Stjarnan - 01.05.1940, Qupperneq 8
40
STJARNAN
Hitt og þetta
Bændur í fjallabygðuin Evrópu eru hár-
prúðir; og þeir þakka það því að þeir bursta
hárið svo oft og að þeir drekka svo mikið af
súrri geitamjólk.
4 4 > 4
Venezuela framleiðir daglega 600,000 tunn-
ur af óhreinsaðri steinolíu. Þetta er meir en
það, sem framleitt er í U.S.S.R. En þó hefir
Rússland verið annað í röðinni í þessari frato-
leiðslu í heiminum í mörg undanfarin ár.
t + tt
Rússneskir vísindamenn hafa auglýst að
þeir hafi fundið nýtt ráð til að geyma blóð
til innspýtingar án þess að frysta það. Þeir
gjöra það að dufti sem má geyma í loftheld-
um glerílátum, svo er það leyst upp þegar
með þarf til innsprautinga.
4 4 4 -f
Hið nýja landabréf Bandaríkjanna sýnir
að 503,000,000 ekrur af landi eru enn þá ó-
mældar eftir 150 ár. Þar af er áætlað að
127,000,000 ekrur séu á megimlandi Banda-
ríkjanna og 376,000,000 ekrur í A'laska.
4 4 + 4
Menn hafa komist að því að það hefir
mikil áhrif á vellíðan farþega með flugvélum
hvaða litur er notaður til að mála flugvélarnar
að innan. Brúnn og gulur Íitur hafa óþægileg
áhrif, en grænn litur kemur í veg fyrir veik-
indi eða sjósótt.
Siðan stríðið byrjaði hefir Brezka og
Erlenda Bibliufélagið sent út 40,000 Biblíur
og Nýja Testamenti handia hermönnum og
sjómönnum.
4 4 4 4
Norska þjóðþingið hefir nú í fjórtánda
skiftið kosið C. J. Hambro fyrir forseta sinn.
Það er sjaldgæft að menn í svo langan tíma
geti haldið ábyrgðar- og trúnaðarstöðu.
4 4 4 4
Ungir menn, sem vilja ganga í herinn í
Panama verða að minsta kosti að vera 5 fet
og 10 þumlungar á hæð, jafnvel þó þeir seto
eru við önnur ríkis- eða stjórnarstörf megi
vera í minsta lagi 5 fet og 4 þumlungar. Or-
sökin er sú að lágvaxnir menn geta svo hæg-
lega vilst í hinu hávaxna skóggrasi í Panama.
Þeir þurfa að vera svo hávaxnir að geta séð
yfir það.
STJARNAN kemur iit einu sinni á mán-
uði. Verð: $1.00 á ári. Borgist fyrirfram.
Publishers: The Canadian Union Con-
ference of S. D. A., Oshawa, Ont.
Ritstjórn og afgreiðslu annast
Miss S. JOHNSON, Lundar, Man., Can.
Bandaríkin hafa toanntal tíunda hvert ár.
Idið síðasta var 1930. Eandinu er skift í
héruð, svo er héruðunum skift í smærri lands-
hluta svo einn maður getur hæglega talið í
þeim. Menn þeir, sem eiga að taka mann-
talið skifta fleiri þúsundum. Uögin leggja
þunga hegningu við að gefa rangar upplýs-
ingar um fæðingarstað eða þjóðerni.
4 4 4 4
Ein af sparnðaarreglum Þjóðverja er sú
að skröddurum er ekki leyft að hafa nema
einn vasa á karlmannabuxum, meðan stríðið
stendur yfir.
4 4 4 4
Vísindamenn hafa fratoleitt nýja tegund
af gleri, svo bráðum geta menn keypt gleraugu
sem ekki brotna.
4 4 4 4
Altaf er tóbaksframleiðslan að færast i
aukana. Árið sem leið voru búnir til i Bánda-
ríkjunum 172,466,437,347 vindlingar. Yfir
hálfa biljón fleiri en 1938. Vindlum fjölgaði
um 3 af hundraði.
4 4 4 4
Bandai'íkja Stálfélagið, hið stærsta af Ame-
rískuni stálfélögum framleiðir toeira á ári
beldur en það sem framleitt er af öillum stál-
félögum til samans í Þýzkalandi, Frakklandi
og Bretlandi.
4 4 4 4
Það er sagt að Japanir láti hermenn sína
hafa nafnspjald sitt um hálsinn og á eftir
nafninu stendur einhver þessiara bókstafa, O..
A., B, eða AB. Þetta sparar tíma ef her-
maðurinn verður særður og þarf innspýtingu
af blóði, því stafirnir gefa til kynna blóðteg-
und mannsins, sem læknar áður hafia rann-
sakað.
4 4 4 4
Sagt er að loftið í námum, sem ganga 35
tnílur niður í jörðina, sé svo þungt að sumar
tegundir af trjávið geti flotið í því.