Stjarnan - 01.11.1944, Síða 8
STJARNAN
mér Guðs orð og Guð sýndi þér að þú
átt að halda hvíldardaginn heilagann.”
Eítir að hann var orðinn frískur, heim-
sótti hann -mig og sagði: “Hefir þú heyrt
hvað kom fyrir mig? Héðan af ætla eg að
halda hvíldardaginn heilagann og láta skíra
mig. Bið fyrir mér að eg reynist trúr. Svo
lengi sem eg lifi ætla eg að kaupa eintak
af öllum nýjum bókum sem þú hefir til
sölu. Því sendið þið ekki prédikara hingað?
Hér eru margir sem vilj a hlusta á Guðs orð
og fylgja því.
Vinur trésmiðsins sem svo einarðlega
svaraði ávítun prestsins, hefir þegar sam-
einast söfnuðinum. Trésmiðurinn og kona
hans hafa um tíma haldið hvíldardaginn
og vonast eftir að verða bráðurn skírð.”
C. A. Edwards.
Smávegis
Fyrir stríðið notuðu Bandaríkin um 45
miljón gúmmíhringi fyrir bifreiðar á ári.
4 4 4
Áætlað er að Canada hafi 540 miljón
mæla (bushels) af hveiti til útflutnings.
Þetta er eins mikið og korn að meðaltali á
hveitimarkaði heimsins árlega fyrir stríð-
ið.
4 4 4
Fréttaritar.i frá Normandy kveðst hafa
séð konur og stúlkur fara til kirkju í gljá-
andi hvítum silkikjólum, sem búnir voru
til úr fallhlífum sem flugmenn köstuðu frá
sér eftir að þeir höfðu notað þær til að
lenda í Normandy D daginn.
4 4 4
Hæsta mjólkurframleiðsla frá einni kú
yfir árið, í öllum heimi voru 41.943 pund
af mjólk.
Yfir 18.000 hundar voru teknir til hern-
aðar í Bandaríkjunum árið 1943.
4 4 4
Pappír sem leyft hafði verið að notaður
yrði í sálmabækur er nú hafður til að
vefja utan um vindlinga, en sálmabækur
1 fást ais ekki.
4 4 4
Þrefalt fleiri drengir innan 20 ára aldurs
giftu sig árið 1942 heldur en 1939 og miklu
STJARNAN kemur út einu sinni á
mánuði. Verð: $1.00 á ári. Borgist
fyrirfram. Publishers: The Canadian
Union Conference of S. D. A.,
Oshawa, Ont.
Ritstjórn og afgreiðslu annast
Miss S. Johnson, Lundar, Man. Can.
fleiri stúlkur yfir 35 ára aldur hafa gift
sig þessi síðastliðin ár heldur en fyrir stríð-
ið, eftir því sem Metropolitan lífsábyrgðar-
félagið skýrir frá. Sagt er einnig að al-
gengt sé að drengir gifti sig stúlkum sem
eru eldri en þeir sjálfur.'
4 4 4
Yfir 250 foreldrar hafa innritast í skóla
sem stofnaður er í San Francisco fyrir
foreldra, sem eiga .óþæg og illa innrætt
börn.
4 4 4
George Platts í Burley Idaho hefir 16
börn og 68 barnabörn í stríðinu.
4 4 4
Sprengjuflugvélarnar sem hafa plágað
Suður-England hafa alt að 410 mílna hraða
á klukkutíma.
4 4 4
Það þarf tíu potta af mjólk til að fá
nógan rjóma í eitt pund af smjöri, en
fjóra potta af mjólk fyrir eitt pund af
osti.
4 4
. Miljónir vatnsuxa (water buffalos) eru
n'otaðir til vinnu á Indlandi. Kjöt þeirra og
mjólk er notuð til fæðu. Mjólkin er bláleit
á lit er kostgóð á smjör.
4 4 4
Einungis 314 miljón pör af skóm verða
búin til í Bandaríkjunum til almennings
nota yfirstandandi ár, í stað þess sem áttu
að vera 360 pör, og tala sem leyfð er á
hálfsóluðum skóm var færð niður í 135
miljónir.
4 4 4
Skógarbelti til skýlis vaxa nú á sléttun-
um þar sem tré hafa aldrei vaxið áður, bæði
í Norður og Suður Dakota, Nebraska,
Kansas, Oklahoma og í norðurhluta Texas.
Miljónir af trjáplöntum, sem settar hafa
verið niður síðan 1935 er.u búnar að ná
þroska og reynast besta hjálp fyrir land-
búnaðinn.