Stjarnan - 01.11.1942, Side 8
96
STJARNAN
umst vér yfir á eyju þar sem engir óvinir
voru fyrir. En það var rétt með naum-
indum að vér komumst þangað, og það
var nauðsynlegt að losa sig í flýti við alt
sem menn höfðu meðferðis til að frelsa líf
sitt.
Þetta minnir á burtför Lots og fjöl-
skyldu hans frá hinum dauðadæmdu
borgum á sléttunum. Þeim var skipað:
“Takið yður upp og farið úr þessum stað.
Frelsa líf þitt lít ekki aftur og nem hvergi
staðar á öllu þessu sléttlendi. Bjarga þér
á fjallinu að þú ekki týnist.”
Þau flýðu og komust aðeins burt í
tíma.
Nú í dag sendir Guð oss aðvörun svo
vér megum “umflýja hina tilkomandi
hegningu,” meðan ennþá að náðin er
framboðin. Ó, að vér vildum gefa gaum
að táknum tímanna, sem ótvírætt sýna að
endir allra hluta er í nánd. Innan
skamms munu hinar 7 síðustu plágur íalla
yfir þá sem hafnað hafa Guðs náð, dauf-
heyrst við aðvörunum hans og slegið á
frest að snúa sér til hans sem einn getur
frelsað frá eyðileggingu og dauða.
Tíminn er þegar liðinn. “Nóttin er
umliðin en dagurinn er í nánd, leggjum
því af verkin myrkranna og íklæðumst
herklæðum ljóssins.” Róm. 13:12.
Fljótt, fljótt, er skipun leiðtoga vors.
Líf vort og hamingja er undir því kom-
in að vér hlýðum honum. X. X.
Smávegis
Japan flutti inn 25,000 hunda frá
Þýzkalandi til að standa vörð við strend-
ur landsins.
+ + +
Áður en stríðið byrjaði notuðu Banda-
ríkin fyrir bifreiðar helming af öllum
“rubber” sem framleiddur var í heim-
inum og 89 hundruðustu af þessari vöru
var innflutt frá Austurálfunni.
+ + +
Wisconsin framleiddi 135,475,000 pund
af osti á einum mánuði nýlega.
+ + +
Innfluttar vörur frá Belgin Congo tii
Bandaríkjanna stigu frá 1,500,000 dollara
virði 1939 til 35 miljón dollara árið 1941.
+ + +
STJ'ARNAN kemur út einu sinni á
mánuði. Verð: $1.00 á ári. Borgist
fyrirfram. Publishers: The Canadian
Union Conference of S. D. A.,
Oshawa, Ont.
Ritstjórn og afgreiðslu annast
Miss S. Johnson, Lundar, Man. Can
Ullin af Angora kanínum (rabbits) er
5 dollara virði pundið. Fullvaxnar kan-
ínur gefa um 14 lóð af ull að meðaltali
yfir árið, svo það borgar sig að ala þær.
+ + +
1800 pund af smjöri, sem ekki var á-
litið hrein fæða, samkvæmt heilbrig'ðis-
lögum landsins, var send til úrgangs
nefndarinnar í New York. Það verður
notað til þess að búa til glycerin fyrir
sprengingar.
+ + +
Amerískar konur nota svo mikinn lit
á varir sínar, að hann mundi nægja tiJ
að mála 40,000 heyhlöður.
Það er einkennilegt fólk, sem talar um
bæn en biður aldrei. Sem viðurkennir, að
menn eigi að borga tíund, en borgar aldrei
tíund sjálft.
Sem vill tilheyra söfnuði en fer aldrei
í kirkju og gefur ekki til kristilegrar
starfsemi.
Sem vinnur fyrir háu kaupi en gefur
aðeins 5 eða 10 cent á viku til eflingar
Guðs ríki.
Sem kannast við að Biblían sé boð-
skapur Guðs til mannanna, en les hana
aldrei.
Sem segist trúa á verðlaun á himnum,
en gjörir aldrei neitt til að öðlast verð-
launin.
Sem segir að eilífðin sé meira áríð-
andi heldur en yfirstandandi tími, en lifir
þó eingöngu fyrir þennan heim.
Sem setur út á hjá öðrum það sem það
gjörir sjálft.
Sem heldur sig burtu frá söfnuði krist-
inna manna en syngur þó: “Eg elska þig
Jesús.”
Sem þjónar myrkrahöfðingjanum alt
sitt líf, en væntir þó að komast til himins
þegar það deyr.
—“Baptist Standard.”