Stjarnan - 01.11.1942, Side 2
90
STJARNAN
Kristi krossfestur. Eg lifi, þó ekki framar
eg heldur lifir Kristur í mér, en það sem
eg nú lifi í holdinu, það lifi eg í trú Guðs
sonar, sem elskaði mig og gaf sig sjálfan
út fyrir mig.” Gal. 2:20.
Sumir ímynda sér að trú á Krist sé
alt, sem krafist er, og að trúin komi í stað
hlýðninnar, en því fer svo fjarri. Trú
án hlýðni er aðeins játning varanna þar
sem hjartað er ekki undirgefið Guði.
Sönn trú á Krist veitir oss kraft til að
hlýða Guði. Guð eri óumbreytanlegur og
hann breytir aldrei skilyrðinu fyrir eilífu
lifi, sem er fullkomin hlýðni við lögmál
Guðs. “Hver sem réttvísina gjörir er
réttvís eins og hann er réttvís.” I. Jóh.
3:7. “Réttsýn eru öll hans boðorð, þau
eru óbifanleg um aldur og eilífð, gjörð
með sannleika og einlægni. “Orðskv.
111:7.
Þúsundir manna bera þungar byrðar,
sem þeir álíta að Guð hafi á þá lagt, þegar
sannleikurinn er sá að okið sem þeir bera
er takmörkuð hlýðni og ófullkomin undir-
gefni undir Guðs vilja. Jesús á engan þátt
í slíku. Hann verður að hafa öll yfirráð í
lífi mannsins. Að vera nærri frelsaður er
að vera alveg glataður. Jesús heimtar
fullkomna undirgefni, það er, að vera af
öllu hjarta með Guði.
Sál konungur er dæmi upp á hvað það
þýðir að hlýða Guði að mestu leyti en ekki
fullkomlega. Vera má hann hafi fylgt
Guðs vilja 9 tíundu vegarins, en ákvæði
Guðs honum viðvíkjandi er þetta: “Þrjóska
er galdraglæpur og einþykkni skurðgoða-
dýrkun; þess vegna fyrst þú hefir burt
snarað Drottins orði, þá hefir hann burt
snarað þér að þú sért ekki framar kon-
ungur.” I. Sam. 15:23.
Sál hafði heiðursstöðu í sögu Guðs
þjóðar. En hver varð ávöxturinn af sæði
óhlýðninnar í lífi hans? Það svifti hann
gleði lífsins. Hann varð óhamingjusam-
ur. Skýin byrgðu himin hans, í hjarta
hans var enginn friður, engin ánægja,
enginn gleðisöngur á vörum hans. Hann
varð grunsamur og geðvondur. Hinn illi
andi öfundarinnar kvaldi hann dag og
nótt. Hans eigin ímyndanir skelfdu
hann. Angistarfullur hrópaði hann: “Guð
hefir yfirgefið mig og svarar mér ekki
lengur.” I. Sam. 28:15. Slík er uppsker-
an, sem menn hljóta fyrir óhlýðni sína við
Guð.
Að vísu geta þeir, sem óhlýðnast Guði
haldið áfram að fylgja ytri siðum guð-
rækninnar, en líf þeirra er snautt af kær-
leika, friði og hamingju. Viljandi óhlýðni
gegn einni einustu skipun Guðs hindrar
áhrif Guðs anda í lífi mánnsins, hún gjör-
ir bænina að andstygð fyrir Guði, og allar
guðræknisiðkanir árangurslausar. Orðskv.
28:9. Jes. 1:10-19.
Sönn hlýðni sprettur af kærleika til
Guðs fyrir kraft Krists, sem dvelur í
hjarta mannsins. Kristindómurnin er líf
og kraftur. Það er Jesús, sem lifir sínu
lífi í oss, og líf hans var fullkomin hlýðni,
já, hlýðni alt fram í dauðann á krossin-
um. Fil. 2:8. Ekkert gat snúið honum
frá hlýðni við vilja föðursins. Siguróp
hans var: “Mig langar til að gjöra þinn
vilja, minn Guð, og þitt lögmál er inst í
mínu hjarta.” Sálm. 40:8.
Hlýðni við Guð veitir manninum svo
mikið af friði, fögnuði, réttlæti og kær-
leika í samfélaginu við Guð, að í stað
þess að vera byrði og sjálfsafneitun, veit-
ir hún manninum óútmálanlega dýrðlega
gleði.
Heimur þessi er í uppreisn gegn guði
og lögmáli hans svo sumir í honum tala
um hlýðni við Guð sem þrældómsok.
Slíkir menn vita ekki hvað þeir tala um,
því það er einmitt óhlýðni, sem skapar
þrældómsokið. Það eru lagabrotin, sem
gjöra menn að þrælum og föngum, en
Guðs boðorð eru lögmál frelsisins, (Jak.
1:25.) oss til verndar. Það sem Guð skip-
ar er ávalt oss til góðs. Guðs börn spyrja
ekki: “Hvers vegna verð eg að gjöra
þetta?” Heldur segja þau: “Tala þú,
Drottinn, því þjónn þinn heyrir.”
Vér getum ekki dýrkað Guð meðan
vér óhlýðnumst boðum hans. Vér getum
ekki umbætt eða breytt áformum Guðs.
Það er hættulegt að fylgja vorum hug-
myndum í stað Guðs boðorða. Guð er
ennþá nákvæmur með að boðum hans sé
hlýtt.
Þegar Guð minnist á hinn síðasta söfn-
uð segir hann að þeir “varðveittu boðorð
Guðs og höfðu Jesú vitnisburð.” Op. 12:17.
Fyrri hlutinn af þessu versi segir að
drekinn eða Satan sé reiður þessum söfn-
uði, sem varðveitir boðorð Guðs. Hlýðni