Stjarnan - 01.11.1942, Page 6

Stjarnan - 01.11.1942, Page 6
94 STJARNAN Sérhver lifandi vera ber orðum 1. Móse- bókar vitni. Trúmaðurinn þarf tkki að óttast opinberanir vísindanna, því að sér- hver vísindaleg sannreynd vitnar um sannleika Orðsins. Það er engin þörf á að vera hræddur við heilabrot hemispekinn- ar, sem hefir yfirskin vísindanna og klæðnað lærdómsins, en býður oss að til- biðja sköpunina í stað Skaparans. Guðs orð er áreiðanlegt og vitnisburður náttúr- unnar er áreiðanltgur. Viðurkennum því sannleikann en höfnum getgátum, jafnvel þó að ósannindi séu sögð sannleiki. Það er annar þýðingarmikill liður þessu viðvíkjandi, sem vér megum ekki ganga fram hjá. Allsstaðar umhverfis oss ríkir synd og dauði. Heimurinn er dauðadæmdur. í blóma lífsins horfumst við í augu við dauðann. Hver lifandi vera verður að deyja. En vér höfum í Kristi þá sælu von — upprisuna eftir dauðann. Oss hefir verið lofað í fagnaðarboðskapn- um lífi og ódauðleika. Yfirnáttúrlegan kraft þarf til að endurfæða þann mann, sem er fæddur í synd, lifir í synd og næstum virðist elska að syndga, — gera hann nýjan skapnað sem elskar réttlæti en hatar ranglæti, og yfirnáttúrlegur kraftur er nauðsynlegur til að reisa mann frá dauðum og krýna hann ódauðleika. Hvernig vitum vér, að Guð er gæddur slíkum yfirnáttúrlegum krafti? Hlustið á Ritninguna: “Svo segir Guð Drottinn sá er skóp himininn og þandi hann út, sá er breiddi út jörðina með öllu því er á henni vex, sá er andardrátt gaf mannfólkinu á jörðinni og lífsanda þeim, er á henni ganga: Eg Drottinn hefi kallað þig tii réttlætis.” Jes. 42, 5. 6. Án þess að tilbiðja Guð sem skapara getum vér ekki haft tiltrú til hans sem frelsara. Er þá að undra þó að nútíðar- vísindi skilji eftir örvæntingu í stað von- ar, myrkur í stað ljóss? Myrkur eilífrar nætur grúfir yfir sálum þeirra manna, sem hafa mist trú á Guði fyrstu Móse- bókar. Þeir eru án “vonar og án Guðs í heiminum. í tilverubaráttunni sjá þeir þá veiku ofurliði borna af þeim sterku og þá sterku beygða af hinum harðbrjósta dauða. Þeir kunngjöra kenninguna “þeir hæfustu lifa,” og samt kannast þeir við, að jafnvel þeir hæfustu munu ekki eftir- lifa. Sá Guð, sem þeir tilbiðja hefir ekki vald til að ge;fa líf í staðinn fyrir dauða. Þessvegna er heróp þeirra, sem steypt hafa Skaparanum úr völdufn í hjarta sínu, hið eldgamla óp örvæntingarinnar. “Et- um og drekkum, því að á morgun deyj- um vér.” Trúmaðurinn viðurkennir að þessi heimur hafi ekki og geti ekki skapað sjálfan sig. “Fyrir því skiljum vér heim- ana gjörða vera með Guðs orði á þann hátt, að hið sýnilega hefir ekki orðið til af því er séð varð.” Hebr. 11, 3. Trú- maðurinn neitar að setja í staðinn sann- leika Biblíunnar neins konar þokufullar tilgátur eða það sem lýtur að framþróun eða yfirleitt aðra kenningu. Hann lýsir því yfir að það sé óskynsamlegt, já, óvís- indalegt að trúa því að jörðin hafi komið fram af sjálfri sér úr kólnandi gasi, sem komið hafi upp einhversstaðar, sem eng- inn veit um. Hann fullyrðir að til meist- arasköpunar þurfi Meistara hugvit. Hann tilbiður þann Guð sem skapaði himin og jörð. Þessvegna samþykkir hann og vill þiggja líf og ódauðleika, sem opinberað er í gegnum Guðs orð. Trúin á Guð er öruggari en trúin á til- gátur, sem fyr eða síðar verður neitað af öðrum tilgátum. Vér samþykkjum sköp- unina, holdtekjuna, endurlausnina og önnur undirstöðuatriði Guðs orðs. Af trú? Já, en trú sem bygð er á vitnis- burði, trú vor er sanngjörn en ekki blind trú á ótal getgátur. Þessi trú opnar fyrir oss fjársjóð vísdóms og þekkingar. Slík trú færir oss von um eilíft líf. Eilífur fagnaðarboðskapur Jesús kemur aftur. Þess er skamt að bíða að ástvinir hans og lærisveinar fái að sjá hann eins og hann er og verða ummyndaðir eftir hans mynd. Jesús vissi hvað eftirfylgjendur hans mundu verða að líða og hann sá um að þeir hefðu alla þá hjálp og hughreystingu sem þeir þyrftu til að komast sigrandi gegnum lífið. Hann gjörði þeim aðvart um erfiðleikana svo þeir væri viðbúnir og slíkt kæmi þeim ekki á óvart. Hann segir: “í heiminum munuð þér hafa þrenging, en verið öruggir, eg hefi sigrað heiminn.” Jóh. 16:33. Hann fullvissar þá ennfremur með þessum orðum: “Mér er

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.