Stjarnan - 01.12.1943, Page 3

Stjarnan - 01.12.1943, Page 3
99 STJARNAN fegursti meðal tíu þúsunda, vér hyilum uann framar öllum öðrum. Hann er ljómi föðursins dýrðar og ímynd hans veru, vér leitumst við að endurspegla hans hugarfar. Hann stjórnar öllu með 0rði síns máttar, vér reiðum oss á hann. Hann er vort réttlæti. Hann er sá sem helgar oss. Hann er vinur vor sem upp- fyllir allar þarfir vorar. Hann er bróðir Vor sem hughreystir oss í erfiðleikunum. Hann er vor etirþráði komandi konungur. 1 gegn um alla óvissu og erfiðleika lífsins bíðum vér hans með þolinmæði. Vér get- um aldrei sýnt honum of mikla lotningu. Hann verðskuldar miklu meiri kærleika, betri þjónustu, fullkomnara traust, og hjart næmari lofgjörð og þakklæti, heldur en vér getum í té látið. Vér getum aldrei gjört of mikið af því að elska hann, þjóna honum og hlýða, treysta honum og vegsama hann. Dýrð vald varðing og vegsemd hæst, vizka magt, speki og lofgjörð stærst, sé þér á Jesús herra hár, og heiður klár, amen, amen um eilíf ár. H. P. Jólagleðin Hað var fyrsta vikan, sem Rut North §°kk á Cedardale skólann. Móðir hennar vissi að henni leið ekki sem best, en hún spurði hana ekki um orsökina. Á föstudagskvöldið sagði Rut við móður sina: “Stúlkurnar á skólanum vilja ekki hafa mig með sér”. Móðir hennar spurði hvers vegna hún héldi það. Þær standa saman í hóp. Einu sinni þegar eg fór yfir H1 þeirra, þá heyrði eg Mary Leu segja: “Lítið á mjóu leggina hennar, þau hljóta að vera ósköp fátæk. Eg vissi þær voru að tala um mig. Erum við fátæk? “Nei, barnig mitt. Þeir einir eru fátækir sem ímynda sér þeir séu það. Við höfum ekki eins mikla peninga eins og áður en læknirinn sendi föður þinn suður sér til heilsubótar. Eg get ekki gefið ykkur börn- unum eins gott fæði eins og eg vildi. En við erum rík af kærleika. Kærðu þig ekkert um hvað stúlkurnar segja. Þær eru svona við ókunnuga. Ver þú kurteis og glað- ieg og svaraðu vingjarnlega, Guð mun endurgjalda þér.” “Það er þungt þegar þær tala um jólin °g segja frá hvað þær vonast eftir að fá °g hvað þær ætla að gefa, þær eru svo glaðar yfir því. Edna spurði mig hvað eg ætti að fá. Eg sagðist ekki vita það fyr en að því kæmi, það væri miklu meira gaman að fá það óvænt”. “Þú svaraðir vel”, sögðu þær og hlógu. Svo bættu þær við: “Eg skal veðja að hún fær ekkert nema brjóstsykurmola í tánni á sokknum sínum”. “Jólin eru ekki aðeins tími til að gefa °§ þiggja gjafir. Það er kærleikur Krists í hjörtum vorum sem leiðir oss til að gleðja aðra. Kom þú hingað og sittu hjá mér og eg skal segja þér sögu. Þegar eg var lítil stúlka voru fiestir fátækir í kring um okk- ur. Við vorum sjö systkinin og foreldrar okkar áttu fult í fangi með að fæða okkur Pabbi hafði dálitla verzlun. en hann lán- aði vörur, og þeir voru margir sem aldrei borguðu skuldir sínar. Læknirinn skuldaði okkur 400 dollara”. “Var það verzlun Sheldons afa míns?” “Já, pabbi vissi að fólk átti erfitt með að fá peninga, og hann var of hjartagóður til að geta gengið eftir skuldunum. Margir fleiri skulduðu honum og það alt upp að 600 dollurum.” “Afi var altaf svo góður og skemtilegur maður”, sagði Rut. “Mömmu þótti ósköp vænt um okkur og langaði til að við hefðum skemtileg jól. Aðferð hennar til þess var að gefa með sér þeim sem fátækari voru. Pabbi fór á veiðar og náði ef til vill í fáeina héra, svo matreiddi mamma og sendi mig með einn þeirra til gömlu blindu negrakon- unnar, sem bjó í útjaðri þorpsins.” “Eg vildi eg gæti gefið litlu systkinum mínum eitthvað til að gleðja þau.” “Það er oft í lífinu, elskan mín sem við verðum að treysta Guði til að gefa okkur það sem best er fyrir okkur. Eg man eftir því einu sinni það leit svo út sem við mundum ekkert fá. Mamma sagði okkur að biðja Guð að gefa okkur, ekki það sem okkur helst langaði til, heldur það sem við þyrftum. Jólakvöldið bakaði hún fáein- ar smákökur. Við hengdum upp sokkana okkar, og um nóttina kom Ben móður- bróðir okkar sem við höfum ekki séð í mörg ár. ó hvað skemtileg jól við höfðum”. “Eg vildi eg hefði eitthvað að gefa”.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.