Stjarnan - 01.11.1942, Blaðsíða 1

Stjarnan - 01.11.1942, Blaðsíða 1
STJARNAN NÓVEMBER, 1942 LUNDAR, MAN. Reynsla trúar vorrar Hefir þú nokkurn tíma hugsað um hvernig þú gætir fullvissað sjálfan þig um að þú hefðir sanna kristilega reynslu? Jóhannes postuli sýnir oss hvernig vér getum mælt vorn andlega þroska og af- stöðu vora til Guðs. I. Jóh. 2:3.4. Fleiri atriði eru nefnd í Biblíunni, sem benda á verulegleika trúar vorrar og kristilegrar reynslu. Hér skulum vér at- huga reynslu hlýðninnar. Heilbrigð trú- arreynsla er ekki fólgin í tilfinningum einum og geðshræringu, játning um lotn- ing og kærleika, eða háværum gleðilát- um. Sönn og lifandi trú sýnir sig í dag- legri undirgefni undir Guðs vilja og hlýðni við boðorð hans undir öllum kring- umstæðum, hvort heldur í heilsu eða van- heilsu, meðlæti eða mótlæti. Það þýðir ekkert hve einlæglega vér ímyndum oss að vér þekkjum Krist, eða hve alvarlega vér gjörum kröfu til sam- félags við hann. óhlýðni, sem vér sýn- um mótmælir játningu vorri. Hvers vegna? Af því að þekkja Guð er að elska hann, og að elska hann er að hlýða honum. Þér munið að Jesús sagði: “Sá, sem elskar mig hann mun varðveita mitt orð.” Jóh. 14:23. Enginn hlutur getur komið í stað hlýðninnar. Engin sjálfboðaþjónusta, fórn eða sjálfsafneitun verður tekin gild í stað hennar. Guð metur skilyrðislausa hlýðni meira heldur en nokkra fórn, sem menn geta fær thonum. Lesið söguna í I. Sam. 15. kapítula þar til kemur að 22. versinu þar sem spámaðurinn segir: “Hlýðni er betri en fórn og gaumgæfni betri en feiti hrútanna.” Hlýðni er hin fullkomnasta sönnun fyr- ir lotning og tilbeiðslu. Sumir fasta og biðja og fylgja vissum trúarbragðareglum. En þetta er alt einkis virði ef vér höldum við óhlýðni í hjörtum vorum. “Því kallið þér mig herra, og gjörið þó ekki það, sem eg býð yður?” er ávítun sem Jesús gefur í Lúk. 6:46, svo bætir hann við þessari sláandi dæmisögu: “Eg vil segja yður hverjum sá er líkur, sem kemur til mín og heyrir mín orð og breytir eftir þeim. Hann er líkur manni þeim, er bygði sér hús, gróf djúpt fyrir og grundvallaði það á kletti; nú er vatnsflóð kom skall straum- urinn á þessu húsi, en fékk hvergi hrært það, því það var grundvallað á kletti. En sá, er heyrir mín orð og breytir ekki eftir þeim, hann er líkur manni þeim, er bygði sér hús á jarðvegi en hafði enga undirstöðu; þegar straumarnir skullu á því féll það þegar og þess hrun varð mikið.” Sú hlýðni, sem Guði er þóknanleg er ekki fólgin aðeins í ytri siðum, heldur í þjónustu kærleikans. Lögmál Guðs, sem oss er boðið að hlýða er endurskin af hans eiginlegleikum. Það eru grundvall- aratriði stjórnar hans, sem öll eru bygð á kærleika. Ef hjörtu vor eru orðin endur- nýjuð eftir Guðs mynd, og kærleika Guðs er úthelt í hjörtum vorum, þá mun líf vort vera í fullu samræmi við lögmál Guðs. Hlýðni, sönn hlýðni, heimtar verulegt afturhvarf, menn verða að snúa baki við mörgu, sem þeir áður festu hug sinn við, meðan þeir voru óumventir. Að hlýða Guði meinar að sá, sem stal steli ekki framar, sá lýgni verði sannorður, sá sem var ágjarn eða braut nokkurt annað af Guðs boðorðum, gjöri það ekki framar, heldur gjöri það sem rétt er. Þetta getum vér aðeins fyrir kraft Krists, er sýnir sig volduglega kröftugan í lífi þeirra, sem elska Jesú. (Kol. 1:29). Páll postuli lýsir hinum sanna anda hlýðninnar er hann segir: “Eg er með

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.