Stjarnan - 01.11.1942, Blaðsíða 7
STJARNAN
95
gefið alt vald á himni og jörðu . . . og sjá
eg er með yður alla daga alt til veraldar-
innar enda.” Matt. 28:18-20. “Vertu ekki
hrædd, litla hjörð, því Föður yðar hefir
þóknast að gefa yður sitt ríki. “Lúk.
12:32. Margir líta áhyggjufullir á fram-
tíðina, en Jesús býður oss: “Spyrjið ekki
hugsjúkir: Hvað fáum vér til matar?
Hvað fáum vér að drekka og hvað fáum
vér til fata, því slíka áhyggju hafa heiðn-
ir menn, en yðar himneski faðir veit þér
þurfið alls þessa við. Leitið umfram alt
Guðs ríkis og hans réttlætis, þá mun og
alt þetta veitast yður.” Matt. 6:31-33.
Alt í gegnum sögu kristninnar hefir
vonin um endurkomu Krists veitt hans
trúu þjónum djörfung og hugrekki í bar-
áttu lífsins. Spádómarnir benda skýrt á,
að rétt áður en Jesús kemur aftur muni
verða slíkir þrengingatímar, sem aldrei
hefðu áður verið í heiminum. Sjá Dan.
12:1. 2. Vér, sem nú lifum getum ekki
efast um að sá spádómur er að uppfyll-
ast nú daglega eftir því sem fréttirnar
berast að hvaðanæfa utan úr heiminum.
Oss er líka bent á í Lúk. 21:26-28 að
“menn munu þá deyja af angistarfullri
eftirvæntingu þess er yfir allan heiminn
mun koma.” “Og þá munu menn sjá
mannsins son komanda á skýjunum með
makt og mikilli dýrð. En þegar þetta
tekur að' koma fram þá lítið upp og upp-
hefjið yðar höfuð því að lausn yðar er í
nánd.
Uppfylling spádómanna á öllum svið-
um bendir ótvírætt á að Jesús er í nánd
og fyrir dyrum. Þá kemur hann í dýrð
föður síns og allir englarnir með honum.
Matt. 25:31. Þá mun hann endurgjalda
sérhverjum eftir því sem hans verk verða.
Op. 22:12.
Þetta er álvarlegt mál. Það er nauð-
synlegt að vita að Jesús kemur þegar
minst varir, en hitt er engu síður nauð-
synlegt að vita hvernig vér stöndum gagn-
vart orði hans og honum, sem dæma mun
lifendur og dauða. Hvers er af oss krafist
svo vér getum verið þess fullvissir að vér
munum finnast þess verðugir að mæta
frammi fyrir mannsins syni og öðlast
ríkið sem Guðs börnum var fyrirbúið frá
upphafi veraldar?
Hér kemur hinn eilífi fagnaðarboð-
skapur til vor: “Svo elskaði Guð heiminn
að hann gaf sinn eingetinn son til þess
að hver sem á hann trúir ekki glatist
heldur hafi eliíft líf.” Jóh. 3:16. Jesús
kom til að frelsa sitt fólk frá þess synd-
um, og synd er yfirtroðsla eða óhlýðni
við Guðs boðorð. Vér játum trú á Jesúm,
en til þess vér getum öðlast Guðs eilífa
ríki og trúrra þjóna verðlaun, þá verður
trú vor á Jesúm að sýna sig í verkinu, í
fullkominni hlýðni við Guðs heilaga lög-
mál, tíu boðorðin án þess að undanskilja
nokkurt þeirra.
Minnist þess að Jesús segir: “Ekki
munu alir þeir,' sem til mín segja herra,
herra, innganga í Guðs ríki, heldur þeir
einir, sem gjöra vilja míns himneska föð-
ur.” Matt. 7:21. “Sælir eru þeir, sem
breyta eftir hans boðorðum, svo þeir megi
hafa aðgang að lífsins tré og megi inn-
ganga um borgarhliðin inn í borgina.”
Op. 22:14.
Reynið yður sjálfa hvort þér eruð í
trúnni, prófið yður sjálfa.
S. Johnson.
Þörf á að hraða sér
Vor flugvél var sú síðasta að komast
burt frá Bataan. Hún hafði verið skotin
niður eftir að stríðið byrjaði og var dreg-
in inn frá Mariveles-flóanum og sett í
stand með pörtum úr annari vél, sem
hafði verið eyðilögð. Vél þessi var alls
ekki hið ákjósanlegasta flutningstæki, en
óvinirnir voru í nánd og þetta var sein-
asta tækifæri til undankomu.
Eftir ítrekaðar tilraunir flugstjórans
komst vélin í hreyfingu kl. eitt um nótt-
ina og loftbáturinn flaug af stað yfir vatn-
ið aðeins 75 fet í loft upp. Óvinirnir
skutu á eftir oss en hittu ekki markið.
Flugstjórinn reyndi að komast hærra upp
í loftið, en vélin var svo kraftlítil, að
hann gat það ekki. Hann þorði ekki að
snúa aftur og óttaðist fyrir að báturinn
mundi falla niður svo hann hrópaði til
farþeganna: “Kastið útbyrðis öllu, sem
þið hafið meðferðis. Fljótt. Fljótt.”
Farþegarnir voru þrír og þeir köstuðu
strax útbyrðis farangri sínum, en það
nægði ekki. Tinhöttum og fleiru var síð-
an kastað út og vélin hóf sig smám
saman 150 fet í loft upp. Þannig kom-