Stjarnan - 01.05.1940, Page 7

Stjarnan - 01.05.1940, Page 7
STJARNAN niunu ekki GuSs ríki erfa.” I. Kor. 6:9. ‘Xaun syndarinnar er dauði.” “Alls ekk- ert óhreint skal inn í hana ganga, né sá, sem fremur viðurstygð eða fer með lýgi, enginn nema þeir einir, sem ritaðir eru í lífsbók lambsins.” Róm. 6:23; Opinb. 21:27. Þannig sjáum vér af Guðs orði að allir hafa syndgað, og að syndin útilokar mann frá Guðs ríki og leiðir af sér eilífan dauða. En vér lærum líka í þessari blessuðu bók að “Svo elskaði Guð hehninn, að hann gaf sinn ein- getinn son, til þess að hver sem, á hann trúir ekki glatist heldur hafi eilíft líf.” Jóh. 3:16. Guð hefir af náð sinni og kærleika fundið ráð til að frelsa mannkynið, með því að senda sinn eingetinn son til jarðarinnar til að líða dauðann fyrir oss. Jesús er vor eina frelsisvon. “Eg er vegurinn, sannleikurinn og lífið, enginn kemur til föðursins nemia fyrir mig.” Jóh. 14:6. “Jesú Krists, sem gaf sjálfan sig fyrir oss, til þess hann leysti oss frá öillu ranglæti.” Tít. 2:14. “Beinum sjónum vorum til Jesú, höfund- ar og fullkomnara trúarinnar, til hans, sem í stað þeirrar gleði, sem hann átti kost á, leið J’oliniinóðlega á krossi, mat smán einkis, og hefir sezt til hægri handar hástóli Guðs.” Heb. 12 -.2. “Til þess birtist Guðs sonur að hann skyldi niðurbrjóta verk djöfulsins.” “Hann bar sjálfur syndir vorar á líkama sínum upp á tréð.” “Sjá J>að Guðs lamb, sem ber beimsins synd.” “Og ekki er hjálpræðið í neinum öðrum, því eigi er heldur annað nafn undir himninum, er menn kunna að' nefna, er oss sé ætlað fyrir hólpnum að verða.” I. Jóh. 3:8; I. Pét. 2:24; Jóh. 1:29; Post. 4:12. Af þessu sjáum vér að laun syndarinnar er dauðinn. Guð er réttlátur, svo hann getur ekki látið synd óhegnda. Þess vegna kom Jesús, sonur Guðs og ímynd hans veru, og fórnaði sjálfum sér á krossinum fyrir vorar syndir, svo vér mættum frelsast frá dauðan- um, með því að tileinka oss fórnardauða hans, og taka móti honum til að frelsa oss frá synd. Með öðrum orðum, ef vér trúum að Jesús dó fyrir vonar syndir og reis upp frá dauðum, þá þurfum vér að viðurkenna fyrir Guði að vér trúulmi á hann sem vorn persónu- lega frelsara. Þannig verðum vér frelsaðir af 39 Guðs náð, fyrir trúna á Krist. Vér getum ekkert gjört til að frelsa oss sjálfir. Nádargjöf Guðs. "Af náð eruð þér hólpnir orðnir fyrir trúna, það er ekki yður að þakka, heldur er það Guðs gjö-f, ekki af verkum, til þess að enginn skuli geta þakkað sér það sjálfum.” Efes. 2 ;8, 9. “Öllum, sem tóku við honum,. gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim, sem trúa á nafn hans. Jóh. 1:12. "Ef þú játar með munni þínum og trúir með hjiarta þínu að Guð hafi uppvakið hann frá dauðuim, muntu hólpinn verða.” Róm. 10:9. “Sá, sem trúir á soninn hefir eilíft líf, en sá sem ekki hlýðnast syninum skal ekki sjá lífið heldur varir Guðs reiði yfir honum.” Jóh. 3:36. Af þessu sér þú, vinur minn, að þú þarft persónuiegan frelsara, sem getur afmáð og burttekið syndir þínar, og Jesús er sá eini, sem getur það. Veittu honurn viðtökur nú, áður en það verður of seint. Viðurkendu syndir þínar fyrir Guði. Kannastu við að þú sért glataður, fordæmdur syndari, og að þú vilt taka á móti Jesú og tileinka þér forþén- ustu hans til fyrirgefningar syndanna, þá munt þú öðlast frið og gleði og verða unnnyndað- ur í hugsun og hjiartalagi eftir Jesú elskulegu mynd, og blessun Guðs mun hvíla yfir þér i ríkum mæli. W. S. Hversvegna lesa Guðs orð ? Af því það geylmir dýrmæta fjársjóðu, sem þú getur eignast ef þú sækist eftir þeim. Jesús segir: “Sá finnur sem leitar.” Þegar menn heyra að gull liafi fundist þá fá þeir áhuga fyrir að ná í það. Þegar það fréttist 1849 að gull hefði fundist í Californíu þá flyktist fólkið vestur; menn voru fúsir til að mæta allskoniar hættum og . erfiðleikum til að eignast gullið. Gimsteinar, gull og silfur liggur ekki á yfirborðinu svo letingjar geti týnt það upp. Nei, menn verða að erfiða og grafa til að finna hinia huldu fjársjóði í dýpi jarðarinnar. Þannig er það einnig með Guðs orð. “Leitið í bók Drottns og lesið.” Jes. 34:16. “Ef þú leitar að þeim sem að silfri, og grefst eftir þekra eins og fólgnum fjársjóðum þá munt þú skilja hvað ótti Drottins er og öðlast þekk- ing á Guði.” Orðskv. 214, 5.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.