Stjarnan - 01.12.1941, Page 2
98
STJARNÁN
Undur 20
Vér, seni lifum á tuttugustu öldinni er-
um uppi á reglulegri undraöld. Þegar
vér lesum um fortíðina og berum fram-
farir hennar saman við framfarir vorra
tíma; þá er þar enginn samjöfnuður. Jafn-
vel fyrir aðeins hundrað árum síðan höfð-
um vér fæst af þeim uppfyndingum, sem
nú eru notaðar. Undur og uppfyndingar
er nú orðið svo hversdagslegt að menn
eru alveg hættir að furða sig á þeim.
Nú dettur engum íhug' að gjöra gys að
hinum fjarstæðustu uppástungum viðvíkj-
andi uppfyndingum bæði í vísindum og
iðnaði af því ekkert virðist ómögulegt
lengur. Ef einhver teldi oss trú um að
bráðum yrðu flugvélar smíðaðar, sem gætu
flogið með 1000 milna hraða á klukku-
stund og flogið ofar lofti því, sem um-
kringir þessa jörð, þá mundum vér líta
upp með undrun, en vér mundum trúa að
það gæti orðið. Vér höfum þegar séð það,
sem oss áður þótti jafn ómögulegt.
Undraverk vísindanna.
Nýlega hefir smásjá verið búin til sem
stækkar miljón sinnum. Þessi uppfynd-
ing getur orðið til mikillar hjálpar á ýms-
an hátt. Vér höfum heyrt vísindin tala
um agnir og frumlur, en þetta voru hug-
myndir, sem ekki voru sýnilegar í heztu
smásjám. Hin ofannefnda smásjá notar
rafmagnsneista í stað ljóss og í stað
stækkunarglers segulaflssvæði. og tjald,
sem myndirnar koma fram á. Frumlur
eru sýndar sem þumlungur að þvermáli.
Loftagnir sjást hrindast áfram, og sjúk-
dómsgerlar sjást greinilega. Brátt munu
menn leiða í ljós gerla, sem valdið hafa
veikindum, er læknar réðu ekkert við, og
svo finna þeir upp ráð til að sigra þá.
Þannig geta menn orðið vissari um sigur í
baráttunni við sjúkdóma. Vér inegum
vænta þess að mikil not verði að uppfynd-
ingu þessari, sem gjörir hið ósýnilega stórt
og sýnilegt.
Nú hefir verið búinn til svo stór sjón-
auki að glerið í honum er 200 þumlung-
ar að þvermáli. Þetta gler, sem er hið
verðmætasta i heimi er sett upp á umjir-
stöðu úr stáli, sem vegur 500 skippund.
Það hefir tekið tíma, svo árum skiftir, að
fægja glerið. Svo örugglega er það sett
aldarinnar
upp, að það er eins sterkt og stór brú, en
eins nákvæmt eins og vasaúr. Svo vel er
um búið að það þarf aðeins 165 þúsund-
ustu af hestafli til að hreyfa sjónaukann.
Með því að nota þennan sjónauka geta J
stjörnufræðingar séð mörg hundruð milj-
ónir milna lengra út í himingeyminn, held-
ur en nokkru sinni fyr. Hann stækkar
svo tunglið eins og það væri aðeins 29
mílur frá jörðinni. Þetta mun eflaust
hjálpa til að ráða fram úr mörgum leynd-
ardómum, sem alt til þessa hafa staðið
fyrir vísindunum, til dæmis um stjörn-
urnar, sem sýnast sprengjast út í geymn-
um, skurðina á Marz, og' spurninguna um
það hvort hnettirnir séu bygðir. Sjónauki
þessi mun sýna stjörnur, sem hrapa með
2200 mílna hraða á sekúndunni og sam-
tímis framleiða 10,000 stiga hita.
Framfarir í iðnaði.
Hugsið yður mannlíkanið þannig til-
búið að það lítur út eins og maður með *
öllum limum, en tilbúið úr fleiri vélum,
efnasamsetningu og ýmsum visindalegum
uppfyndingum og sett saman með raf-
magni. Mannlíki þetta getur sett vélar í
hreyfingu og stöðvað þær, staðið vörð,
fundið galla á vörum, stjórnað vinnu í
verksmiðju, litið eftir uinferð á strætum
eins og lögregluþjónn, og gjört nærri því
hvað sem er nema hugsa, sýnist stundum
geta það líka.
Oss er sagt að Henry Ford búi til ýmsa
parta í bíla sína úr Soy-baunum, svo sem
stjórnarhjólið, seinasta málið á bilinn og
dyrahnúðana, vér skiljum þetta ekki en
það er satt samt. Á vorum tíma er svo
margt tilbúið úr samsettum og umbreytt-
um efnum. Efnafræðingarnir eru frægir
orðnir. Þeir taka úrgang, sem áður var
kastað í burtu, rusl, sein álitið var einkis
virði, og búa til úr því marga gagnlega,
varanlega og útlitsgóða hluti til ýmsrar
notkunar. Þeir taka almenna hluti úr
jurta, dýra og steinaríkinu og búa til úr
þeim, nærri því alla hugsanlega hluti.
Undraöld jarðijrkjunnar.
Allur auður heimsins kemur úr jörð- ^
inni. Fjöldinn af íbúum heimsins lifa af
jörðinni, annaðhvort á jarðyrkju eða