Stjarnan - 01.06.1945, Blaðsíða 1

Stjarnan - 01.06.1945, Blaðsíða 1
= r- - = STJARN IAN JÚNÍ 1945 LUNDAR, MAN. 1- __ ■ "7 ... ■ ;;— :—:— 1 Treyátið frelsara vorum Frá fyrsta andardrætti höfum vér orðið að treysta öðrum Sem börn treystum vér móðurinni eða öðrum að veita oss fæði og aðrar nauðsynjar. Vér treystum fóiki sem framleiðir og tilreiðir fæðuna fyrir oss, annars þyrðum vér ekki að eta. Vér treyst- um mönnum sem vinna við vatnsverkið, eða vér gæ.íum aldrei drukkið vatnið. Vér treystum nágrönnum vorum, annars vær- um vér hræddir að leggja oss til hvíldar án þess að halda vörð. Vér treystum póst- þjónunum, sem vér höfum aldrei séð. Vér afhendum póststjórninni peninga vora til geymslu, sambandsstjórninni eða bankan- um, þar fara menn með þá, sem oss eru alveg ókunnugir. Það er ekki venjulega, en aðeins kemur fyrir að menn bregðast trausti voru. Að jafnaði reynist það örugt að treysta öðrum. Án trausts til annara gætu engin við- skifti þrifist, enginn verksmiðjuiðnaður, engir skólar, engin sjúkrahús, engin flutn- ingstæki, engin stjórn. Siðmenning vorra tíma er bygð á trausti, hún gæti ekki stað- ist án þess. Hinn sjálfstæðasti maður í heimi verður að treysta öðrum, eða deyja. Vantrúarmaðurinn er engin undantekn- ing, hann getur efast um sumtf en hann trúir öðru, eða hann væri ekki hér á meðal vor. Allir verða að hafa "traust og trú, annars gætu þeir ekki lifað til að láta í ljósi vantraust sitt. Hvað lífinu hér viðvíkur þá er það blátt áfram bygt á trausti eða trú. Bóndinn sáir hveiti og trúir því að það muni vaxa og veita honum ríkulega uppskeru af hveiti, en ekki gulrófum. Sá sem elur upp nautgripi væntir fjölg- unar af nautgripum. Þegar vorið kemur væntir hjarðmaðurinn, ekki að fá bjarn- dýra húna heldur lömb. Þessir menn trúa lögum náttúrunnar og þeir verða ekki fyr- ir vonbrigðum. Efnafræðingurinn trúir því að ef hann blandar tveimur loftefnum (hydrogen og oxygen) í vissum hlutföllum, þá komi fram vatn, og það bregst ekki. Hann trúir því að hin 92 frumefni, sem menn þekkja, muni ætíð vinna á sama hátt undir sömu kringumstæðum. Hljómlistarmaðurinn byggir list sína á lögum tónanna. Hann trúir að þau séu hin sömu eins og á dögum Beethovens eða þegar “morgunstjörnurnar sungu gleði- söng allar saman og allir Guðs synir fögn- uðu.” Hugsið yður talnavísindin eða reiknings- fræðina, nærri öll önnur vísindi eru bygð á henni. Án hennar gætu skipin ekki ferð- ast yfir höfin, loftskipin ekki flogið eða bílarnir runnið, og þessi nákvæmasta af öllum vísindum er bygð á trú. Menn reiða sig á það blátt áfram að tvisvar tveir séu fjórir, eins og ætíð hefir verið. Vér trúum þessu öllu fyrir vitnisburð annara og álítum það sjálfsagt. Vér lifum daglega í trú og trausti til þeirra sem um- hverfis oss eru, oss finst það alveg eðlilegt, ef vér annars hugsum nokkuð um það. Menn hafa trú á ráðvendni þeirra, sem standa fyrir víðvarpinu svo þeir eyða þús- undum dollara til að senda boðskap, sem þeir trúa að heyrst geti landshornanna á milli. Sá, sem talar í víðvarpið skrifar háa ávísun til félagsins af því hann treystir loforði þeirra að orð hans berist, svo miljónir manna geti heyrt raust hans, en

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.