Stjarnan - 01.11.1943, Side 8
96
STJARNAN
dagurinn er hvíldardagur drottins Guðs
þíns”.
Að Jesús hélt lögmálið og hafði löngun
til þess að gjöra Föður síns vilja. Sáim.
40:8.9. IPét. 2:22.
Að Jesús gjörði lögmálið stórt og veg-
legt. Jes. 42:21.
Að kristinn maður á að breyta eins og
hann breytti. IJóh. 2:4—6.
Að þú getur ekki í eigin krafti hlýtt lög-
máli Guðs. Ef menn gætu það þá væri
engin þörf á frelsara.
Að Guðs lögmál er mælikvarðinn sem
menn verða dæmdir eftir. Jak. 2:12.
Að lögmálið er spegill, sem sýnir mann-
inum hið verulega ástand hans. Jak. 1:23
—25. og að fyrir lögmálið kemur þekking
syndar. Róm. 3:20 og Róm. 7:7.
Að einungis með því að viðurkenna
syndir vorar getum vér fengið fyrirgefn-
ing fyrir trúna á Krist og verðum þá
réttlættir og öðlumst frið við Guð. IJóh. 1:9.
Róm. 5:1. og það er mögulegt að réttlætis-
kröfur lögmálsins verði uppfyltar í lífi
voru. Róm. 8:1—4.
Að vér þá erum ekki lengur undir for-
dæmingu, þegar vér lifum í samræmi við
lögmál Guðs. Syndin hefir þá ekki lengur
yfirráðin í lífi voru og þá erum vér ekki
lengur undir lögmáli heldur undir náð.
Róm. 6:14.
Að alt þetta er náðargjöf guðs í Jesú
Kristi, en ekkert sem vér höfum verð-
skuldað. Efes. 2:10. Róm. 3:24.
Að “Þetta er elskan til Guðs að vér
höldum hans boðorð og hans boðorð eru
ekki þung.” IJóh. 5:3. 2Kor. 5:14.
Að lögmál Guðs er í hjarta hins réttláta.
Sálm. 1:1—3. og hans gangur er stöðugur.
Sálm. 37:31.
Að mikinn frið hafa þeir sem varðveita
Guðs lögmál og engin ásteyting vofir yfir
þeim. Sálm. 119:165.
Að “Sælir eru þeir sem breyta eftir hans
boðorðum, svo þeir nái að komast að lífs-
trénu, og megi innganga um borgarhliðin
inn í borgina.” Op. 22:14.
Smávegis
Vinir mínir, ef þér vissuð hvað mikið
mér ríður á að fá inn fé fyrir Stjörnuna
þá er eg viss um að flestir ykkar mundu
STJARNAN kemur út einu sinni á
mánuði. Verð: $1.00 á ári. Borgist
fyrirfram. Publishers: The Canadian
Union Conference of S. D. A.,
Oshawa, Ont.
Ritstjórn og afgreiðslu annast
Miss S. Johnson, Lundar, Man. Can.
flýta sér að senda mér dollar til að halda
henni uppi. Það mundi ekki vera eins
tilfinnanlegt fyrir ykkur að senda einn
ddllar eins og fytrir mig að ábyrgjast
nokkur hundruð dollara. Hjartans þakk-
læti til allra sem þegar hafa borgað og
einnig til þeirra sem sent hafa gjafir til
alheimsstarfs vors. Blessun Guðs og varð-
veizla hans hvíli yfir ykkur öllum.
S. Johnson.
-f -f +
Maurar geta borið byrði sem er 15 til
20 sinnum þyngri en þeir sjálfir.
-f > -f
Gúmmítré sem plöntuð höfðu verið a
Hawaii fyrir 40 árum síðan og svo gleymst,
eru nú farin að gefa af sér svo mikinn
vökva eða gúmmí hráefni á mánuði að
það er nóg til að búa til úr því fleiri
þúsund gúmmihringi fyrir bifreiðar.
-f -f -f
Af hinum 135,832 læknum í Bandaríkj-
unum hafa yfir 40,000 gengið í herinn.
-f -f -f
Meðan sambandsþjóðirnar voru að vinna
Norður Afríku undir sig notuðu þær um
1,500.000 gallónur af gasolín á dag.
-f -f -f
Margir mundu lifa hamingjusömu lífi
ef þeir væru eins hugsunarlausir uro
annara skyldur eins og þeir eru um sínar
eigin.
-f -f -f
Leifðu þér enga nautn eða skemtun
sem veldur öðrum sorg.
-f -f -f
í Bergen veiddu menn 10 þúsund hrafna
árið sem leið. Einn maður veiddi 800 af
þeim. Kjötið var notað til fæðu en fiðr-
ið selt. Svo það mátti heita að alt vseri
notað nema nefið og klærnar.
-f -f -f
Það er þúsund. sinnum betra að eiga
sannan kristindóm, heldur en einung’s að
prédika um hann.