Stjarnan - 01.12.1941, Qupperneq 4

Stjarnan - 01.12.1941, Qupperneq 4
100 S TJARNA N þeirra, svo sjúkdómar hafa verið rændir þeirri skelfingu, er þeir áður höfðu í för með sér. Hið undraverðasta af öllu er það þess- ar framfarir hafa átt sér stað á hinum síðustu rúmum 100 áimm og þær mikil- vægustu þeirra á síðustu 30 árum. Nú á dögum sýnist enginn endir á uppfynding- um og nýjungum. En það undraverðasta er að þúsundir ára liðu án þess þær byrj- uðu. Undraverk þessara síðustu tíma verða ekki skýrð með því að rannsaka mannkynssöguna eða framþrá mannsand- ans. Það er einungis ein leið að skýra þau. Allar þessar undraframfarir eru yfir- náttúrlegs eðlis, þær eru kraftaverk. Allar þessar framfarir og uppgötvanir eru beinlinis eða óbeinlínis gagnlegar fyrir mannkynið, jafnvel þó sumar þeirra séu misbrúkaðar mönnum til eyðileggingar. Alt gott kemur frá Guði. Hann hefir gefið nútíðarmönnum meiri visku og hugsjónir beldur en fyrri tíma kynslóðum. En hvers vegna hefir hann gjört það? Það eru margir spádómar í Biblíunni, sem benda á að sá sami Jesús, sem sagn- fræðingar kannast við að einu sinni hafi lifað hér á jörðunni muni koma aftur, og þá sem konungur dýrðarinnar. Hann mun gjöra fullkominn enda á synd og syndur- um, innleiða réttlæti, skapa nýjan himin, og nýja jörð, þar sem réttlætið mun búa að eilífu. Bæði Jesús sjálfur og margir spámannanna sögðu fyrir endurkomu Krists og þeir hafa lýst tímanum þegar hann mundi koma. Mörg tákn eru gefin til að benda á nálægð komu hans. “Þegar þetta tekur að koma fram þá vitið hann er i nánd', fyrir dyrum,” segir Jesús. Hvað var það þá, sem hann talar um að komi fram? Vér skulum hér benda á nokkia af þeim spádómum. Jesús sagði við læri- sveina sína: “Þá mun ein þjóð risa upp gegn annari, og eitt riki gegn öðru, þá munu á ýmsum stöðum verða miklir land- skjálftar, hallæri og drepsóttir.” “Tákn munu verða á sólu, tungli og' stjörnum og á jörðunni angist rneðal þjóðanna í ör- vinglun. Sjór og haf mun þá þjóta og menn munu þá deyja af angistarfullri eftir- vænting þess er yfir allan heiminn mun koma.” Lúk. 21:10.11.25.26. vers. Einhver gæti sagt að slíkt hafi áður komið fyrir. Það er rétt, en athugið það. að innan þess tíma, sem áðurnefndar fram- farir hafa átt sér stað þá hefir “þetta” sem spádómarnir tala um, komið víðar fyrir og oftar, og valdið miklu meiri eyðilegg- ingum en fyr. Stundum margfalt meiri. Þessi spádómur, sem Jesús bar fram var svar upp á spurningu lærisveina hans: “Hvað mun verða merki tilkomu þinnar og endi heimsins?” Matt. 24:3. Það er víðar í spádómunum talað um endir heims- ins. Daníel spámanni var sagt: “Haltu þessum orðum leyndum og innsigla bókina þar til að endalokunum líður, margir munu rannsaka hana og verða vísari hins sanna.” Þessi texti á sérstaklega við aukna þekkingu á Biblíunni eða spádómum henn- ar og' rannsókn þeirra, það virðist aðal- hugsunin^ en hann felur einnig i sér al- menna þekkingu, því fyrir hina undra- verðu framför manna í þekkingu á nátt- úrunni og öflum hennar er það mögulegt að flytja gleðiboðskapinn með hraða. Vér lifum á tíma endisins. Guð hefir gefið mönnunum hugvit og framfarir þess- arar aldar til þess sérstaklega að vara þá við, svo þeir geti verið undirbúnir þegar endirinn kemur. Aðrir spádómar benda á að tími endisins verði skelfingartími; ef vér því daufheyrumst við aðvöruninni að vera viðbúnir, þá erum vér í hættu að missa, ekki eiungis þetta, heldur einnig hið leilífa lífið. Guð talar til vor með þrumurödd gegn- um þessar undraverðu framfarir vorra tíma, og aðvörun og áminning hans til vor er að vér snúum oss til hans af öllu hjarta meðan ennþá er tími og tækifæri, því innan iítils tíma, já, mjög litils tíma, mun eyði- legging ganga yfir íbúa heimsins. Vér getum orðið frelsaðir frá þessar eyðilegg- ingu sálar og líkama, ef vér nú viljum snúa oss að Guðs orði, trúa á hann sem einn getur frelsað oss, Jesúm Krist, Guðs son, og með hans hjálp hlýða öllum Guðs blessuðu boðum. R. B. Th. Bindindismálið er að fá meira fylgi í suðurhluta Bandaríkjanna. Mississippi er hið eina af suðurríkjunum sem hefir á- fengisbann en það er ráðgjört að koma því á í Norður og Suður Karolína og í Georgia.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.