Stjarnan - 01.12.1943, Síða 1

Stjarnan - 01.12.1943, Síða 1
STJARNAN DESEMBER 1943. LUNDAR, MAN. “Hann er vor faðir” Rétt áður en flugskipið “Akron” féll nið- nr í Atlantshafið hrópaði yfirmaðurinn: Verið viðbúnir slysi”. Siðmenning heims- lns er að liðast sundur. Eyðilegging hennar ryllir hjörtu manna hvarvetna með ótta og skelfingu. ^að er sorgardagur nú í heiminum fyrir Pá sem elska frið. Stríðið hefir geysað svo ^rum skiftir og mannkynið lifir í sífeldum otta fyrir því að sá eldur aukist og út- weiðist. Hvað er rangt við íbúa heimsins? Hvað er °rsök og undirrót allra þeirra svika, glæpa undirokunar, sem nú á sér stað í heim- urum? Hvað hefir steypt mönnunum niður 1 slíkt siðleysi og villimensku? ^eir sem alvarlega hafa rannsakað sögu ruannkynsins segja oss að á síðari áratug- Urn hafi hugsunarháttur manna verið eitr- uður af efnishyggju, svo þeir hafi vanrækt síua eilífu velferð. Menn hafa gleymt Guði Vér höfum reynt að komast af án grund- vallaratriða réttlætisins. Og ástand heims- ms er eins og það er af því vér höfum vikið frá mælisnúru réttlætisins, Biblíunni. Tíu boðorðin eru einkis virt nú á tímum. Eitt þeirra segir: “Þú skalt ekki ljúgvitni kera”, og annað segir: “Þú skalt ekki girn- ast”. Mós. 20:16.17. Menn og þjóðir fótum- troða þessi áríðandi boðorð, þannig er alt siðferðislögmál lagt til hliðar, svo ekkert er örugt eða óhult lengur. Öruggleikinn er farinn þegar menn hafa gleymt Guði því hann einn getur veitt frið og öruggleika. Menn tala um nýtt fyrir- komulag í heiminum eftir yfirstandandi stríð. Menn töluðu þannig eftir 1918, og reyndu einlæglega að bæta úr ástandinu, en það mishepnaðist. Án Guðs verða allar umbótatilraunir manna alveg árangurslaus- ar: “Ef Guð ekki byggir húsið erfiða smið- irnir til einkis”. Sálm. 127:1. Þessa setningu má heimfæra upp á siðmenningu, þjóðir og einstaklinga. Þegar menn ekki taka Guð með í áform- um sínum og vonum, þá villast þeir af leið, lenda í vandræðum og eyðileggingu. Hin brýnasta þörf vor nú er iðrun fyrir syndir vorar sem einstaklingar og þjóð, og afturhvarf til Guðs, til að ganga á hans vegi, eins og hann kennir oss í sínu orði, Biblíunni. Einungis á þennan hátt getum vér öðlast frið -Og öruggleik jafnvel mitt í þessum friðlausa heimi. Já, þó þjóðir geti farist á einni nóttu, miljónir manna, kvenna og barna verið drepið, eða það sem verra er, hrakið alslaust burt frá heimilum sínum í allar áttir, þá geta menn fyrir samfélag við Guð haft öruggleik í gegn um alla erfiðleika. Vér lifum einmitt á því tímabili sem Jesús talar um er hann segir: “Menn munu deyja af angistarfullri eftirvænting þess er yfir allan heiminn mun koma”. En jafn- vel á þessum skelfingartímum getum vér haft frið og öruggleika, eini vegurinn til þess er að hafa Jesús í hjörtum vorum, hann er friðarhöfðinginn. Orð hans, sem vér finnum í Biblíunni eru oss gefin til þess vér getum haft “hans frið” stöðugan í oss mitt í öllum erfiðleikum. “Þetta hef eg talað til yðar svo þér mættuð hafa frið. í heiminum munuð þér hafa þrenging en verið öruggir, eg hef sigrað heiminn”. Jóh. 16:33. Rómverska ríkið á Krists dögum var siðspilt. Einstaklingar og þjóðir gengu á bak orða sinna. Kristnir menn voru of- sóttir. Þeim var kastað fyrir óargadýr, þeir voru brendir á báli, en þetta kristna fólk

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.