Stjarnan - 01.10.1943, Qupperneq 2

Stjarnan - 01.10.1943, Qupperneq 2
82 STJARNAN sami sem skapðai vatnsmelónuna og sem framkvæmdi kraftaverkið með hinum 5 brauðum og tveimur fiskum. Eru kristnir menn allir vesalmenni? Langt frá því. Það þarf mikinn kraft og hugrekki til að vera kristinn. Biblían áminnir oss um að íklæðast alvepni Guðs: “íklæðist Guðs alvepni svo þér staðist getið djöfulsins vélabrögð, því vér eigum ekki í stríði við hold og blóð, heldur við höfðingja og maktarvöld, við heimsdrotna þessa myrkurs, við vonskunnar anda í himneskum efnum. Takið því Guðs alvepni, svo þér getið veitt mótstöðu á hinum vonda degi og getið að öllu yfirunnu staðist. Standið því gyrtir sannleika um lendar yðar. Verið íklæddir brynju réttlætisins, og útbúið fætur yðar svo þér séuð reiðubúnir að flytja fagnaðarboðskap friðarins. En um fram alt grípið skjöld trúarinnar, sem þér munuð geta slökt með öll aldleg skeyti hins vonda, og takið hjálm hjálpræðisins og sverð andans sem er Guðs orð. Biðjið á sérhverri tíð í anda með alls- konar bænum og beiðni, og verið árvakrir í hinu sama og sífeldlega stöðugir í fyrir- beiðslu fyrir öllum heilögum.” Efes. 6:11 —18. Kristinn maður á í stríði við synd, nautnasýki, geðvonsku, ógirnd, afbrýðis- semi, dramblæti, lostagirnd og sjálfselsku. Hann hefir voldugri óvin að berjast við heldur en nokkur hermaður á orustuvell- inum. Hann verður að fá hjálp hjá þeim sem honum er meiri til að geta sigrað. Vinur minn, án Krists megnar þú ekkert. Jesús var freistaður á allan hátt eins Qg vér, en hann sigraði djöfulinn. Og þegar þú fyrir trúna meðtekur Jesúm í hjarta þitt, þá er sá sterkari sem er með þér heldur en sá sem er á móti, og þú hefir kraft til að vinna sigur. Mér finst svo barnalegi að biðja. Bæn- in er þó það volduga afl sem kemur því til leiðar sem um er beðið. Ritningin segir oss frá að englar heimsóttu menn sem svar upp á bæn. Regn hefir komið frá himni sem svar upp á bæn. Fyrir bæn hafa menn verið reistir frá dauðum, fang- elsisdyr verið opnaðar, sjórinn skift sér til beggja hliða og stormur lægt, alt þetta sem svar upp á bæn. Bæn flytur ekki Guð niður til vor, en hún lyftir oss upp til hans. Hvað er iðrun? Er hún nauðsynleg? Öll hrygð er ekki iðrun. Fangelsin eru full af mönnum sem eru hryggvir, ekki yfir því að þeir hafi brotið Guðs eða manna lög, heldur yfir því að þeir urðu uppvísir. Iðrun er ekki hræðsla. Ef eg miðaði byssu á þig og skipaði þér að iðr- ast, eða eg skyldi skjóta þig, og þú lof- aðir að iðrast. Það væri engin iðrun. Sum- ir verða hryggvir og iðrast þegar iHa gengur, en þegar erfiðleikum léttir byrja þeir aftur sitt gamla syndalíf. Eg hef heyrt sögu um mann sem vann við að fleyta timbri niður fljót. Einn dag féll hann af bjálka ofan í vatnið. Hann vissi hann var ekki viðbúinn dauða sínum svo hann bað Guð að frelsa sig. Hann leit til lands og sá að maður var að kasta .til hans kaðli, svo hann sagði: “Þu þarft ekki Guð minn því Bell er að rétta mér kaðal.” Kona á skipi einu kom til skipstjórans og spurði: “Heldur þú við komumst af?’ Skipstjórinn svaraði: “Mrs. Ef þú heíir nokkurn tíma beðið til Guðs þá gjörðu það nú.” Þá sagði hún: “Ó, skipstjóri, er svona komið?” Yfirbótarverk eru ekki iðrun. Þó menn þjái líkama sinn á ýmsan hátt þá er það ekki iðrun. Tilfinning syndar, eða ásökun samviskunnar er ekki iðrun. Felix skelfd- ist er hann heyrði talað um komandi dóm, því hann vissi hann var syndari, en það var ekki iðrun. Það er ekki iðrun þó menn leggi af einhvern vondan vana, eða betri sig að einhverju leyti. Iðrun er skilyrðis- laus undirgeíni undir Guðs vilja. Iðrun er ekki einungis sorg yfir syndinni, held- ur alger skilnaður frá synd. Iðrun kemur fram í því að menn hafna synd, en snúa sér alvarlega til Guðs. Þeir taka nýja stefnu, snúa baki við syndinni til að þjóna lifandi og sönnum Guði. Er skírn nauðsynleg íil sáluhjálpar? Guðs orð tekur því skýrt fram að “sá sem trúir og verður skírður mun hólpinn verða”. Þess vegna þurfum vér að iðrast og láta skírast. Jesús sagði: “Sá sem elskar mig hann mun varðveita 'mitt orð, og faðir minn mun elska hann og til hans munum við koma og taka okkur bústað

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.