Stjarnan - 01.06.1945, Side 2

Stjarnan - 01.06.1945, Side 2
42 STJARNAN ekki að hann tali inn í dauða, hljóðlausa vél. Víðvarpið er alt bygt á trú Útgáfa fréttablaða er líka bygð á trú. Þeir sem gefa út blöðin og kosta prent- unina verða að setja í fréttadálkinn við- burði, sem eiga sér stað, en ekki uppgjörð- ar skáldsögur. Verðmæti peninga vorra er mikið komið undir því, að vér berum traust til stjórnar og viðskiftastofnana. Vér verðum innan vissra takmarka að treysta hver öðrum, annars gætum vér ekki lifað saman í neinum félagsskap. Ef vér hættum að treysta og trúa þá hættum vér að lifa. Trú er almenn í daglegu lífi, en þegar oss er sagt að vér ættum að treysta guði, þá líta sumir öðrum augum á það, þvi það er ekki eins alment að menn gjöri það. Vér berum traust til manna, það er nauðsynlegt og óhjákvæmilegt, það er engin sérviska. Það traust er bygt á næg- um sönnunum. Hið sama má segja um traust á Guði. Hinar tvær bækur Guðs, náttúran og heilög Ritning eru í fylsta samræmi hvor við aðra. Spádómar Bibl- unnar, uppfyltir í sögunni benda á guð- legan höfund og miljónir manna bera vitni um það að trúin á Guð hefir veitt þeim margfalda blessun. Ef Guð er til, sem ómögulegt er að efast um, þá verðum vér að taka einhverja afstöðu gagnvart hon- um. Ef hann er góður Guð, og það getur enginn efast um, sem þekkir hann, þá hlýt- ur hann að opinbera sig fyrir mönnunum. Þessi opinberun finst bæði í Biblíunni og náttúrunni umhverfis oss. Guðs heilaga orð segir oss að hjarta mannsins, sem er óánægt og þráir það sem betra er, sé veikt af sýki syndarinnar, og hin eina verulega lækning finnist í trú á Jesúm Krist. Þar er oss kent að syndin ber með sér dauðahegninguna, en að Jesús dó í vorn stað og tók á sig hegninguna, sem vér réttilega áttum að líða. Þetta er sett fram í fáum orðum í I Kor. 15:3. “Eg kendi yður fyrst og frehist þann lærdóm, sem eg hefi meðtekið að Kristur væri dá- inn vegna vorra synda eftir Ritningunum.” Og í I Joh. 2:2 stendur: “Hann er forlíkun fyrir vorar syndir, þó ekki einungis fyrir vorar, heldur líka fyrir allrar veraldarinn- ar syndir.” En nema vér treystum honum fyrir frelsun vorri, og trúum persónulega kær- leiksfórn hans fýrir oss, þá kemur fórn hans ekki oss að notum. Guð neyðir oss aldrei til að þiggja náðar- gjöf sína. Það er alt komið undir trú vorri hvort vér njótum hennar eða ekki. Miljón- ir manna trúa á Jesúm og treysta honum, þannig uppfylla þeir spádóminn sem gef- inn var hundruðum ára áður en Jesús kom í heiminn. Hann stendur í Jes. 11:10 og Páll postuli rifjar hann upp í Róm 15:12. “Rót Jesse mun haldast við og á þann sem rís upp til að stjórna heiðingjum munu heiðingjar vona.” “Heiðingjar” var venjulega orðið sem notað var fyrir “þjóðirnar”. Þetta er spá- dómur um Krist, sem á mannlegu hliðina var af ætt Davíðs sonar Jesse, að hann mundi koma í heiminn, og að þjóðir heims- ins, sem ekki voru Gyðingar mundu trúa á hann. Ekkert gat sýnst ólíklegra á þeim tíma sem Jessajas ritaði þennan spádóm. Á þeim tíma voru Gyðingar að fara í út- legð til heiðingjanna, og þeir höfðu ekki mikinn. áhuga fyrir að leiðbeina undir- okurum sínum í andlegum efnum. Hér var spádómur sem var gagnstæður hugmynd- um bæði Gyðinga og heiðingja á því tíma- bili sem hann var fluttur. Þrátt fyrir það hefir hann verið og er uppfyltur. Þúsundir já, miljónir manna í öllum löndum trúa á Jesúm, og fjöldi mundi fúslega deyja fyrir hann. Fagnaðar erindi Krists er boðað til ystu endimarka heimsins. Það er prentað a yfir þúsund málum. Sem ein grein af al- heimsstarfinu flytur víðvarpið boðskapinn alla leið frá nyrsta þorpi Alaska tii syðsta odda S.-Ameríku Það hljómar á þremur út- breiddustu málum heimsins, ensku spönsku og portúgölsku. Vér vonum og biðjum að það einnig bráðum hljómi á kínversku og öðrum málum út um heiminn, því vér lesum í Matt. 24:14. “Kenningin um Guðs ríki mun um gjörvallan heim boðuð verða, til vitnisburðar fyrir öllum þjóðum og þá mun endirinn koma.” Það sem leiðir oss til að trúa og treysta Jesú er vitnisburður Guðs orðs, eins og vér lesum í Efes. 1:1 . “í hverjum og þér sem heyrt hafið lærdóm sannleikans, náð- arlærdóm yðar sáluhjálpar, í hverjum og þér sem trúið, eruð innsiglaðir með hin-

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.