Stjarnan - 01.08.1942, Side 3

Stjarnan - 01.08.1942, Side 3
STJARNAN 67 drotnanna. “Af munni hans gekk tví- eggjað sverð biturt með hverju hann slær þjóðirnar og ríkir yfir þeim með járn- sprota. Hann treðnr vínpressu heiftar reiði Guðs hins alvalda.” Op. 19:15; nú er hann, og hefir verið síðan hann sté til himins, vor æðsti prestur, sem framber sitt blóð fyrir alla iðrandi syndara. Þegar hann nú kemur innan skamms, þá kemur hann bæði sem konungur og dómari þeix-ra sem hafnað hafa náð hans. Þessu við- víkjandi segir hann sjálfur: “En þegar mannsins sonur kemur í dýrð sinni og allir englarnir með honum, þá mun hann sitja í sínu dýrðarhásæti, og allar þjóðir munu safnast til hans, hann mun aðskilja þá eins og þegar hirðir skilur sauði frá höfrum, og skipa sauðunum til hægri, en höfrunum til vinstri hliðar.” Matt. 25: 31-33. Þá kemur hann til að uppskei-a ávöxt jarðarinnar. “Kornskerutíminn er endir heimsins, kornskurðarmennirnir eru engl- arnir, því eins og illgresinu er safnað og það brent í eldi, eins mun fara við enda þessarar veraldar. Mannsins sonur mun þá senda engla sína og þeir munu saman- safna úr hans ríki öllum hneykslunum og þeim sem rangjlæti fremja og kasta þeim í ofn glóanda, þar mun vera grátur og gnístran tanna.” Matt. 13:39-42. Þessi lýsing á endurkomu Krists geðj- ast ekki holdlega sinnuðum svndugum manni. Þar er engri von haldið fram fyrir hinn iðrunarlausa syndara á þeim degi, en dýrðleg von fyrir þann, sem nxi vill snúa sér frá syndinni og vaka og biðja og vænta komu lausnarans. Þegar hann kemur mun hann afmá dauðann og innleiða dag hins eilífa Iífsins. Hinir dauðu rnunu þá upp- rísa, állir sem í Kristi eru dánir. I. Þess. 4:16). Hinir lifandi fylgjendur Krists munu þá verða ummyndaðir og hrifnir til skýja til að vera siðan nxeð Drotni alla tíma. Þetta er það sem Bi'blían kennir um endurkomu KJrists. Hver verða áhrifin á þjóðir heimsins? Allar þjóðir heimsins eða stjórnir þeirra verða að lokum að víkja úr sessi fyrir þeirri stjórn, sem grundvölluð verður á sannleika, réttlæti og kærleika. Endurkoma Krists verður hinn skelíi- legasti um (leið og hinn dýrðlegasti við- burður, sem nokkurn tíma á sér stað á þessari jörð. Spámenn Gamla Testament- isins hafa lýst lionum svo að hann mundi hrista jörðina. (Sjá Jer. 4:23-27 og Jer. 24:1-17). Allir spámenn Gamla Testa- mentisins, sem minnast á þennan atburo eru þeim sammála. Og Jesús segir: “Þar mun verða grátur og gnístran tanna.” Pétur postuli skrifar: “Dagur Di'ottins xnun koma sem þjófur á nóttu, þá munu himnarnir með miklum gný líða undir lok, frumefnin af eldi sundurleysast, jörðin og þau verk, sem á henni eru upp brenna. Þareð alt þetta ferst, hvílíkum mun yður þá byrja að vera með heilagri breytni og guðrækilegu diferni.” 2. Pét. 10. 11. Jóhannes postuli talar mjög skýrt og skorinort um þennan tíma þegar Kristur kemur til að dæma heiminn: “Himininn hvarf eins og samanvafið bókfell, og hvert fjall og ey færðist úr stöðvum sínum. Kon- ungar jarðarinnar, höfðingjar og hers- höfðingjar, auðmenn og ríkismenn, þræll og þegn fólu sig í hellum og hömrum fjalla, og sögðu til fjalllanna og hamranna: hi-ynjið yfir oss og felið oss fyrir ásjónu þess, sem á hásætnu situr og fyrir reiði lainbsins, því nú er kominn sá mikli dagur hans reiði. Hver fær nú staðist ” Op. 6:14-17. Orðatiltækin í 16., 18. og 19. kapítula Opinberunarbókarinnar taka af allan ela um það að endurkoma Krists mun hafa veruleg áhrif á hnöttinn sjálfan sem vér búum á. Siðmenning þeirri siem nii á sér stað verður öldungis kollvarpað. Vér get- um ekki gjört hetur en að benda á hér það sem rithöfundur einn hefir skrifað um það tímabid þegar náðartíminn er á enda, og Jesús kemur aftur: “Það er um miðnætti sem Guð birtir kraft sinn til að frelsa sitt fólk . . . Hvert táknið og stórmerkið rekur annað með örstuttu millihili. Hinir spiltu horfa á þessi fyrirbrigði með undrun og skelfingu, en hinir réttlátu lita með óumræðilegum fögn- uði hið hátíðlega merki frelsunarinnar. Öll náttúran virðist hafa hreytt eðli sínu. Árnar hætta að renna, svört og þykk ský hylja himininn og rekast hvert á annað. Á miðjurn himninum, sem er ægilegur að líta er einn einasti bjartur blettur óút- málanlega dýrðlegur, þaðan heyriist rödd Guðs eins og hljómur margra vatna segj- andi: “Það er fram komið.” Þessi rödd

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.