Stjarnan - 01.11.1942, Qupperneq 5

Stjarnan - 01.11.1942, Qupperneq 5
STJARNAN 93 manna fyrir hinu mikla hlutverki trúar- bragðanna, og eðlilegt er að heimfæra þetta til þess tíma, er fagnaðarerindið átti að boðast um alla heimsbygðina . . . Engillinn virðist meina að á þennan hátt mundi þekkingin aukast í öllum greinum trúarbragðanna og sérstaklega á þeim atriðum, sem hann benti á. Þetta átti að vera eitt af einkennum þessa tíma og á þennan hátt mundi það verða framkvæmt. Það er merkilegt og þýðingarmikið að veita því eftirtekt, hvað miklu hefir í raun og veru verið til leiðar komið af þeirri kirkju, sem skírskotað er til í Opinb. 12, 17, þeirri kirkju, hverrar markmið er og hefir verið í mörg ár að vekja athygli manna *á Daníels- og Opinberunarbókinni og sérstaklega hversu nálæg endurkoma Krists er og hversu nauðsynlegt það er að undirbúa sig undir þann mikla við- burð. Þetta fyrirkomulag er afleiðing af mikilli endurvakningu og siðbót, sem byrj- aði árið 1844. Það byrjaði smátt en óx ört og nær nú umhverfis alla jörðina með umboðsmönnum sínum og bókmentum. Með þeim möguleikum, sem menn nú ráða yfir, svo sem prentvélum, útvarpi og fiugvélum þarf ekki mikla trú til að sjá, hversu auðvelt það er að ná því ætlunar- verki að prédika fagnaðarerindið um alia heimsbygðina til vitnisburðar öllum þjóð- um. Þegar það er búið, segir Jesús, “þá mun endirinn koma.” Matt. 24, 14. Já, það hefir ákaflega mikla þýðingu að lesa og rannsaka Daníel og Opinberunarbókina með nákvæmni og í innilegri bæn til Guðs. Loforð Guðs er: “Þeir vitru munu skilja það.” Móse hafði rétt fyrir sér FYRSTI KAFLI MÓSEBÓKA ER MJÖG ÁRÍÐANDI Eflir Verner J. Johns. Fyrsta Mósebók er upphaf bókanna. Þremur aðalspurningum á verksviði guð- fræði og heimspeki er svarað í fyrsta kapítula. Þar höfum vér svar valdhafans um 1) upphaf þessarar jarðar, 2) uppruna iífsins, 3) og uppruna efnisins. Það er aðeins Guð — skaparinn — sem af þekk- ingu og valdi getur talað um þetta efni. Það er ekkert lifandi vitni um sköpunina á meðal manna. “Hvar varst þú þegar eg grundvallaði jörðina?” spurði Drottinn ættföður Job. Vér vorum ekki þar. Eng- inn getur fært sannanir um það af þekk- ingu. Hér eru tvær leiðir fyrir oss. Ann- að hvort verðum vér að trúa vitnisburði Guðs eða vér verðum að trúa heilabrot- um heimspekinnar. ágizkunum nokkurra manna, sem hafna Guðs orði en bjóða í staðinn þeirra eigi hugmyndaflug. Það getur ekki orðið neitt samkomu- lag milli þessara tveggja aðilja. Bardag- inn á milli þeirra hefir í sannleika verið frá upphafi og hefir staðið niður í gegn- um aldirnar. Það innilykur ekki aðeins vísindi og heimspeki, en einnig guðfræði. Ef bardaginn um fyrsta kafla Móse er tapaður, eru allir spádómarnir tapaðir. Ef hægt væri að sanna, að fyrsti kapítuli Móse, grundvöllurinn, væri tilbúningur, mundi hinn opinberaði sannleikur falla um sig sjálfan. Ef fyrsta bók Móse er ósönn, eru grundvallarkenningar, sem byrjun syndar, friðþægingin og endur- koman líka ósannar. Athugum þetta greinilega. Ef fyrsti kapítuli í Mósebók- um er ekki fullgildur og sannur, þá er ekki til rödd nokkurs valdhafa, Biblían ó- áreiðanleg og heimurinn án Frelsara. Að hafna fyrstu Mósebók er að hafna Guði. Ef hún er ekki áreiðanleg, þá var Móse svikari og Jesús, sem staðfesti Móse, ekki sonur Guðs. Ennfremur, Jesús var annað hvort sonur Guðs eða sá mesti svikari sem þekkst hefir á jörðinni. Jesús krafðist þess að vera Messías spádómanna, hinn mikli “Eg em,” Skaparinn. Hvaða sann- anir færði hann til að réttlæta kröfu sína? Hið undursamlega starf sitt? Já, en um- fram alt með því að vitna í Ritninguna. Móse og spámennirnir voru vitni hans. Ritningarnar — “þær eru það sem vitna um mig.” Ef vitnisburður Móse og spá- mannanna í Ritningunni er rangur, þá höfum vér engan frelsara né Guð. Öll náttúran staðfestir orð Guðs. Allir steinarnir hrópa. 1. bók Móse er sönn.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.