Stjarnan - 01.12.1941, Side 8

Stjarnan - 01.12.1941, Side 8
104 S TJA RNAN Til umhugsunnar Hefir þú athugað hvað Jesús varð að leggja í sölurnar til að frelsa þig? Hann yfirgaf hásæti sitt á himnum, sem með- stjórnandi Föðursins yfir alheiminum. Hann hafði á hendi yfirstjórn englanna, sem tignuðu og tilbáðu hann. Þín vegna slepti hann þessu. Hann dó fyrir menn- ina og lagði á hættu eilífan aðskilnað frá sínum elslcandi Föður. Hér á jörðinni barðist hann móti synd og freistingum og vann sig'ur, Hann leið þá smán að vera misþyrmt af vondum mönnum og líða fyr- irlittegan dauða á krossinum. Alt þetta leið hann fyrir þig og mig. Nú biður hann þig svo innilega: “Son- ur minn, gef mér hjarta þitt.” Hverju svarar þú? Er ekki þetta umhugsunar- vert? “Þar sem þinn fjársjóður er þar mun og þitt hjarta vera.” Ef fjársjóður þinn er á himnum, þá mun löngun þín og áhugamál vera að flýta komu Guðs ríkis. Það er að leiða sálir frá dauðanum til lífs- ins, fyrir trú á Jesú forþénustu og full- komna undirgefni undir Guðs vilja. Þá munt þú setja þér það markmið að vera verkfæri í Guðs hendi til að flytja fagnaðar- erindi frelsisins til hinna glötuðu hvai sem þú fer. E. S. Rétta svarið f fornöld var konungur einn, sem spurði þrjá vitringa hvað væri hin mesta óhamingja í heiminum. Hinn fyrsti svaraði: “Mesta óhamingja er að ná hárri elli, bilaður á sál og lík- ama, sjúkur og fátækur.” Sá næsti svaraði: “Það er að vera fá- tækur og vonlaus, og óþolinmóður yfir kjörurn sínum. Óþolinmæðin er hin mesta óhamingja.” Hinn þriðji sagði: “Það er þó ennþá skelfiLegra að horfast í augu við dauðann, og vita að maður hafi lifað gagnslausu lífi og ekkert gjört til að búa sig undir eilífðina.” “Þetta er rétta svarið,” sagði konungur- inn. Engisprettur geta flogið um 15 mílur á dag. STJARNAN kemur út einu sinni á mán- uði. Verð: $1.00 á ári. Borgist fyrirfram. Publishers: The Canadian Union Con- ference of S. D. A., Oshawa, Ont. Ritstjórn og afgreiðslu annast Miss S. JOHNSON, Lundar, Man., Can. Smávegis Fyrsta bréf, sem sent var með loftfari var til Benjamín Franklin þegar hann bjó á Frakklandi árið 1785, það var sent með loftbelg yfir sundið frá Englandi. 4-4-4- Svíþjóð heldur í ár 400 ára minningar- hátíð þess er öll Biblían var i fyrsta skifli prentuð á sænsku. Sænskar biblíuþýðing- ar voru til fyrir árið 1541 en “Vasa Blbían” er svo var nefnd, var sú fyrsta, sem gefin var lit í heilu lagi. 4-4 4 Appelsínur hafa ekkert sykurefni í sér, svo þær þroskast ekki eftir að þær eru teknar af trénu. 4 4 4 Landstjórinn í Bermuda hefir nú vald til að bjóða hverjum sem honurn sýnist að flytja burt úr eyjunni ef hann álitur það nauðsynlegt fyrir velfierð þjóðarinnar, landvörn eða framgang stríðsins. 4 4 4 Columhia University álítur að þegar nemandi, sem fengið hefir mentun sína á slíkri stofnun sé orðinn 60 ára, þá hafi hann unnið ,sér inn að meðaltali 72 þús- und dollurum meira beldur en sá, sem að- eins hefir gengið gegnum miðskóla eða Í2 bekki. Eftir því er hvert ár á University 18 þúsund dollara virði. 4 4 4 Skýrslur frá 1. ágúst sýna að þjóðar- skuld Bandaríkjanna er stigin upp í rúrnar 50 biljónir dollara, það er aðeins 15 biljón dollurum minna heldur en lögin leyfa að skuldirnar megi verða í hæsta lagi. 4 4 4 4>að er áætlað að fo.ssar fslands gætu frainLeitt hálfa þriðju miljón hestöfl, en þessi vatnskraftur er að mestu leyti ónot- aður.

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.