Stjarnan - 01.12.1943, Page 2
98
STJARNAN
hafði frið í hjarta sínu, þann “Guðs frið”,
sem yfirgengur allan skilning. Það er hann
sem “heldur hjörtum yðar og hugsunum
stöðuglega við Jesúm Krist”. Fil. 4:7. Jesús
veitir oss þann frið og rósemi, sem vér
óskum og þráum.
Þótt ríki þessa heims rísi eða falli, þá
er þó einn, sem aldrei breytist. “Jesús er
sá sami í gær og í dag og um aldir”. Ef
vér erum eitt með Jesú þá njótum vér
hans friðar og öruggleika, og eilífrar til-
veru með honum. Sá sem hefir Jesúm í
hjarta sínu er varðveittur frá hræðslu og
kvíða.
Roosevelt forseti og Mr. Churchill nefndu
fjögur atriði sem væru nauðsynleg svo
menn gætu notið rósemi lífsins. Það var
að geta verið óhultur og óhræddur, hafa
trúfrelsi, málfrelsi, og nauðsynjar lífsins.
Guð hefir ætíð verið athvarf barna sinna.
Þegar Davíð fyrir 3000 árum síðan var
umkringdur af óvinum, sagði hann: “Sá
sem dvelur í skjóli hins hæsta hvílir óhult-
ur í skugga hins almáttuga Drottinn er
mitt athvarf og mitt vígi, minn Guð á
hvern eg treysti”. “Þú skalt ekki óttast næt-
urinnar skelfingu, né þær örvar sem fljúga
á daginn”. Sálm. 91:1—5. Þetta seinasta
vers hljómar eins og verið væri að lýsa
árásum óvinanna dag og nótt. Návist Guðs
rekur óttann í burtu. Sá maður sem hefir
líf sitt falið með Kristi í Guði hefir örugg-
an frið í hjarta sínu. Salómon segir: “Hver
sem hlýðir mér, sá mun óhultur búa og
ekki hræðast hið illa.” Orðskv. 1:33.
í stríðslöndunum er fjöldi fólks sem lifir
í sífeldri hræðslu og hefir taugar sínar
alveg eyðilagðar vegna endurtekinna loft-
árása. En þó undarlegt megi sýnast þá
virðist sem lifandi trúaðar manneskjur
styrkist í trú sinni gegn um hætturnar
sem yfir vofa. Þær vita af eigin reynsiu
að kristna trúin er verulegleiki og að ávöxt-
ur hennar er friður guðs í hjartanu. Kona
ein var spurð hvernig hún hefði getað
afborið hinar stöðugu loftárásir á Lundúna
borg. Hún svaraði að hún hefði skrifað
með stóru letri á vegginn á neðanjarðar-
skýlinu tvo eftirfarandi Biblíutexta: “í
friði legst eg fyrir, í friði sef eg, því þú
einn Drottinn, ert það sem lætur mig búa
óhultan”. “Drottins englar setja herbúðir
kring um þá sem hann óttast og vernda
þá.” Sálm. 4:8 og 34:7. Þessi guðs fyrirheit
nægðu henni svo hún svaf rólega.
Á sama hátt og þessi guðrækna kona
fann frið og rósemi þannig geta aðrir fund-
ið hann og notið hans. Hjartað verður fyrst
og fremst að vera í samræmi við hans heil-
aga vilja, og þá gætir maður allra hans
boðorða og breytir eftir þeim og grund-
völlur þeirra er kærleikur — kærleikur til
Guðs og kærleikur til meðbræðra vorra.
Ef menn hlýddu orðum Krists: “Elska
hver annan eins og eg hef elskað yður”,
þá mundi greiðast fljótt og vel úr öllum
vandamálum. Hernaður og ofbeldi getur
ekki sigrað heiminn. Napóleon komst að
raun um það eftir að hann hafði lagt alt
sitt fram til að ná Evrópu undir sig. Það
er haft eftir honum þegar hann var útlegi
á eyju í Atlantshafinu: “Alexander, Júlíus
Caesar og eg stofnuðum ríki með hernaði
og hvers erum við metnir nú? En Jesús
Kristur stofnaði ríki sitt með valdi kær-
leikans og miljónir manna, enn þann dag
í dag mundu fúslega leggja niður líf sitt
fyrir hann”.
Vinur minn, lít til J(>sú. Athugaðu hvað
hann hefir gjört fyrir þig, hvað hann býður
þér, hvað hann vill gjöra fyrir þig. Hvað
er hann fyrir þig? Hvernig snýr þú þér
gagnvart honum?
Miðpunktur fagnaðarerindisins er Jesús
Kristur. Fagnaðar erindi frelsisins er inni-
falið í persónu, lífi, starfi, þjáningum, stöðu
og dýrð Krists. Jesús er vegurinn, vér
fylgjum honum. Hann er sannleikurinn,
vér meðtökum hann og trúum honum. Hann
er vort líf, vér liíum fyrir hann og í hon-
um. Hann er Drottinn vor, vér kjósum hanri
til að stjórna oss. Hann er húsbóndi vor
vér hlýðum og þjónum honum. Hann er
kerinari vor sem kennir oss veg sáluhjálp-
arinnar. Hann er spámaður vor sem sýnir
oss framtíðina. Hann er frelsari vor sem
úthelti blóði sínu oss til friðþægingar.
Hann er æðsti prestur og talsmaður vor,
sem æ lifir til að biðja fyrir oss. Hann
forlíkar oss við Guð. Hann er frelsari vor
sem frelsar til hins ítrasta “alla sem koma
til Guðs fyrir hann”.
Hann er stofninn, vér erum greinarnar.
Hann er lífsins brauð fyrir oss. Hann er
dyrnar sem vér göngum gegnum inn í
himininn. Hann er hinn sanni vínviður,
vér erum í honum, sem lifandi greinar.
Hann er vort lífsins vatn. Hann er hinn