Stjarnan - 01.05.1940, Qupperneq 3

Stjarnan - 01.05.1940, Qupperneq 3
STJARNAN 35 "íenn. Thamas Fuller segir, aÖ einungis þegar maÖurinn viÖurkennir sinn eigin veikleika, geti GuÖ komiÖ honum til hjálpar með rikdómi naðar sinnar. AuÖmýkt og syndajátning verÖ- ur að auðkenna þá bæn, sem kemur miklu til leiðar. Guð hefir heitið að bænheyra hina auðmjúku. 2. Krt>n. 7, 14. 4. Uppbót. Hefir þú, að svo miklu leyti sem hægt er, leitast við að bæta úr þeinm órétti, sem þú hefir gert öðrum. Það gerði Zakkeus. Rithöfundur einn, sem skrifar um Zakkeus, tilfærir eftir- fylgjandi dæmi tii að sýna uppbót ranginda: "Solymus soldán sagði við ráðgjafa sinn, sem vildi fá hann tfl að gefa einhverju sjúkrahúsi fyrir fátæka hin miklu auðæfi er hann hafði rænt frá persneskum kaupmönnum, að Guð hefði andstygð á brennifórn af rændurn mun- um. Hin deyjandi Tyrki bauð, að )>ví skyldi heldur skilað tii eigendanna, og var það gert. Með þessu gerði hann mörgum kristnum mönnum skömm, sem eru mjög ófúsir á að bæta úr þvi, sem þeir hafa gert öðrum rangt.” 5. Fyrirgefning. Hefir þú nokkru sinni beðið Guð fyrir- gefningar á einhverri synd, meðan þú barst i hjarta þínu óvild til einhvers manns? Og bjóst þú við, að hann inundi verða svo ósam- kvæmur sjálfum sér, að hann bænheyrði þig? • “Eg held,” segir D. H. Moody, þegar hann er að ræða þetta mái, “að þetta aftri fleirum frá að verða sterkir í Guði, en nokkuð annað. Þeir eru ekki fúsir á að temja sér sáttgjarnt hugarfar. Þegar þú gengur inn í Guðs ríki, skeður það fyrir fyrirgefningu. Eg hefi aldrei vitað til þess, að nokkur maður hafi hlotið blessun frá Guði, nema hann hafi verið fús til að fyrirgefa öðrum.” Ef vér biðjurn sam- kvæmt hans vilja, munum vér biðja með sátt- fúsu hugarfari, og hjarta, sem laust er við allan kala, því hann hefir sjálfur kent.oss að biðja: “Fyrirgef oss syndir vlorar, því að vér fyrirgefum og sjálfir ö'llum skuldunautum vorum.” Ósáttgjarn maður fær ekki bæn- heyrslu. 6. Trú. Jakob segir, að vér verðum að biðja i trú án þess að efast, því að svo er sagt um þann, sem efast: “Sá, maður imá eigi vænta, að hann fái nokkuð hjá Drotni.” Bæn er ekki innifalin í orðum einum. Mynd af eldi er ekki eldur. Eýsing á fossi er ekki fossinn sjálfur, “Sú bæn,” segir Hall biskup, “sem aðeins er gálaust varafleipur, fellur niður við fætur vora.” Til þess að vér getum beðið kröftuga bæn, sem stígur upp í himininn og nær fram fyrir hásæti Guðs, útheimtist trú, en sérhvert Guðs barn getur beðið þá bæn, sem rnegnar mikið. Bæn án trúar er eins og bankaávísun án undirskriftar. Hún er einskisvirði því að það er undirskriftin, sem gefur ávísuninni gildi. En trúarbænin hefir undirskrift Drottins Jesú Krists, og fyrir slíka andlega ávísun getum vér fengið svo mikið af himneskum fjársjóðum sem vér óskum. þegar henni er franwísað í banka himinsins.’ (Fil. 4, 19)- Þorp eitt upp til fjalla hafði haft gnægð vatns úr stöðuvatni einu fyrir ofan það, en einn morgun sneru húsmæðurnar vatnskrön- unum árangurslaust. Ekkert vatn kom. Deiðslupípurnar tmjlli þorpsins og vatnssins voru athugaðar nákvæmlega. Menn fundu enga bilun og alt virtist vera í lagi. En samt fékkst ekkert vatn, og fólk vissi hvorki upp né niður. Nokkrir fluttu burt. En dag einn fékk embættismaður nokkur bréf, og í því stóðu meða'l annars þessi orð: “Ef þið aðeins takið burt tappann í efri endanum, munuð þið fá alt það vatn, sem þið þurfið.” Tapp- inn var tekinn úr, og þá kom meira en nóg vatn, til míkililar gleði fyrir hálfsoltna fólkið í þorpinu. Hversu margir kristnir rnenn ræna sjálfa sig blessun hilminsins einmitt á sama hátt! Þeir biðja, en leiðsla sú, sem blessunin á að streyma eftir, er teppt af vantrú. Að biðja án trúar er svipað því að halda flösku með tappa í undir vatnskrananum, til að fylla hana af vatni. Les þennan kafla í “Desire of Ages”: “Það er trúin, sem keniur oss i samband við himininn, og fyrir hana fáum vér kraft til að sigrast á myrkravöldunum. Guð hefir í Kristi og fyrir hann gætt oss hæfi- leikum til að yfirbuga sérhverja syndsamlega tilhnegiingu og veita sérhverri freistingu við- nám, hversu sterk sem hún er.” Og ennfrem- ur eftir sama höfund: “Náð Guðs veitist manninum fyrir lifandi, trú, og það er í voru valdi að sýna þessa trú i verki. Hin sanna trú meðtekur og tiileinkar sér hina fyrirheitnu blessun, áður en menn finna að menn hafi öðlast hana. Vér verðum að ákalla Drottin i trú. Vér verðum að taka á móti þeirri bless- un, sem oss er heitið, og tileinka oss hana sem voru eign.”

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.