig að útvega mér vatn að drekka.” Presturinn flýtti sér sem mest hann mátti að sækja vatn. Þegar maðurinn var búinn að drekka sagði hann: “Getur þú lyft höfðinu á mér dálítið og iagt eitthvað undir það?” Presturinn fór nú úr regnkápu, sem hann var í, vafði hana saman og lagði gætilega undir höfuð hermannsins svo hann hvíldist betur. Þá sagði imaðurinn: “Eg vildi óska eg hefði eitthvað ofan á mér, því mér er svo kalt.” Nú fór presturinn úr yfirhöfn sinni og breiddi hana ofan á manninn. Meðan hann var að því sagði særði maðurinn: “Ef það er nókkuð i þessari bók, sem getur leitt menn til að gjöra það, sem þú hefir gjört fyrir mig, þá vil eg gjarnan fá að heyra það.” E. S. Smávegis Á eyjunni Singapore hefir brezka stjórn- in 2 apa í þjónustu sinni. Þeir safna cocoa- hnetum og öðrum ávöxtum af háum trjám. Þeir hafa lært að skilja 20 orð á Malaya- málinu og 'hafa reynst svo nytsamir að það á að teimja fleiri á sama hátt. -f ♦ -f Eitt varnarmeðal móti árásum óvina er að hafa niðamyrkur á kvöldin og nóttunni. En þetta hindrar umferð á gö.tum og stræt- um, 0g gjörir borgarbúum ómögulegt að fá flutning út á land í myrkrinu ’hvað sem á liggur. Til að bæta úr þessu hefir Oxford- efnafræðingur A. V. Rhead að nafni fundið upp lampa imeð svörtu ljósi. Eldspýtuljós sem kveikt er getur sézt mílu vegar, en ljósið frá lampa Rheads sendir fjólubláa geisla um 500 fet, sem ekki geta sézt frá loftbátum uppi í loftinu. • STJARNAN kemur út einu sinni á mán- uði. Verð: $1.00 á ári. Borgist fyrirfram. Publishers: The Canadian Union Con- ference of S. D. A., Oshawa, Ont. Ritstjórn og afgreiðslu annast Miss S. JOHNSON, Ltmdar, Man., Can. Atvinnuleysi hefir að undanförnu verið allmikið á Frakklandi, en til að létta stjórn- inni byrðina er nú hægt að senda verkamenn- ina hvert sem er innanríkis þar sem vinna fæst. Áður voru verkamenn ekki skyldugir að flytja úr bygðarlagi sínu til að fá atvinnu, heldur imáttu þeir fara á atvinnuleysingjalist- ann og njóta stjórnarstyrks. Nú tekur stjórnin sér fyrir hendur að útvega þeim atvinnu, og þegar þeim býðst hún, verða þeir að taka hana þótt hún sé í öðrum landshluta og jafnvel þó það sé annars konar vinna heldur en þeir eru vanir við. Ef þeir hafna vinnunni, missa þeir atvinnuleysingjastyrkinn. -f -f -f Franska skipið “Normandie” kvað vera stærsta skipið sem til er í heiminum. Það er 83,423 lesta skip. -f -f -f Kristnir menn í heiminum eru um 737,- 000,000 að tölu, en íbúatala heiimsins er um 2,200,000,000. -f -f -f Rósir eru í mestu uppáhaldi af öllum Blómum í Canada. Árið sem leið, 1938, voru rósir seldar hér upp á 744,518 dollara. -f -f -f Eftir að hafa spurst fyrir um ósk al- mennings í Ameríku hafa menn fundið að 4 af hverjum 10 Ameríkumanna vildu gjarnan læra að stýra loftiskipi. -f -f -f Nú er nýlega búið að fá einkaleyfi fyrir þakplötum úr gleri. Glerþák er sagt að stand- ist betur áhrif veðráttunnar, það dregur engan raka að sér og haglsteinar brjóta það ekki. Gler þetta bognar, en það tekur ákaflegt högg til að brjóta það. -f -f -f Samkvæmt skýrslum frá verzlunardeild Bandaríkjanna hafa gjafir Ameríkumanna stigið frá 35 miljónum dollara upp í 40 milj- ónir frá árinu 1937 til 1938. Kína fékk craeiri hjálp en nokkur önnur útlend þjóð.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.