Stjarnan - 01.10.1943, Page 6

Stjarnan - 01.10.1943, Page 6
86 STJARNAN Þrátt fyrir ósköpin sem ganga á í heim- inum, þá hefir hann yfirstjórnina í hmum flóknu vandamálum þjóðanna þó vonlaust sýnist með þau. Einu sinni í stríðinu mikla 1914—1918 áður en Ameríski herinn lét til sín taka var aðeins eitt fótmál milli Þýzkalands og sigurs. En Þýzkarar vissu það ekki íyr en það var of seini. Var það af hendingu? Eða var það yfirstjórn Guðs, sem leyfði þeim aðeins “hingað og ekki lengra?’ Guð stjórnar og hefir yfirráðin yfir ríkj- um mannanna. Hann lítur eftir og hefir hönd á stýrinu til að hegna eða frelsa. Hvaða þjóð eða einstaklingur sem geng- ur veg réttlætisins, getur reitt sig a hjálp hans og umhyggju. “Þeim sem Guð elska verður alt til góðs.” H. F. De Aih. Gefið blómin, segið hughressingarorðin í dag Eg heimsótti stórt sjúkrahús nýlega og tók eftir því að hjúkrunarkonan var að laga blómvönd, tína burtu visnu blómin og hagræða þeim fersku, til að taka þau aftur inn til sjúklingsins. “Fá sjúklingar þínir mikið af blómum?” spurði eg. “Sumir fá blómin áður en þeir deyja”, svaraði hún og lagði áhersluna á áður. Mér flaug í hug þessi athugasemd nokkr- um dögum seinna. Eg var á heimili kunn- ingja minna um morguninn þegar fólkið var að búa sig til að fara í kirkju. Eins og oft ber við hafði húsmóðirin meir en sinn hluta af snúningunum. Maður hennar tók eftir þessu, svo meðan hún var að ljúka við eitthvað úti í eldhúsinu fór hann inn í svefnherbergið. Þegar eg gekk fram hjá dyrunum sá eg hann var að búa um rúmið. Hann færði það frá veggnum og með gleðibros á andlitinu var hann að reyna að slétta rúmfötin sem best hann gat. Þegar hann var búinn kom hann út aftur og inn í stofuna. Hann bjóst víst við að konan yrði glöð og hissa er hún sá að rúmið var uppbúið. Þegar hún hafði lokið starfi sínu í eldhúsinu fór konan inn 1 svefnherbergið. Eg heyrði hana færa rúmið og sá von- brigða svipinn á andliti manns hennar. Hann hafði reynt sem best hann gat að hjálpa henni, en hún bjó upp rúmið aftur og hann fékk ekkert þakklæti. Eg hugsaði með mér, að hún hefði getað látið rúmið vera, jafnvel þó ekki væri eins vel búið um eins og ef hún hefði gjört það. Hún hefði getað sagt: “Eg er svo glöð þú bjóst um rúmið, Fred, það flýtti svo mikið fyrir mér.” Eg reyndi að ímynda mér hvað hann væri að hugsa um og hvort hann mundi nokkurn tíma aftur reyna að hjálpa henni í húsinu. Á öðru heimili sem eg kom hafði konan haft mikið fyrir að tilreiða góða máltíð handa fjölskyldu sinni og gestunum. Allir höfðu bestu matarlyst. Bæði hinn gestur- inn og eg létum í ljós hve góður matur- l,in var, kartöflurnar mátulega bakaðar, skorpusteikin ein sú besta sem við höfðum smakkað, og salatið var svo lvstugt og gott. Það glaðnaði yfir andliti húsmóðurinnar er hún fékk þetta hrós. Mér virtist sem eg gæti lesið út úr svip hennar þessi ótöluðu orð: “Það er gleðiefni að fá viður- kenning fyrir starf sitt. Eg er óvön við það”. Maður hennar eins og þúsundir annara borðaði matinn með góðri list og líkaði hann vel, en datt aldrei í hug að láta í ljósi þakklæti sitt fyrir framreiðsluna. Það eru mörg vingjarleg orð sem aidrei eru töluð, þau eru svo mikils virði en kosta svo lítið. Vér getum glatt aðra og létt þyrði þe.irra með hughreystandi þakk- lætisorðum, og sanngjörnu hrósi. Skeð getur vér mætum ábyrgð fyrir að van- rækja vingjarnleg hughreystandi orð. Gefið blómin, segið hughreystingarorðin nú, dragið það ekki þar til vinur vðar er látinn. C. L. Paddock.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.