Stjarnan - 01.12.1941, Qupperneq 1
STJARNAN
DESEMBER, 1941 LUNDAR, MAN.
jfeSjí'
(gleiiíleg: jól!
Hjartkæru landar mínir og vinir, ieg
heilsa yður með ávarpi Páts postula til
Pilippíborgar manna: “Gleðjið yður ávalt
í Drotni og enn aftur segi eg, gleðjið
yður.” Nú býst eg við margir hugsi eða
segi: “Já, það er nú hægt að segja manni
að vera glaður þegar bræður, synir, feður
og eiginmenn ef til vill eru komnir á víg-
völlinn, eða húast má við að þeir verði kall-
aðir nær sem er, og útlitið í heiminum slílct,
sem öllum er kunnugt.” Eg veit það er
margt til að hryggja oss á þessum dögum,
en Guðs börn hafa þau einkaréttindi að
líta fram yfir þrengingar þessa tíma til
þeirrar dýrðar, sem þau brátt munu öðl-
ast með Drotni vorum og frelsara. Vér
eigum arfteifð, sem óforgengileg er, flekk-
laus og aldrei fölnar, sem oss er geymd á
himnum. (I. Pét. 1:3.4.). Um leið og vér
með alúð og áhuga rækjum vorar jarð-
nesku skyldur, þá þurfum vér um fram alt
að hafa hugann á því, himneska en ekki
hinu jarðneska. Kol. 3:2. “Þvi fegurð
þessa heims hverfur.”
Spádómarnir um síðustu daga heimsins
uppfyllast daglega fyrir augum vorum, og
Jesus kemur bráðum sem konungur kon-
unganna, og Drottinn drotnanna. Hann
kemur til að samansafna sínum útvöldu og
gefa þeim ríkið með sér. Þar sem nú alt
bendir á að koma Krists er í nánd og fyrir
dyrurn, þá getum vér fagnað í voninni,
fyltir óútmálanlegri dýrðlegri gleði í full-
vissunni um að bráðum fáum við að sjá
hann eins og hann er og verða ummyndað-
ir eftir hans dýrðarmynd. Meðan vér
nú bíðum uppfyllingar þessarar dýrðlegu
vonar, þá látum os.s, sem trúa samverka-
menn Krists gjöra alt, sem í voru valdi
stendur til að leiða aðra, bæði nær og fjær,
til vors elskaða frelsara, svo þeir ásamt oss
megi njóta arfleifðar Guðs barna um eilífar
aldir. Biðjum án afláts fyrir ástvinum
vorum og öðrum. “Gleðin í Guði sé yðar
styrkleiki.”
“Heyrir bænir barna sinna blíður Guð
og veitir svar.
Ef að þú vilt fögnuð finna, l'yrst af öllu
leita þar.”
S. Johnson.