Stjarnan - 01.06.1945, Qupperneq 3
STJARNAN
43
um fyrirheitna heilaga anda.” Að trúa,
og að treysta, hefir sömu merkingu. Að
treysta Jesú er að trúa á hann og elska
hann, og þá, einungis þá, getur maðurinn
orðið innsiglaður með heilögum anda. Það
er einungis fyrir þá sem trúa að fagnaðar-
erindið getur orðið kraftur Guðs til sálu-
hjálpar, eins og vér lesum í Róm. 1:16.
“Eg fyrirverð mig ekki fyrir Krists fagn-
aðarerindi, því að það er kraftur Guðs til
sáluhjálpar sérhverjum sem trúir, Gyð-
ingum fyrst og Grikkjum einnig.”
Ef vér viljum öðlast frelsun þá verðum
vér að trúa því skilyrðislaust að Jesús dó
fyrir oss á krossinum, að hann bar vorar
syndir á sínum líkama upp á tréð, svo vér
skyldum skilja við syndirnar og lifa rétt-
lætinu, fyrir hans benjar eruð þér lækn-
aðir IPét. 2:24.
Laun syndarinnar er dauði. Vér lesum
það í Róm. 6:23. Svo hversu vel sem vér
breytum, ef vér höfum drýgt eina synd,
þá erum vér glataðir og þurfum frelsun.
Góðverk geta ekki frelsað oss, því hegn-
ingin fyrir synd — skuldin sem á oss hvílir
er dauði en ekki verk. Ef vér eigum að
frelsast þá verður það ekki fyrir verk,
heldur af Guðs náð fyrir trúna á Jesúm
Krist.
“Af náð eruð þér hólpnir orðnir fyrir
trúna og það er ekki yður að þakka heldur
er það Guðs gjöf. Ekki af verkunum svo
enginn stæri sig ” Efes. 2:8.9. Það eru ekki
tilraunir þínar, vinur minn, sem frelsa
þig, heldur trúin á Jesúm Krist.
Ef þú óskar að fá fyrirgefningu synda
þinna þá er hún fúslega veitt ef þú vilt
trúa á Jesúm. Tilfinningar þínar geta verið
hinar sömu en þér er fyrirgefið ef þú trúir.
Vér erum fullvissaðir um þetta í IJóh.
1:9. “Ef vér viðurkennum vorar syndir þá
er hann trúfastur og réttvís, svo hann fyrir
gefur syndirnar og hreinsar oss af öllu
ranglæti.” Þú getur treyst honum af því
hann elskar þig. Það er ætíð örugt að
treysta þeim sem í sannleika elskar oss,
eins og vér lesum í IJóh. 4:18. “Ótti er
ekki í elskunni heldur útrekur fullko'min
elska óttann því að óttinn hefir kvöl, en
sá sem óttast er ekki fullkominn í elskunni
Guð hefir sýnt elsku sína til vor í því að
hann gaf oss soninn. En ef vér elskum
hann þá treystum vér honum og hlýðum.
Það eru fjögur atriði sem þú þarft aö
muna: Guð elskar þig. Jesús elskar þig.
Guðs orð er sannleikur. Hver sem vill er
velkominn.
Það er sagt um Napoleon að þegar hann
einu sinni reið framhjá röð hermanna sinna
til að líta eftir, þá fældist hestur hans,
rykti taumnum úr höndum hans og æddi
áfram. Óbreyttur hermaður einn, sem stóð
í röð hermannanna, slepti byssu sinni,
hljóp út úr röðinni og vogaði lífi sínu til
að grípa tauminn á stjórnlausum hestin-
um. Þegar keisarinn tók við taumnum
sagði hann: “Þökk fyrir, herforingi”.
“Fyrir hvaða herdeild, herra minn?”
spurði hermaðurinn.
“Lífvarðar míns”, svaraði Napoleon.
Hermaðurinn fór nú húfulaus og 1 ein-
kennisfötum óbreyttra hermanna þangað
sem yfirmennirnir stóðu í hóp sér. Þegar
þangað kom spurði einn þeirra hann:
“Hvað ert þú að gjöra hér?”
“jEg er yfirmaðuir líívarðanna, herra
minn.”
“Þú lítur ekki út fyrir það. Hvenær varst
þú gjörður að yfirmanni?”
Hermaðurinn benti á Napoleon og svar-
aði: “Hann sagði það.”
'Napoleon stóð við orð sín.
Það var orð keisarans, en ekki fatnaður
hermannsins, tilfinningar hans, ætterni né
mentun, sem gjörði hann að yfirmanni líf-
varðanna. Þannig er það orð Krists en ekki
vor verðskuldun, sem veitir oss fyrirgefn-
ing og frelsun. Vér verðum að treysta hon-
um. Taka hann á orðinu.
Vér þurfum að treysta Jesú í öllum. áform
um og ákvörðunum lífsins, því góði hirð-
irinn kallar sína sauði með nafni og leiðir
þá. Jóh. 10:3. Hann mun stýra fótum vor-
um á friðarins veg. Lúk. 1:79. Hann vill
gefa oss sinn heilaga anda til að leiða oss
í allan sannleika. Jóh. 16:13. Svo vinur
minn, treystum Jesú frelsara vorum.
Þegar vér erum reyndir og freistaðir,
þá mun Jesús gæta vor, því hann “megn-
ar að varðveita yður frá hrösun og láta
yður mæta fyrir sinni dýrð, óflekkaða í
fögnuði.” Júd. 24.
Vér megum reiða oss á orð hans, þau
geta ekki brugðist, þó alt breytist í þess-
um hverfula heimi þá getum vér treyst
orðum hans, Jesús sagði: “Himinn og jörð