Stjarnan - 01.11.1942, Page 3
STJARNAN
91
hefir ætíð verið kennimerki Guðs barna
í þessum spilta heimi. Hlýðnin er hinn
sýnilegi vottur þess að þau elska Guð.
“Sá, sem hefir mín boðorð og heldur þau,
hann elskar mig.” Jóh. 14:21. Jesús segir
enn fremur: “Þér eruð mínir vinir ef þér
gjörið það, sem eg hefi boðið yður.” Jóh.
15:14.
Óhlýðni við Guðs boðorð er kenni-
merki eftirfylgjenda satans, þeir eru kall-
aðir “vantrúarinnar synir.” Hlýðni við
öll Guðs boðorð mun einkenna hinn síð-
asta söfnuð Guðs. í 14. kapítula Opinber-
unarbókarinnar er talað um uppskerutíma
jarðarinnar, þar er bent á hlýðni sem
eiginleika þeirra er eilíflega munu njóta
dýrðar með Guði: “Hér reynir á þolgæði
heilagra, sem varðveita boðorð Guðs og
trúna á Jesúm.” Nú á þessari óhlýðnis
öld þegar bæði Guðs og manna lög eru
einkisvirt þá getur Guð bent á menn, sem
“varðveita boðorð Guðs.” Á vorum dög-
um þegar lögleysi og glæpir kosta þessa
einu þjóð, Bandaríkin, 15 biljónir dollara
á ári, nú, þegar fjöldinn af fólkinu einkis-
virðir lögmál Guðs, og jafnvel margir, sem
eiga að flytja Guðs orð eru svo blindaðir
af hleypidómum móti sumum af Guðs boð-
orðum, að þeir vilja negla þau á krossinn,
einmitt nú, hefir Guð það fólk, sem varð-
veitir boðorð Guðs og trúna á Jesúm.
Þeir, sem ekki þekkja Guð geta ekki
hlýtt honum. En satan er reiður við þá
sem varðveita Guðs boðorð. Hvar sem
þú finnur einhvern, sem mótmælir Guðs
boðorðum, þá getur þú gengið að því vísu
að sá maður að svo miklu leyti vinnur
fyrir óvininn jafnvel þó hann hafi brugð-
ið yfir sig blæju kristindómsins.
“Af því þekkjum vér, að vér elskum
Guðs börn, þegar vér elskum Guð og
höldum hans boðorð, því að í því sýnir
sig elskan til Guðs að vér höldum hans
boðorð og hans boðorð eru ekki þung.”
Hvers vegna eigum vér að rannsaka Daníel
°g Opinberunarbókina?
Eítir D. H. Kress, lækni
I bréfi, sem eg fékk fyrir nokkru, segir
bréfritarinn: “Presturinn minn sagði
mér, að eg skyldi ekki kæra mig um þó
að eg skildi ekki Daníels- og Opinberunar-
bókina, því að þær væru þýðingafminni
en guðspjöllin og aðrar bækur Biblíunn-
ar.”
1 svari mínu sagði eg: “Það er erfitt
að gjöra greinarmun á bókum Biblíunnar
cg að segja að eins sé annari fremri. Satt
er það, að í sumum þeirra er boðskapur,
sem á hinum ýmsu tímum gildir þáver-
andi kynslóðir, en er þýðingarminni fyrir
vora tíma. Tökum til dæmis aðvöruniná
um að flóðið væri í vændum og hvatning-
una til mannanna um að leita hælis í örk-
inni, það er aðeins sögulegur viðburður
fyrir .vora tíma, en það varðaði líf og
dauða fyrir þá. Á ýmsum tímabilum
mannkynssögunnar hefir sérstakur boð-
skapur verið sendur til að benda á rang-
læti þess tíma. Alt hefir það lærdómsríkt
gildi fyrir oss.
En það eru samt sem áður ritningar-
staðir, sem tala um vora daga og þeir ættu
að vera sérlega þýðingarmiklir fyrir oss.
Mest er talað um þá í Daníels- og Opin-
berunarbókinni. En þótt undarlegt megi
þykja eru það aðeins fáir, sem reyna að
rannsaka þær. Margir halda jafnvel að
það sé ógjörningur að skilja þær. Sú af-
staða er mjög hættuleg.
Hefði fólk á Krists dögum skilið þá
spádóma, sem töluðu um fyrri komu hans,
þá hefðu þeir kannast við hann, eins og
þar stendur: “Hann kom til eignar sinn-
ar, og hans eigin menn tóku ekki við
honum.”
Ef þeir hefðu skilið það, sem spámað-
urinn Daníel sagði um hann, þá hefðu
þeir ekki hafnað honum þegar hann kom.
Les. Dan. 9, 24-27. Daníelsbók skýrir
greinilega frá, á hvaða tíma Jesús myndi
byrja á kennimanns-embætti sínu og
verða smurður af Gu.ði. Hann sagði einnig
fyrir um krossfestinguna.